Heima er bezt - 01.06.1963, Side 6
Sýn úr Ingólfshöfða til Örœfajökuls og austur með ströndinni.
Riðið úr Ingólfshöfða heim að Fagurhólsmýri. Undir skýja-
bakkanum sér i Öræfajökul.
Það sýnir bezt áhugann fyrir rafvirkjunum, að ekki
voru full 8 ár liðin frá því, að fyrsta rafstöðin var reist
í Öræfum, þangað til flest býli sveitarinnar voru raf-
lýst. Fjárhagur flestra bænda var þá þröngur, en allt
fólkið í heimilunum studdi þessar framkvæmdir, og út-
sjónarsemi Flelga, veglyndi og höfðingslund leysti þá
margan vandann. Fleiri áttu þátt í þessu. Hagleiksmenn-
irnir góðkunnu, Bjarni Runólfsson í Hólmi og Skarp-
héðinn Gíslason á Vagnstöðum settu líka upp rafstöðv-
ar hér í sveitinni. — En Helgi fór einnig í önnur héruð
og kom þar upp rafvirkjunum.
Helgi er völundur á smíðar og áhugamikill að hverju
sem hann gengur. Hann er greiðvikinn mjög. Aldrei
verður metið eins og vert væri það, sem hann hefur
unnið fyrir sína sveitunga, oftast endurgjaldslaust, við
lagfæringar á vélum og öðrum dýrum tækjum, auk
fjölmargra annarra starfa, er hann hefur leyst af hönd-
um fyrir þá. Ennfremur hafa verk hans oft orðið þeim
til fyrirmyndar. Sem dæmi uin það má nefna vagna-
smíðar hans. Árið 1922 höfðu fáir bændur hér byrjað
heyflutninga á hestkerrum. Um það leyti keypti Helgi
ónýt vagnhjól í Reykjavík. Hann gerði þau upp heima
og útbjó aktygi handa sér. Þetta varð öðrum lagtækum
mönnum hvatning til að reyna að koma sér upp kerr-
um á þennan hátt. Helgi útvegaði fyrir þá gamla öxla
og biluð kerruhjól fyrir lítið verð. Þeir smíðuðu svo
sjálfir upp hjólin og notuðu ýmist rekavið til þess eða
efni úr strönduðum skipum. Þetta flýtti mildð fyrir
194 Heima er beit