Heima er bezt - 01.06.1963, Side 25

Heima er bezt - 01.06.1963, Side 25
Dimmir í lofti og dökknar sær, dynur nú aldan há. Háreistir boðar á hendur tvær, svignar hver rá, súð gefur á. Hugur minn flýgur þá heim til þín, hjarta mitt örar slær. Heima þú sefur, nú svefninn þig vefur, mitt saklausa barn, þú ert vonin mín. Ég er á sænum og sendi með blænum minn söknuð og þrá til þín. Þá kemur hér ljóðið Hún Kata mín og ég: Við kynntumst fyrst í Keflavík hún Kata mín og ég, á Kvennaskólastígnum, undir hólnum. Hún var öllum fremri, svo fríð og elskuleg, svo frjáls og glöð, í nýja græna kjólnum. Það hoppaði í mér hjartað, er hendi rétti hún mér, í hnjánum fann ég titring, en sálin varð sem smér. — Og síðan er ég allur annar maður. Ljóðið Nú vaggar skip er þýtt úr dönsku af S. E.: Nú vaggar skip á úthafs breiðu öldunum og undra-ljóma á sæinn máninn slær. Bjart er yfir báru hvítum földunum og brosir máni á himni undraskær. Þá farmann dreymir um fortíð horfna; hann fær vart blundað þótt taki að morgna. En andvarp hans með öldugjálfri hljóðna nær, er eygló morgunljóma á hafið slær. Síðasta ljóðið heitir Kátir dagar. Höfundur Ijóðsins er Jenni Jónsson: Kátir dagar koma og fara. Hvað er það, að lifa og spara. Dátt við syngjum, dönsum nætur, dröttumst oftast seint á fætur. Vífin ungu vefjum örmum, villumst stundum, gleymum hörmum. Oft um nætur ástin brennur, — öll á burt, er dagur rennur. Þannig áfram, áfram ævin líður, undur fljótt og tíminn aldrei bíður. Svífa í sæludraumi svannar og halur fríður syngja og dansa og tra-la-la. Þessi ljóðasyrpa verður ekld lengri að sinni. Enn þá liggja hjá mér beiðnir um ljóð, sérstaklega frá fyrri ára- tugum, sem ég hef enn ekki getað fundið, en ef til vill koma þau allt í einu í leitirnar. Stefán Jónsson. Hversu Iengi lifa fræin? Það hefur lengi verið áhugamál fræðimanna, hversu lengi fræ plantna gætu lifað í moldinni. Alþekkt er sag- an um múmíuhveitið egvpzka, sem sagt var að haldið hefði grómætti sínum um þúsundir ára. Það mun nú talin þjóðsaga. En hinu verður ekki neitað að lífsþrótt- ur fræja getur haft hagnýtt gildi, í jarðyrkju, t. d. um illgresisfræ, en í öllum jarðyrkjulöndum er baráttan hörð við illgresið og kostar mikið fé og fyrirhöfn. Fyrir rúmum 80 árum gerði amerískur vísindamaður tilraun til þess að fá úr því skorið, hversu lengi fræ ým- issa plantna fengju lifað í mold, þar sem þau ekki höfðu möguleika á að spíra. Hann gróf 20 krukkur með fræi niður í mold. í hverri krukku voru fræ 23 tegunda, 50 af hverri. Mest voru þetta algengar illgresistegundir. Krukkurnar hafa síðan verið grafnar smám saman upp, með tilteknu millibili. Síðan hefur fræjunum verið sáð við hagkvæm skilyrði, til að reyna hver þeirra héldu enn grómætti sínum. Eftir 10 ár voru 12 tegundir út- dauðar. Ein þeirra kom að vísu fram seinna. Að 40 ár- um liðnum voru 14 tegundir úr sögunni, en nú fækk- aði þeim ört, svo að eftir 60 ár voru einungis þrjár teg- undir eftir, sem gátu spírað. Af einni þeirra, lurukku- njóla, sem er náskyldur heimulunjólanum og finnst sem slæðingur hér á landi, var þó einungis eitt fræ eftir spíruhæft af þeim 50, sem í tilrauninni voru. Af ann- arri, náttljósi, voru um 10% spírunarhæf og ein tegund, kóngaljós (ýmsar tegundir þess eru ræktaðar hér í görð- um) var enn svo þróttmikil að um 70% fræjanna spír- uðu. Þessar þrjár tegundir lifðu einnig eftir 80 ár, en allt bendir þó til, að senn sé komið að lokum þessarar tilraunar. Sá Ijóður er þó talinn á tilraun þessari, að ekki voru þar með tegundir af þeim ættum plantna, sem al- mennt eru taldar bera langlífust fræ, svo sem ertublóm- anna. En allt um það er tilraunin skemmtileg, og senni- lega mun fáa óra fyrir því, að fræ geti yfirleitt lifað svona lengi, eða með öðrum orðum, að fræ sem þrosk- azt hefðu kalda sumarið 1882, gætu ef til vill gevmzt enn í jörðinni, og spírað á því sumri, sem nú stendur yfir, ef það fengi vaxtarskilyrði. (Endursagt.) Heima er bezt 213

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.