Heima er bezt - 01.06.1963, Síða 20

Heima er bezt - 01.06.1963, Síða 20
Brettingsstaðadalir séðir af Hofsholti. (Ljósm. af málverlci eftir Grím Sigurðsson frá Jökulsá.) Guðjón Þorkelsson bjó að Hofi síðustu 10 ár aldar- innar. Hann var bróðir Árna hreppstjóra í Grímsey, og voru þeir niðjar Þorkels prests, er fórst á messuleið. Fyrstu 30 ár 19. aldar bjó að Hofi Jón Kristjónsson af Buchs-ætt. Hann á marga niðja. Ein dóttir hans var Margrét kona Baldvins Friðfinnssonar á Kotamýrum. Synir þeirra búa nú á Sandhólum á Tjörnesi. Garðar Pálsson frá Garði í Fnjóskadal var síðastur bænda að Hofi. Hann var kvæntur Líneyju Árnadóttur frá Eyri. Þau keyptu jörðina og eiga hana enn. Þau bjuggu þar frá 1931—1937, en fluttu þá heim að Garði. Þau voru síðustu ábúendur á Hofi, en eru nú flutt suður á land. Eyri. „Ásbjörn nefna fer ég fyrst / Flateyjar á daln- um. / Knarrar-byggði eyri yzt / öldu nærri salnum.“ Þannig hefjast Finnbogarímur. Knarrarevri var forna nafnið, en nú er bærinn jafnan nefndur Eyri. Finnbogasaga er að mestu sltáldsaga, einhver hin elzta á íslenzku. En snilligáfa horfins höfundar hefur enn þá mátt og heldur huga lesandans á tuttugustu öld föst- um með lifandi frásögn, svo Eyri á Flateyjardal verður merkur sögustaður. Eyri veruleikans er ekkert stórbýli. Yfir bænum rís Hágöng með urðarhlíð hið næsta, og fellur Dalsá að fjalli. Skammt sunnan við bæinn beygir áin þó fram á sléttlendið. Þríhyrningur myndast milli árinnar, sjávar- ins og fjallsins. Þar er bærinn og túnið örskammt frá sjó, og lokar þó malarkambur og Eyrarhóll að mestu sjávarsýn. Eyrar-land er mikið að víðáttu, en torsótt. Það er allt austan Dalsár, inn til heiðar og suðaustur með sjón- um. Grýtt er hlíðin að ánni hið næsta bænum, en er innar dregur til heiðar skógarhlíð og engjar á slétt- lendi. Þar heitir Eyrarfjall, hið fegursta land. Hjalli breiður er í fjallið ofan við bæinn á Eyri í 200 m hæð, og síðan lægð með háfjallinu. Þar heitir Urðardalur og er talsvert gróðurland. Sumir hyggja að Tóttir, bær Syrpu og LTrðarkattar úr Finnbogasögu hafi verið í Urðardal. Eyri á land langt inn með flóanum, langa strönd með hömrum. Reki mikill er á Eyri. Draflastaða-kirkja eignaðist Eyri á 15. öld, og fylgdi hún Draflastöðum jafnan síðan, unz söfnuðurinn tók við kirkjunni á þessari öld, og „eignum bændakirkjunn- ar“ var skipt milli erfingja Sigurðar eldri Sigurðssonar á Draflastöðum, og hlaut Kristján Sigurðsson á Hall- dórsstöðum í Kinn Eyri til eignar. Árið 1819 flytur að Eyri Jón Jónsson. Hann og synir hans tveir, Jón og Davíð, búa á Evri til 1866. Ganga af þeim feðgum margar sögur. Þeir voru greindir menn og skáldmæltir, ortu meðal annars rímur. Þórhalla hét dóttir yngra Jóns. Hún giftist Ásmundi á Kussungs- stöðum, þeim er orti Finnbogarímur. Sonur þeirra hét Sigtryggur, kallaður „drengurinn“. Hann varð gamall maður, en þó jafnan að sumu barn í háttum, en hafði frábært næmi og minni. Eftir Sigtryggi Ásmundssyni er frásögn þessi orðrétt: „Jón afi minn bjó á Eyri. Einu sinni kom þar maður fyrripart vetrar og barði að dyrum svona í hálfrökkr- 208 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.