Heima er bezt - 01.05.1964, Page 7

Heima er bezt - 01.05.1964, Page 7
JÓNAS A. HELGASON: Davið Stefánsson frá Fagraskógi. (Ljósm. B. S.) I. Snautt er líf án lista og snilli, — fátt um fyrirheit. Því er þeim er þjóðum lýsa aldrei ofþakkað. Gott er að minnast göfugs þjóðskálds er látið lifir. Guð og gæfan gefi íslandi fræja þess fagurvöxt. II. Það heyrðist stuna er boginn brast — þá blævana hún þögn snerti strenginn. Og þjóðarhörpunnar Ijúfasta lag svo leikur nú fimlega enginn. En Fjallkonu tárperlur falla mn kinn er hún faðmar sinn vaskasta drenginn. Snemma í víking um himnanna höf hann hóf sig í svansins líki. í lyftingu stóð hann þar fagur og frjáls, — það fannst ekki neinn hans glíki. Og guðirnir kornungan kjöru hann konung í andans ríki. Og trúmennska sjálfs hans varð sigurför þar, — af sjáandans guðmóði brann 'ann. Og gersemar margar á gnoð sína hann bar. Og Golíat heimsins vann 'ann. I þjáning og afneitun uppskeran var: eldinn loinn dýrasta fann 'ann. Svo hóf hann að syngja. Það hlustar hver sál, hvert hjarta, hvert blóm, sem á rætur. Hann syngur um vorið, æsku og ást og unaðsdýrð sólbjartrar nætur, — um harmsáran trega og höfga þrá. Af hrifningu moldin grætur. í auðmýkt svo gaf hann ættlandi og þjóð, þann auð, sem ei kennist til málma. Hann vann fyrir jafnrétti, frelsi og frið á feigðaröld blóðugra skálma. Og samstillt krýpur nú þjóðin í þögn, — í þökk fyrir Davíðs sálma. Davíé Stefánsson frá Fagraskógi Pjóðskálcl íslenclinga Heima er bezt 175

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.