Heima er bezt - 01.06.1963, Page 16

Heima er bezt - 01.06.1963, Page 16
BÖÐVAR MAGNÚSSON, LAUGARVATNI: Draumar GUÐMUNDUR Á AUÐNUM. g mun hafa verið á 10.—12. arinu, þegar mig dreymdi þetta: Eg þóttist vera á ferðalagi suður með sjó, gangandi. Umhverfis mig þótti mér allmikil hraun, og að ég væri í útjaðri þeirra. Einhvern veginn þóttist ég vita, að þetta væru „EIraunin“ fyrir sunnan Hvassahraun í Gullbringusýslu, og staðurinn sem ég var staddur á, væri kallaður Hraunsnef. Þóttist ég þá mæta öldruðum manni ríðandi. Eg spurði hann að heiti, og kvaðst hann heita Guðmund- ur Guðmundsson og vera bóndi á Auðnum á Vatns- leysuströnd. Kveðst hann ætla til Reykjavíkur. — Var draumurinn ekki lengri. En svo var mynd Guðmund- ar á Auðnum skýrt og glöggt mótuð í huga mínum upp frá þessu, að ég þóttist alveg viss um, að ég myndi þekkja hann, hvar sem ég sæi hann, bæri hann aftur fyrir mig. Nú líða mörg ár, — sennilega 15—17, að aldrei bar Guðmund fyrir mig, en um hann heyrði ég oft talað sem mikinn formann og stórbónda. Svo bar það við eitt haust, að við Páll á Hjálmsstöð- um vorum að reka sauðfé til slátrunar suður í Kefla- vík, eins og bæði fyrr og síðar. Við vorum að sleppa út úr verstu hraununum, og minnir mig, að þar heiti „Hraunsnef“. Þar mætum við ríðandi manni. Var ég nú staddur nákvæmlega á sama bletti og í draumnum forðum, er ég mætti Guðmundi á Auðnum, og maðurinn nákvæm- lega eins, svo að ég þóttist alls ekki þurfa að spyrja hann að heiti, þótt ég að sjálfsögðu gerði það til þess að vera viss um að vita rétt, hver maðurinn væri. Þama hittumst við þá aftur, nákvæmlega á sama stað, off Guðmundur var svo nákvæmlecra eins og mig hafði dreymt hann fyrir 15—17 áram. Hver skilur þetta? Þegar mig dreymdi drauminn, 10 —12 ára ungling, hafði ég varla heyrt Guðmund nefnd- an, svo að ég, unglingurinn, veitti því ekki neina veru- lega athygli, og ekki sá ég hann nema í þetta eina sinn, og einu sinni aftur, og líf okkar var að engu leyti tengt né fléttað saman nema að þessu leyti. Um þennan mann hafði ég ekkert hugsað, og því síð- ur um ferðalag suður með sjó, suður í Gullbringusýslu. Hver stjórnar þessu ferðalagi og sýnir mér Guðmund á Auðnum? Og til hvers er mér sýndur hann svo greini- lega, að ég þekki hann strax og ég sá hann á sama stað og mig dreymdi hann fyrir mörgum árum, og nú al- veg eins og mér birtist hann í draumnum. Hafði hann þó vitanlega breytzt og elzt allmikið á þessu tímabili, frá því ég sá hann í draumnum, og þar til ég sá hann nú aftur, ljóslifandi, — ríðandi við Hraunsnefið. — Hver ræður alla þessa gátu? HARÐINDA-DRALTMUR. Allir eldri bændur, að minnsta kosti hér á Suðurlandi, minnast haustsins 1913, vetrarins og vorsins 1914 sem verstu missira í sínum búskap. Ég var illa undir veturinn og vorið 1914 búinn, því að sumarið 1913, sem öllum reyndist erfitt, var mér af- ar vont, því að í norðanveðri um mánaðamótin ágúst— september missti ég hátt á fjórða hundrað hesta af heyi. Var það slæmur undirbúningur undir þau harðindi, sem framundan voru. Þótt ég fargaði óvanalega miklu af skepnum mínum um haustið, langt fram yfir venju, kæmi sumu á fóður, sem aldrei skyldi verið hafa, og gerði allt sem ég hafði vit á til að reyna að sjá mér borgið með það, sem sett var á vetur, var ég þó alltaf síhræddur um veturinn, að ekkert myndi duga. Svo var það um veturinn 1914 á Þorra, að mig dreymdi, að ég væri niðri í kúahlöðunni, sem tók 500— 600 hesta, og var að hringsóla kringum smástabba, 2—3 álnir á hvern vegg, sem var við stoð í miðri hlöðunni. Var ég afar hryggur yfir, að svona lítið skyldi vera eftir í henni. Allt í einu þykir mér faðir minn koma niður stigann, — hann dó 1908. Þóttist ég verða mjög feginn komu hans og fer að útmála fyrir honum, hvílíkt vandræða ástand þetta sé að eiga ekki meira hey en þetta fyrir svo margan fénað, og ekki búinn Þorri. Þykir mér hann ganga í kringum stabbann ofurrólegur og segja svo að lokum með mestu hægð: „Ójá, ekki er það nógu gott, en þó ekki verra en ein- hvern tíma hefur verið áður hér á Laugarvatni.“ Þetta rólega svar hans þótti mér vænt um í svefnin- um. Ekki var þessi draumur lengri, og setti ég hann því lítið á mig og gleymdi honum, þar til ég fór að láta í hlöðuna um sumarið 1914. Man ég þá allt í einu eftir honum, því að þá sé ég, að á sama stað og stabbinn stóð í hlöðunni í draumnum um veturinn, er nákvæmlega jafnstór stabbi, sem eftir hafði orðið um vorið. Ekki af því, að ég hefði ekki getað verið búinn að gefa hann, heldur af því, að ég var að treina hann fyrir kálfa um vorið. Svona rættist nú þessi draumur bókstaflega. Og þótt ég yrði sem allir aðrir fyrir verulegum skaða þetta vor, urðu þó margir verr úti, þar sem ég fargaði svo miklu af skepnum mínum haustið áður. Enda aldrei neitt vit í að setja fénað á gaddinn. (Framhald.) 204 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.