Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.06.1963, Blaðsíða 30
unni og kíkti inn um gluggana. Ég gat ekki séð neinn inni. Samt opnaði ég kirkjuhurðina og læddist hljóð- lega inn. Björn lá á hnjánum framan við gráturnar. Mér brá, svo að mér lá við að reka upp óp, en áttaði mig svo á, að hann myndi vera þarna sökum þess, að hann hefði þörf fyrir að vera einn með guði sínum. Ég færði mig því varlega aftur í átt til dyranna og læddist út í þeirri von, að ég hefði ekld truflað hann. Ég skammaðist mín svo, að ég gat varla gengið að leiði Dóru og beðið hana fyrirgefningar á allri tor- tryggni minni í hennar garð. En ég gerði það samt og fannst mér líða miklu betur á eftir. Svo gekk ég langt út úr þorpinu. Þegar ég kom heim, var ég dauðþreytt og sofnaði óðar, er ég lagðist á koddann. Mér fannst ég verða að „gera“ eitthvað. Þótt ég ætti að teljast húsmóðirin á heimilinu, var þar allt óbreytt. Anna sá um allt, ég bara hjálpaði til, þegar ég nennti. Hamingjan hjálpi mér, hefði ég þurft að taka við öll- um verkunum! Þá hefði ég gefizt upp eftir viku í þess- ari eilífu hringrás frá morgni til kvölds: elda mat, þvo upp, hita kaffi, þvo upp aftur, skúra og skrúbba, þurrka af og þvo þvotta! Nei, við slíku óaði mig, — og ég sem hafði ætlað að vera svo dugleg húsmóðir! En meðan Anna var við heilsu, þurfti ég engu að kvíða. Hún var bjargið, sem ekki myndi bregðast. En þegar hennar nyti ekki leng- ur við? — Jæja, koma dagar og koma ráð! Nú var ég því ákveðin í „að gera eitthvað“, og að fara að læra hjúkrun, í alvöru að því er ég bezt vissi. Björn brosti glettnislega, þegar ég sagði honum frá þessari ákvörðun minni, en ekki mótmælti hann einu orði, spurði bara, hvenær ég tæki til starfa. „Heizt strax!“ sagði ég. „Mættu þá klukkan sjö í fyrramálið,“ sagði hann spotzkur. — Grútsyfjuð klæddi ég mig um leið og Björn. Hvílík fótaferð, klukkan ekki hálf sjö! — Ég hafði enga lyst á kaffinu, en Bjöm gerði því góð skil. Við leiddumst til sj úkrahússins, og hann sagði mér frá uppskurðinum, sem í vændum var. „Bara einfaldur botnlangaskurður,“ sagði hann. Éor var hin brattasta. Það var svo sem ekki mikið. Ég hafði séð, hve örin eftir hann vora lítil, en Björn brosti í kampinn yfir kjarki mínum. Ekkert átti ég nú samt að gera. Mér fannst það hálf- gerð móðgun og hvíslaði að Birni, hvort hann væri bú- inn að gleyma, þegar ég hjálpaði honum að taka á móti barninu forðum. Nei, hann sagðist engu hafa gleymt, en það væri nú venja, að tilvonandi hjúkrunarkonur aðeins horfðu á í fyrstu skiptin. Jæja, var það þannig. Mér fannst hann segja „tilvon- andi hjúkrunarkonur“ eitthvað svo skrítilega. — Efað- ist hann virkilega um, að mér væri alvara? Það var heitt inni, og ég varð strax miður mín, áður en maðurinn var einu sinni sofnaður. Og svo kom að því, að Björn beitti hnífnum. Ég starði á með saman- 218 Heima er bezt bitnum tönnum. Ég skyldi ekki guggna. En ekki hafði hnífurinn fyrr rist sundur húð mannsins, en ég fór að sjá rautt, hvert sem ég leit. Síðan sá ég ekki neitt, nema brosandi augu Björns fyrir ofan hvíta grímuna. Einhver tók mig í fangið og bar mig fram. Ég skamm- aðist mín agalega, þangað til hjúkrunarkonan hvíslaði að mér, að það sama hefði hent sig í fyrsta sinn sem hún sá uppskurð, og flestar mættu til að yfirgefa skurð- arstofuna, áður en uppskurði væri lokið, svona í fyrstu skiptin. Ég hresstist töluvert við þetta. En gæti ég horft á það sama aftur? Nei, ég ætlaði bara að hjálpa til í stof- unum, eins og ég hafði gert, eftir hádegið, en láta Björn eiga sig með morgunverk sín. Ég held að honum hafi létt, þegar ég sagði honum hikandi þessa ákvörðun mína, og morguninn eftir svaf ég vel út! — Drottinn minn góður, að fara á fætur kl. 6, og stundum fyrr á hverjum morgni, eins og Björn gerði, það náði ekki nokkurri átt! Loks skildist mér þó, að ekki væri von, að hann lang- aði út á kvöldin eftir langan vinnudag. Páll var oft sár- lasinn, og ég vissi að Björn varð að bæta hans störfum á sig líka. Það var ekki hlaupið að því að fá aðstoðar- lækni, sögðu þeir, en höfðu þó von um að fá lækna- nema í nokkra mánuði. Páll varð að fara suður, og of- an á allt annað bættust nú áhyggjur af heilsu hans á Björn. Ég get varla sagt, að við töluðumst við. Hann var svo þreyttur, að hann sofnaði, um leið og hann lagðist á koddann. Ég tók stundum eftir því í miðri setningu, að ég talaði við sjálfa mig. Hann steinsvaf. Stundum kom hann ekki heim, fyrr en seint og síðar meir. Þá hafði hann verið í sjúkravitjunum út í sveit. XI. Eina nóttina vaknaði ég við, að hann stakk böggli niður undir sængina til mín. Ég reis upp og horfði for- vitin á lítinn dökkan drengjakoll og tvö blá augu, sem skinu eins og stjörnur. Hann var bara 11 mánaða og horfði nú á mig með ekki minni undran og forvitni en ég á hann. „Sá er ekki feiminn!“ sagði Bjöm og horfði brosandi á okkur. „Hver á hann?“ spurði ég. „Kona lengst fram í dal. Hún á sjö fyrir og var nú að eignast son í nótt. Ég sá ekki, að neins staðar væri pláss fyrir þann nýfædda, nema ég tæki þennan með mér. Hvernig lízt þér á að fóstra hann um tíma?“ „Vel,“ sagði ég ánægð yfir að fá þennan fallega snáða til að leika mér við, þegar mér leiddist. „Vertu nú mömmuleg og búðu út ból handa hon- um,“ sagði Björn, „á meðan ég fer niður og fæ mér kaffisopa.“ (Framhald.)

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.