Heima er bezt - 01.11.1958, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.11.1958, Blaðsíða 27
Ásta sagði: — Ég kann ekki við að fara að heiman, fyrst hús- móðirin er fjarverandi, þótt ég hafi ekkert sérstakt viðbundið að kvöldkaffi loknu. — Það skiptir engu máli, þó að mamma sé fjarver- andi, því þegar þú hefir lokið skyldustörfum þínum, áttu kvöldið sjálf, og gæðingarnir bíða okkar hérna úti á hlaðinu. — En ég kann ekki að sitja á hesti, það hef ég sagt þér áður. — Já, og þess vegna ætla ég að kenna þér það. — Ég held það taki því varla. — Við skulum nú alveg sleppa því að ræða það mál núna, en ætlarðu ekki að koma með mér, Ásta? Hún horfir enn á Val og mætir drengilegum, biðj- andi augum hans. Án þess að hún geti við það ráðið, er öll mótstaða þegar brotin á bak aftur, og ævintýri kvöldsins heillar hana; en hún svarar samt engu. Valur endurtekur spurningu sína og bíður svars. Ásta lítur að lokum beint í augu hans og brosir, bjart en feimnislega. Það er svar hennar við spurningu hans. Heitur unaður fer um sál Vals, því þetta bjarta, jákvæða bros á hann einn og enginn annar. — Nú fer ég að týgja hestana, á meðan þú framreiðir kvöldkaffið og býrð þig í ferðafötin, — segir hann og gengur út úr eldhúsinu. Kvöldkaffið hefir verið drukkið, og Ásta lýkur skyldustörfum dagsins. Svo hefir hún fataskipti og gengur út á hlaðið. Valur hefir týgjað reiðskjóta þeirra og bíður hennar þar. Hún gengur til hans og nemur staðar hjá honum. Bros þeirra mætast í djúpri þögn, en blærinn hvíslar þýtt og lokkandi Ijóði skáldsins góða: — Um það, sem ást og æska biður, fær engin vornótt synjað þeim. Valur leggur taumana upp á makkartn, á glófextum gæðingi og segir lágt og hlýtt: — Á bak þessum hesti hefir enginn stigið, síðan hann var fulltaminn, nema ég sjálfur, en í kvöld átt þú að vígja hann, Ásta. — Hún brosir: — Blessaður hesturinn, svo þetta verður víst engin skemmtiferð fyrir hann. — Þú heldur það, en ég er alveg viss um, að hesturinn minn hefir yndi af því að bera þig, og nú skulum við halda af stað í fyrsta sameiginlega ferðalagið okkar. Þau stíga á bak, og gæðingarnir bera þau hægt úr hlaði, hlið við hlið út í bjartan og unaðsríkan faðm sumar- kvöldsins. Gullnir aftangeislar krýna fjöll og engi, og þýður svanasöngur ómar blítt í kveðjuóði dagsins. í helgri kyrrð kvöldsins hverfur kaldranalegur raunveru- leikinn með allar örlaganornir, og þau tvö, sem leggja leið sína fram til heiða, njóta þess að vera saman. Valur lítur til Ástu og segir brosandi: — Ertu nokkuð hrædd að sitja hestinn minn? — Nei, ég er hvergi smeyk, meðan ferðin er svona hæg, og þú ert hérna við hlið mína. — Svo þú treystir mér þá til að vernda þig á fyrsta ferðalaginu okkar. Rödd hans var þýð og hvíslandi. Ásta lítur á Val og brosir. Orð eru alveg óþörf. Hann les svarið í augum hcnnar. Hann á fullt traust þessarar saklausu, yndislegu stúlku, og því skal hann aldrei bregðast. Þögnin hvíslar heitum, fagnandi hjartaslögum þeirra beggja, og gæð- ingarnir bera þau fram í Grænaengi. Valur stöðvar hest sinn og segir: — Þá erum við komin á leiðarenda, hérna eru hest- arnir, sem ég ætlaði að sækja. Nú skulum við stíga af baki og lofa gæðingunum að njóta hvíldar litla stund. Ertu því ekki samþykk, Ásta? — Jú, hví skyldi ég ekki vera það, en hvað hér er guðdómslega fallegt! — Já, það hafa margir haft orð á því. Þetta er líka einhver fegursti staðurinn í okkar landareign. Þau stíga af baki, og Valur beizlar vinnuhestana, sem hann ætlar að taka heim til morgundagsins. Síðan geng- Heima er bezt 389

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.