Heima er bezt - 01.06.1963, Side 33

Heima er bezt - 01.06.1963, Side 33
um hélt hún áfram: „Ef hann hefur fest fótinn, þá hefur hann reynt og reynt að losa sig. Reynt og reynt, árangurslaust. Get- ur þú hugsað þér aðrar eins kvalir? Að vera brotinn með beinin út í holdið — og fastur! Hugsaðu þér önn- ur eins ósköp, aðra eins örvæntingu — sjö ára drengur — einn, einhvers staðar úti í kolsvörtum brunanum — týndur. Hvað heldurðu, að hver stund hafi verið löng fyrir hann? Manstu ekki, hvað þú sagðir, þegar hann var skírður — og þú varst að tala um tímann? Ég sat þá með hann á brjóstinu. Ég hlustaði á þig, á hvert orð. Ég var svo sæl. Sú stund var stutt. Síðustu dagana hef ég oft hugsað um það, sem þú sagðir. Þeir hafa ver- ið langir, síðustu dagarnir, síðustu næturnar. Tíminn, tíminn hefur verið langur, honum hefur gengið seint að líða hjá mér. Hjá mér, sem þó er ómeidd og í rúm- inu. Hvað þá hjá honum! Hvert augnablik hefur verið honum jafnlangt og mér heill dagur. Máttinn hefur dregið úr honum smátt og smátt. Hvað hefur honum fundizt sá tími langur? Geturðu sagt mér það? Síðast hefur hann varla getað hreyft sig. Þá hefur augnablik- ið ekki lengur mjakzt áfram. Tíminn hefur staðið í stað. Og hvað heldurðu, að þá hafi orðið? Veiztu það? Ég veit það. Hrafninn hefur komið — eina lifandi ver- an, sem á heima í brunanum. Hann hefur komið. Hann hefur sezt rétt hjá honum. Krúnkað. Fært sig nær — og nær — og ráðizt á hann — og hann ekki getað varið sig. Hrafninn. Hann hefur kroppað úr honum augun — lifandi! Heyrirðu það? — Þegar ég kom hingað á sunnudaginn áður en ég gifti mig, þá fundum við Brynj- ólfur lambakónginn, elzta lambið mitt, afvelta, skorð- að upp við hraunbrún. Það var ósjálfbjarga. Hrafninn var búinn að kroppa úr því annað augað, og þó lifði það, þegar við komum að því .... Ég er svo hrædd .... Ég er svo hrædd, að annað eins og þetta hafi kom- ið fyrir hann Kjartan minn .... Bara hann hefði fund- izt, dáinn, ef ekki lifandi, — þá hefði ég getað séð .... þá hefði allt verið gott.“ Hún hélt áfram að gráta og séra Ingimundur þagði sem fyrr og lét hana gráta út. Svo sagði hann: „Þú verður að hætta að láta þessar ljótu hugsanir ná valdi yfir þér, því að þá er voðinn vís. Hugsaðu þig nú um. Nikulás litli var svo uppgefinn, þegar hann skreið inn í hraunholuna, að sennilega hefði hann aldrei kom- ið til meðvitundar aftur, ef leitarmennimir hefðu ekki gengið beint að honum. Það var eins og menn segja hrein tilviljun, en í sannleika Guðs mildi. Það bendir allt til, að einmitt svo hafi farið fyrir Kjartani, hann hafi skriðið inn í aðra holu, aðframkominn af þreytu, og aldrei vaknað aftur, aldrei komizt til meðvitundar. Vissulega hefur hann verið dáinn, þegar hópar leitar- manna gengu þarna alls staðar um og hrópuðu á hann — annars hefði hann látið heyra til sín. Þessu geturðu treyst, Kristín, því að Guð er miskunnsamur. Og gleymdu því aldrei, að Guð hefur gefið manninum frjálsan vilja. Frá vöggunni til grafarinnar er vilji mannsins frjáls fyrir Guði. Guð vill ekki, að menn- irnir séu þrælar heldur frjálsir. Menn bera því ábyrgð á gerðum sínum sjálfir, barn og gamalmenni og allir þar á milli. Mennirnir bera ábyrgð á gerðum sínum og gerðum hver annars. Það er Guð, sem gerir gott. Og nú segi ég við þig enn einu sinni: Láttu huggast, hertu upp hugann. Minnstu þess, að sorgin og fórnin er ör- uggasta leiðin inn í ríki Guðs, ef þú trúir honum. I ríki Guðs er drengurinn þinn nú og þar muntu finna hann, þegar þinn tími kemur, ef þú ert dugleg og treystir skapara þínum. Auðmýktu þig fyrir honum og lofaðu hann og flyttu honum bæn, og þú munt sanna, að þér mun líða vel, mitt í sorginni. Fyrir alla muni rístu ekki upp á móti Guði, því það er sú mesta heimska, sem hugsast getur, því að Guð er ljósið, sjálft ljósið og sjálft lífið. Sá, sem snýr baki við honum, hlýtur að lenda í myrkri og dauða, það er alveg óhjákvæmilegt. Minnstu þess, barn, á hverri stundu, á hverju augnabliki, ann- ars er voðinn vís.“ Nú varð þögn nokkra stund. Kristín var hætt að gráta, en var með ekka. Svo sagði hún: „Þú hefur aldrei átt bam. Ég sé hann Kjartan minn alltaf fyrir mér með augun full af tárum, eins og þegar ég kvaddi hann. Þá rétti hann mér faðminn og bað mig að lofa sér að koma með, en ég sagði nei. Hvemig á ég að geta .... “ Hún var aftur farin að gráta. Hún grúfði sig niður og grét — lágt, næstum hljóðlaust. Séra Ingimundur lét hana gráta um hríð. Svo sagði hann: „Ég get fullvissað þig um það, Kristín, að ef þú snýrð þér í einlægni til Guðs og lofar hann og tilbiður í sorg þinni, þá snýst sorgin í gleði, það er eins víst og sólin skín og gefur birtu; annars verður myrkur í sál þinni. Trúðu mér, Kristín. Ég fer ekld með fleipur. Ég hef margt reynt, þótt þú haldir, að ég hafi aldrei átt barn. En fyrri kona mín dó af barnsförum og barnið líka. Það hefur þú annað hvort ekki heyrt eða þú hefur gleymt því; þú varst þá kornung. Ég unni konunni minni mikið. Við vorum nýkomin hingað, nýgift. Ég hlakkaði til að verða faðir. Við töl- uðum oft um litla barnið og hvað við myndum verða sæl, er við héldum á því og gældum við það. Og ég lofaði Guð með 4jálfum mér fyrir konuna mína og bamið, sem enn var ófætt. Og þó------og þó svipti hann mig þeim báðum. Heldur þú, að það hafi ekki verið sárt? Og hvað átti ég að halda um Drottinn minn? Um hann, sem ég hafði svo oft þakkað fyrir það, sem hann nú svipti mig? Heldur þú, að mér hafi liðið vel? Nei, ég kvaldist. Og af hverju heldurðu, að ég hafi kvalizt mest? Af því, að ég efaðist um gæzku Guðs. Já, jafn- vel um tilvera hans, þótt ég vildi ekki viðurkenna það fyrir sjálfum mér. Þangað til ég skildi. Ég sagði við sjálfan mig: Guð er lífið, Guð er Ijósið, Guð er kær- leikurinn. Og Guð er ótal margt meira gott, sem er fyrir ofan skilning minn. Þess vegna hljóta allar ráð- stafanir hans að vera góðar, þótt ég skilji þær ekki--- og þótt þær ljósti mig. Ég á aðeins að beygja mig. Ég á að beygja mig í duftið og lofa hann. Þá sendir hann Heima er bezt 221

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.