Heima er bezt - 01.05.1964, Page 19
ÞATTUR ÆSKUNNAR
NAMSTJ
RITSTJORI
HVAÐ UNGUR NEMUR
Frá Fyggáum Breiáaf jaröar
1. FÖGUR OG SÖGULEG STRANDLENGJA.
2. í SUMARLEYFI í ELLIÐAEY.
Flinn 18. janúar síðastliðinn lauk merkum áfanga í
vegagerð á Snæfellsnesi. Þann dag var með hátíðlegri
athöfn opnaður nýr bílvegur undir Ólafsvíkurenni. Er
þessi vegagerð undir Ólafsvíkurenni merkasti tæknileg-
ur sigur í vegamálum hér á landi, allt til þessa tíma.
Næstu tæknilegir stórsigrar verða væntanlega: Stráka-
vegur úr Fljótum til Siglufjarðar og vegurinn fyrir Ól-
afsfjarðarmúla, milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
Á árunum 1927—30 átti ég þess kost að fara ríðandi
á sólríkum blíðum sumardögum alla leiðina frá Önd-
verðarnesi á Snæfellsnesi í kringum Breiðafjörð, með
öllum sínum innfjörðum, vogum og víkum vestur að
Reykhólum. Þá átti ég vitanlega eftir allvænan spöl
vestur á Látrabjarg, en þangað var ferðinni heitið sum-
arið 1927, en af sérstökum ástæðum varð ég að hætta
við þá ferð. Ég' var einhesta á duglegum, þægilegum
hesti, sem ég keypti í byrjun ferðarinnar, og ætlaði mér
svo að selja, er ég hefði lokið ferðinni og farið í kring-
um Breiðafjörð vestur að Bjargtöngum. Þar ætlaði ég
að taka hnakkinn á bakið, komast að Sauðlauksdal, fá
mig fluttan yfir fjörðinn til Patreksfjarðarkauptúns og
ná þar í skipsferð til Stykkishólms. Þetta fórst fyrir
hjá mér, en síðan hef ég farið mikið af þessari leið, en
ekki í einunt áfanga.
Á þessari fögru strandlengju, umhverfis Breiðafjörð,
voru þá fáar leiðir bílfærar, en öll leiðin sæmilegur
reiðvegur. Þó voru á leið þessari tveir viðsjálir staðir,
jafnvel fyrir lausríðandi ferðafólk. Þessir tveir hættu-
staðir voru leiðin undir Ólafsvíkurenni og Búlands-
höfði. En nú er sigurinn unninn í baráttunni við þessa
þjóðfrægu hættustaði. Nú getur hver gætinn, góður bif-
reiðarstjóri ekið bíl sínum alla leið frá Flellissandi í
kringum Breiðafjörð vestur á Látrabjarg. Öll leiðin er
tæplega 500 km, en öll leiðin frá Reykjavík vestur í
kringum Snæfellsnes og kringum Breiðafjörð vestur á
Látrabjarg mun vera 800 til 900 km. — Þegar ég fór
mest af þessari leið ríðandi fyrir rúmum þrjátíu árum,
held ég að fáir hafi verið svo bjartsýnir að búast við
því, að árið 1964 yrði orðið vel bílfært alla þessa löngu
leið. F.n nú hefur draumurinn unt bílveginn rætzt, fvrr
en nokkur bjóst við. Stórvirk vinnutæki, sem ekki
þekktust þá, hafa unnið kraftaverk, ásamt hugviti og
verktækni.
Ólafsvíkurenni er þverhnípt móbergsfjall allhátt og
fellur úthafsbrimið upp að rótum fjallsins. Skriðuföll
eru þarna alltíð og grjóthrun. Þarna lá þjóðleiðin undir
móbergsklettunum með úthafsölduna á aðra hönd. Um