Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 7
fm', að flest heimili hér komu sér á skömmum tíma upp kerrum til heyflutninga og annarra aðdrátta. Helgi er ókvæntur. Hann hefur félagsbú með Sigurði bróður sínum á Fagurhólsmýri. Orðtakið „saman er bræðra eign bezt“ á við um búskap þeirra. — Fyrstir sveitunga sinna luku þeir við að slétta túnið sitt, sem var mjög þýft. Það var gert með reku og ristuspaða. Ari, faðir þeirra, vann einnig að þessu með þeim af miklum dugnaði. Seinna hófu þeir nýrækt með hesta- verkfærum. Svo eftir að mýrarnar hér voru ræstar með skurðgröfu og stórvirkar dráttarvélar komu hingað, hafa þeir lagt í miklar jarðræktarframkvæmdir. íbúðar- hús stórt og vandað byggðu bræðurnir handa sér fyrir nokkrum árum. Þeir hafa líka unnið mikið að öðrum húsabótum á jörð sinni. Heimilið er fólksmargt, og þar er gestrisni mikil. Á Halldóra Jónsdóttir, kona Sigurð- ar, góðan þátt í því. Þeir bræður keyptu fyrstu sláttuvélina og rakstrar- vélina, sem komu í Oræfin. Og fyrsta bíiinn, sem flutt- ur var í sveitina, fékk Helgi ásamt frændum sínum á Kvískerjum. Helgi er símstöðvarstjóri á Fagurhólsmýri. Hann annast þar veðurathuganir fyrir Veðurstofuna, er af- greiðslumaður Flugfélags íslands í Oræfum. Hann var um skeið vitavörður við Ingólfshöfðavitann, einnig deildarstjóri og afgreiðslumaður Öræfadeildar Kaupfé- lags Skaftfellinga. Fróðleik frá fyrri tíð um margs konar efni hefur hann safnað og fengið aldrað fólk hér til að skrá ýmis- legt frá liðnum tímum um búnaðarhætti og fleira sem snertir þessa sveit. Helgi er skarpgreindur og mjög hugkvæmur, víð- lesinn og manna skemmtilegastur í kunningja hópi. Starfstími hans er orðinn langur, enn vinnur hann þó ótrauður að áhugamálum sínum. Ég vil að lokum tjá Helga þakkir fyrir góðvild hans og áma honum allra heilla. Gamli vitinn i Ingólfshöfða og Jón Eiríksson frá Volaseli. Ibúðarhúsin á Fagurhólsrnýri. Efri bcerinn á Fagurhólsmýri. Nýja íbúðarhúsið er í smiðum. Á flugvellinum á Fagurhólsmýri. Heima er bezt 195

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.