Heima er bezt - 01.06.1963, Qupperneq 12
STEINDÓR STEINDÓRSSON
FRÁ HLÖÐUM:
/■
o
róður
(Framhald.)
Rannsóknir mínar á dreifingu íslenzkra plantna leiddu
til þess, að Ijóst varð, að miklu mestur hluti allra sjald-
gæfra tegunda í landinu hnappast saman á fá tiltekin
svæði, sézt slíkt bezt þegar dreifingarsvæði þeirra eru
mörkuð á uppdrætti. Eftir allnákvæma rannsókn á þess-
um hlutum varð mér ljóst að svæði þessi eru 6 alls, og
kalla ég þau miðsvæði plantnanna eða gróðureyjar.
Svæði þessi eru:
1. Breiðafjarðarsvæðið, fyrir botni Breiðafjarðar.
2. Vestfirðir.
3. Eyjafjarðarsvæðið, milli Skagafjarðar og Skjálf-
anda.
4. Austfirðir frá Héraðsflóa suður til Öræfa.
5. Mýrdalssvæðið, sunnan undir Mýrdals- og Eyja-
fjallajöklum.
6. Hvalfjarðarsvæðið, frá Esju til Borgarfjarðar.
Þegar litið er á landslag þessara svæða, bera þau þess
vitni, að þar eru möguleikar á, að einstök fjöll eða fjalla-
ranar hefðu getað staðið upp úr meginjökli Isaldarinn-
ar. En utan þessara svæða finnast margar einkennis-
plantna þeirra á stöðum, þar sem hnjúkar (nunatakk-
ar) hefðu getað verið auðir á fsöld.
En það er ekki nóg að benda á útbreiðslu tegund-
anna eina saman. Einnig verður að svipast um, hvort
tegundir þær, sem um ræðir væru líklegar til þess að
hafa lifað af harðræði ísaldarinnar. í því efni verða
fyrst fyrir þær tegundir, sem á Norðurlöndum eru kall-
aðar vesturarktískar. Um þær er naumast ágreiningur
meðal skandinaviskra vísindamanna, að þær hafi lifað
þar af jökultímann. Engar þeirra finnast annars staðar
á meginlandi Evrópu, en eru hins vegar til fyrir vestan
haf. Alls eru þær 27. Af þeim finnast 13 tegundir á ís-
landi. í Skandinavíu eru þær allar fjallaplöntur, svo er
og meiri hluti þeirra hér á landi og meðal þeirra þær
tegundir, sem vaxa hæst upp eftir íslenzkum fjöllum.
Flestar þessar tegundir eru einangraðar á tilteknum
svæðum í Skandinavíu, en hér á landi eru 7 þeirra mið-
svæðaplöntur, en 5 eru útbreiddar um mestan hluta
landsins. Fimm af þessum tegundum hafa megin út-
breiðslu á Eyjafjarðarsvæðinu, og fjórar af þeim naum-
ast fundnar utan þess og alls ekld nema á áðurnefnd-
um gróðureyjum eða í námunda við nunatakka. Teg-
undir þessar eru: fjallabláklukka, finnungsstör, kollstör,
snækobbi og þúfukrækill. Ein tegund fjallafræhyrna
(kirtilfræhyrna) er tvísvæðaplanta, vex aðallega á Eyja-
fjarðarsvæði og Austfjörðum, tröllastakkur er þrísvæða-
planta og línarfi er einsvæðisplanta á Vestfjörðum. Hef-
ur hann fundizt þar á tveimur stöðum en langt á milli.
200 Heima er bezt