Heima er bezt - 01.05.1964, Síða 24

Heima er bezt - 01.05.1964, Síða 24
Þá hefur í nokkrum bréfum verið beðið um ljóðið Maður og kona, sem þau Sigurður Ólafsson og Soffía Karlsdóttir sungu saman á hljómplötu. Höfundurinn er Jenni Jónsson: Hann: Á hveitibrauðsdögunum, kát varstu þá svo kelin og ástrík og broshýr á brá nú bjástrandi og rexandi berð þér á lær og bægslast um hlaðið svo nágranninn hlær. Aha — oho — aha — oho. Nú bjástrandi og rexandi berð þér á lær, og bægslast um hlaðið svo nágranninn hlær. Hún: Ó, áður var indælt, nú umbreyting er þú alltaf við búverkin hjálpaðir mér, bónaðir gólfið og bauðst til að þvo bollana og diskana og kysstir mig svo. Aha — oho — o. s. frv. Hann: Þú andlit þitt málar svo illt er um vik svo eldrauðar varir og brúnimar strik í eyrun svo hengir þú glingur og gler það get ég ei liðið svo smekklaust það er. Aha — oho — o. s. frv. Hún: Nú ef þú ert heima og átt eitthvert frí þú óðara bælir þig sófanum í. Þú görmunum hendir í gólfið hjá mér ég get ekki afborið letina í þér. Aha — oho — o. s. frv. Hann: Á kvöldin þá börnin loks komast í ró það kvelur mig löngum, ég umber það þó þá hengir þú vírmsl í hárið á þér svo hreint enginn friðtur á koddanum er. Aha — oho — o. s. frv. Bæði: Ef kærleikur ríkir milli konu og manns ef konan er ástrík og viljinn er hans þá erjur og ákærur engu fá breytt því ástin það mildar og þau em eitt. Þá kemur hér lítið lióð fyrir yngstu lesendurna, sem heitir Mömmuleikur. Ómar Ragnarsson höfundur Ijóðs- ins hefur sungið það inn á hljómplötu: Má ég vera með þér úti í mömmuleik í kassa, sem er bak við húsið. Við skulum hafa heljarbú hesta kindur og eina kú. Ég er mamma, en þú ert pabbinn, við emm bæði hjón og þessir bangsar eru börnin okkar Bíbí og Hannes Jón. 192 Heima er bezt Ég skal elda matinn oní þig og eftir það skúrarðu fyrir mig. Ég fer oní bæ og ég fæ mér dragt, pels og kjól og kápu. Ég fer í saumaklúbb á kvöldin og kannski þú á fund þegar þú ert búinn að þvo upp og þurrka dálitla stund. (En strákurinn vill ekld þvo upp og fara í mömmuleik og stelpan fer að gráta og kallar á heimavarnarliðið): Mamma, hann er að hrekkja mig, Mamma, hann er að svekkja mig Mamma, komdu og tuskaðu hann til takt’ann og rassskelltu hann hann vill aldrei gera eins og ég vil. Mamma, sko nú er hann að apa eftir mér, ég skal aldrei vera með þér. Þú ert svo mikið hrekkisvín og ættir bara að skammast þín. Ó mamma, komdu til mín. Að lokum birti ég hér ljóð, sem oft hefur verið beð- ið um. Það heitir Síldarvalsinn. Höfundur er Steingrím- ur Sigfússon: Syngjandi sæll og glaður, til síldveiða nú ég held það er gaman á Grímseyjarsundi, við glampandi kvöldsólar eld. Þegar hækkar í lest, og hleðst mitt skip. Við háfana fleiri og fleiri svo landa ég síldinni sitt á hvað í Dalvík og Dagverðareyri. Seinna er sumri hallar, og súld og bræla er þá held ég fleyi til hafnar í hrifningu skemmti ég mér. í dunandi dansi, við dillandi spil og dansana fleiri og fleiri, því nóg er um hýrevg og heillandi sprund á Dalvík og Dagverðareyri. Ennþá bíða hjá mér beiðnir um Ijóð, sem ég hef ekki getað svarað og þar á meðal er bréf frá tveimur ísfirzk- um stúlkum, en þær rituðu svohljóðandi stöku aftan á umslagið: Má ekki týnast, því síður sýnast bögglast né brjótast, berist sem fljótast. Ég þakka ungfrúnum bréfið og stökuna. Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.