Heima er bezt - 01.05.1964, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.05.1964, Blaðsíða 6
ungra manna starfsorku og starfsgleði. Ungmennafé- lögin voru þá ung í landinu og á þeim þróttmikill æsku- bragur. Gekk Bjarni snemma í fylkingu þeirra, hinna ótrauðu, ósérplægnu og hugsjónaríku vormanna Islands. Það var auðvitað, að Bjarni gerðist kennari að námi loknu. Hann hafði búið sig undir það starf og nýút- skrifaður var hann ráðinn kennari við barnaskólann á Blönduósi. Var það upphaf að löngu og farsælu kenn- arastarfi hans og varð ekki slitrótt, hélzt óslitið í fjöru- tíu og tvö ár. Sveitamannseðlið var svo ríkt í Bjarna, að hann gat ekki fest rætur í kaupstað. Hann þurfti að hafa gróna jörð undir fótum og fyrir augurn hið næsta sér. Hann efndi til búskapar heima í Litladal vorið 1916 og um ieið gerðist hann kennari í Svínavatnshreppi, heima- byggð sinni. Bjarni kvæntist vorið 1923 Önnu Sigurjónsdóttur Jóhannssonar hreppstjóra í Mjóadal Sigvaldasonar. Móðir hennar, kona Sigurjóns, var Ingibjörg Jónsdótt- ir frá Móbergi Guðmundssonar. Anna er alsystir Jóns Baldurs fyrrum kaupfélagsstjóra á Blönduósi. Hún er hin bezta og merkasta kona og hefur verið manni sín- um farsæll og góður förunautur. Þau hafa eignast sex börn og eru fimm á lífi, tveir synir og þrjár dætur. Árið sem Bjarni festi ráð sitt keypti hann Blöndu- dalshóla, gamalt prestssetur, og þar hafa þau hjón bú- ið til skamms tíma, en nú er Jónas sonur þeirra tekinn við búi af þeim. Hólar er mikil jörð og góð að fornu og nýju, en var í nokkurri niðurníðslu er Bjarni kom þar, túnið ekki mikið og þýft og byggingar hrörnað- ar. I höndum hans hefur jörðin tekið stórfelldum stakkaskiptum, svo nú er allt á annan veg um að litast þar, en áður var. Geysimikil nýrækt, gott íbúðarhús, hlöður miklar og peningshús blasa þar við augum, all- mikill matjurtagarður og fallegur trjáreitur. Það þykir að vísu engin nýjung nú á dögum, að jarðir gerbreyt- ist til batnaðar, jafnvel svo, að sum kotin hafa orðið stórbýli og vaxið fram úr gömlu höfuðbólum, í hönd- um dugmikilla bænda. En það hefur suma hent, að fara fullgeyst og kollhlaupa sig og auðnast svo ekki að njóta ávaxtanna af erfiði sínu. Bjarni í Hólum hefur alltaf kunnað að sjá fótum sínum forráð, hygginn og athug- ull og því voru framkvæmdir hans í jarða- og húsabót- um jafnan á öruggum grunni. Snemma voru Bjarna falin ýmis trúnaðarstörf. Hann var aðeins 26 ára er hann var skipaður hreppstjóri í Svínavatnshreppi og tók þar við af föður sínum. Því starfi gegndi hann, meðan hann bjó í hreppnum. Síð- ustu árin hefur hann verið hreppstjóri í Bólstaðarhlíð- arhreppi og er enn. Fjölmörg störf önnur hafa á hann hlaðizt í þágu sveitar og samfélags og öllum gegnt af þegnskap og trúmennsku. Það er almæli, að Bjarni hafi verið góður bóndi og góður kennari. En af öðrum störfum sem hann hefur unnið að um dagana hygg ég, að þrennt hafi verið hon- um hugstæðast: Ungmennafélagsskapurinn, samvinnu- hreyfingin og þjóðleg fræði. Á ungmennafélögin er Bjarni Jónasson. Myndin gerð af Ríkharði Jónssyni og gefin af sveitungum Bjarna á sjötugsafmœli hans. Afsteypa i Húna- veri. þegar minnzt. Fyrir þau vann hann mikið starf og gott, bæði í félagi sínu í heimasveitinni og í Sambandi ung- mennafélags Austur-Húnvetninga, var þar í stjórn og jafnan í fremstu röð áhugamanna um málefni þeirra. Kaupfélögin og samvinnufélagsskapurinn yfirleitt hafa átt og eiga góðan og óhvikulan stuðningsmann þar sem Bjarni er. Hann var í áratugi deildarstjóri í Kaup- félagi Húnvetninga og hefur jafnan verið í fremstu röð forustumanna þess. Hann hefur kynnt sér sögu félags- ins eins og þættir úr sögu þess, sem hann ritaði í Sam- vinnuna á sínum tíma bera vitni um. Bjarni fékk þegar ungur að aldri áhuga á þjóðlegum fræðum, einkum ættfræði og sögu Húnavatnssýslu. Hann var einn af forgöngumönnum þess að stofnað var Sögufélagið Húnvetningur 1938 og í stjórn þess frá upphafi. Hann hefur lagt drjúgan skerf til sagnaþátta- safns, er félagið hefur staðið að og gefið út og á þar Framhald á bls. 179. 174 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.