Heima er bezt - 01.06.1963, Page 34

Heima er bezt - 01.06.1963, Page 34
mér huggun og hann gagntekur mig, og enginn verður sælli en ég. Því að sá, sem leitar gleðinnar í þessum heimi, hann verður fyrir sárri sorg. En sá, sem leitar Guðs í sorginni, hann finnur gleðina. Minnstu þess nú, Kristín, að ég tala af reynslu .... “ Daginn eftir kom Ólöf á Syðri-Völlum. Var hún á Bökkunum næstu vikur, eða þangað til Kristín var orðin allhress. Fregnin um þennan hryggilega atburð barst um alla sýsluna og jafnvel lengra. Alönnum varð og kunnugt um, hve móðir litla drengsins hafði tekið sér nærri hvarf hans. Allt var rakið, sem máiinu kom við. Allt kom fram: Skyndi-ákvörðun Sveinka að kvænast, rétt eins og honum hefði vitrast nauðsyn þess undir lestrinum. Ferðalag þeirra hjóna út í Tungur. Og að lokum þátt- ur Gvendar, og það var aðalþátturinn. Auðvitað var það í raun og veru Gvendur, sem bar ábyrgðina á því, að strákamir fóru í þetta ferðalag. Þvaðrið í honum við strákana sína um Gljúfurneskirkju hafði valdið því, að tvíburarnir fóru upp í hraun. Það duldist engum. Það var meiri ólánsmaðurinn! Fæstir áttu orð til að útmála það eins og vert var. Það var nú svo komið fyrir Gvendi, að hann átti bágt með að fá sig til að fara upp að Bökkunum. Og þó gat hann ekki komizt hjá því. Honum fannst einatt hann eiga þangað erindi. En hann fækkaði komum sínum þangað eins og hann gat. Honum duldist ekki, að hann var þar enginn aufúsugestur. Reyndar sýndi honum það enginn viljandi, nema Guðrún. Hún fór ekkert dult með álit sitt á honum, þótt hún að vísu segði ekki margt. Gvendur tók sér allt þetta svo nærri, að hann vissi varla sitt rjúkandi ráð. Hann var jafnvel farinn að efast um, að það gæti gengið, að hann færi að láta gifta sig eins og á stóð. Hann minntist á það við Möngu og hún sagði, að það væri bezt fyrir hann að fara upp að Faugum og spurja prófastinn. Það gerði Gvendur. Prófastur horfði á Gvend og vissi varla, hvernig hann átti að taka þessari spurningu. Hann minntist þess, að Gvendur hafði verið alltregur til að ganga í hjónaband. Gat skeð, að hann væri nú fallinn frá því enn einu sinni og ætlaði að nota þennan sorgar-atburð sem átyllu, eða spurði hann í hjartans einfeldni? Og prófastur sá brátt, að svo mundi vera. Hann brosti og sagði, að hann myndi framkvæma þetta embættisverk eins og önnur, enda væri búið að lýsa og áltveða giftingardag. Með það fór Gvendur. Nokkrum dögum síðar lagði hann af stað í kaupstaðinn til þess að sækja brennivínið í veizluna. Hann kom við á Faugum. Þar var þá staddur Þórar- inn sýslumaður. Hafði hann verið að þinga og var nú á útleið. Fylgdarmenn hans tveir voru ekki vel kunn- ugir leiðinni, rötuðu að vísu, en óvanir að ferðast yfir sandana. Aftur á móti hafði Gvendur oft farið yfir þá og var öllum leiðum kunnugur, þótt ekki væri hann talinn neinn sérstakur ferðagarpur. Séra Ingimundur benti nú svslumanni á, að ekki myndi saka þótt Gvend- ur fylgdist með þeim vestur yfir sand. Sýslumanni leist vel á það. Svo það varð úr, að þeir riðu allir saman eins og leið lá út sveitina, sýslumaður, fylgdarmenn hans og Gvendur á þeim jarpa, sem nú var orðinn gam- all og allstirður. Skammt fyrir austan Syðri-Velli mættu þeir manni. Það var Steini á Bökkunum. Ætlaði hann varla að trúa sínum eigin augum, þegar hann sá, að Gvendur var kominn þarna í fylgd með sýslumanni. Minntist hann nú ummæla Gvendar kvöldið góða, er þeir voru að koma frá lambánum, vorið, sem þeir voru á Bökkunum og talið hafði -borizt að Katli Björnssyni fyrrverandi sýslumanni, sem þá var að kveðja. Steinn kastaði kveðju á Gvend og sagði: „Svo þú ert kominn í fylgd með sýslumanni.“ Gvendur heyrði ekki. Hann barði fótastokkinn og hélt áfram ferðinni án þess að svara Steina. Svona hélt ferðinni áfram alla leið vestur á sand. Gvendur var jafnan nokkurn kipp á eftir og barði fóta- stokkinn. Þeir höfðu komið við á bæ einum rétt hjá sandinum. Þar fréttu þeir, að óvenju mikið væri í vötn- unum, benti jafnvel ýmislegt til, að hlaup væri í aðsigi. Sýslumaður vildi hraða ferðinni enn meir, er hann heyrði þessar fréttir, svo að hann kæmist leiðar sinnar áður en væntanleg hlaup byrjuðu. Reið hann allgreitt, er hann fór frá bænúm. Varð það til þess, að Gvendur dróst enn lengra aftur úr en áður. Þegar þeir komu að aðalvatninu, riðu þeir upp með því um hríð, námu svo staðar litla stund, en héldu því næst út í. Hirtu þeir ekki um að bíða eftir Gvendi. Sá hann þá hverfa niður fyrir bakkann, því að há sandalda var austan megin við vatnið. Þegar Gvendur kom upp á ölduna, sá hann að þeir voru komnir alllangt út í vatnsflauminn. Skipti það engum togum, að hlaup kom úr jöklinum og kollvarpaði bæði hestum og mönnum. Drukknaði annar fylgdarmaðurinn þegar, en hinn komst á fætur og svo sýslumaður. Varð hann viðskila við hest sinn, en fylgdarmaðurinn gat náð í taglið á sínum hesti og bjargast þannig til sama lands. Kom nú önnur alda og sló sýslumanni flötum. Þó komst hann enn á fætur og óð knálega í áttina til lands. Á allt þetta hafði Gvendur horft eins og í leiðslu, þar sem hann sat á þeim jarpa á bakkanum. Það þurfti nokkurn tíma til þess að átta sig á því, sem nú var að gerast. Höfðingi var í lífsháska. Og það sem út yfir tók: Réttlætið var þarna að brjótast um út í ánni, að því komið að drukkna. Sýslumaður óð enn í áttina til lands og jökulvatnið náði honum í axlir. Gvendur kippti í tauminn, barði fótastokkinn og reið þeim jarpa út í fljótið. Hann stýrði klámum beint á móti sýslumanni og hugðist myndu bjarga lífi hans. En er hann átti eftir nokkra faðma að honum, kom þriðja flóðaldan. Þá hvarf Réttlætið í djúpið. Sá jarpi skelltist á hliðina og Gvendur losnaði úr söðlinum. Þeir druldmuðu báðir, Þórarinn sýslumaður og Guð- mundur á Bakkakoti. Sögulok. 222 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.