Heima er bezt - 01.05.1964, Blaðsíða 36
280. Lögregluna! A nú að sækja mig
og taka mig fastan! En þá heyri ég rödd
Walls verkfræðings kalla upp: Nei,
frammi við dvrnar. Drengurinn sá arni
er saklaus! Eg skal skýra frá þessu ....
281. Wall verkfræðingur er allmiklu
ráðandi í vélaverksmiðju-rekstrinum, og
maðurinn með vindilinn andmælir hon-
um ekki. Verkfræðingurinn fer fram á
að segja honum sjálfur alla söguna um
bílinn.
282. A leiðinni frá skrifstofunni segir
Wall verkfræðingur við mig: Eg er ekki
búinn að launa þér björgun dóttur
minnar. Er nokkuð sem ég get gert fyrir
þig? — Eg bið hann að tala máli félaga
minna og reyna að breiða yfir sök þeirra.
283. Wall verkfræðingur biður mig þá
að fara með sér til þessara slysapilta, og
ég er fús til Jress. Og uni kvöldið fer ég
með honum til Jieirra Serkis, Áka og
Kláusar, sem allir eru saman að vanda.
284. Verkfræðingurinn heldur alllanga
ræðu yfir hausamótum strákanna og
skýrir fyrir þeim að lokum, að það megi
þeir þakka mér að sleppa við allar illar
afleiðingar gerða sinna, því að ég hafi
beðið svo innilega, að þeim væri hlíft.
285. Þegar Wall verkfræðingur var far-
inn, og við fjórir einir eftir, rjúka allir
strákarnir á mig og klemma mig og
kreista í Jrakkarskyni og eru alveg í loft-
inu yfir að mér skuli hafa tekizt þetta
svona ágætlega!
286. Þegar verkfræðingurinn seinna
biður okkur að hjálpa til að safna fatn-
aði handa fátæklingum í hernámslönd-
unum, erum við allir fúsir til Jtess, — og
spörum nú hvorki kjaft né krafta, segja
strákamir þrír.
287. Okkur gengur söfnunin vel. Og
einn daginn áræði ég loks að leita til al-
ræmda svíðingsins og maurapúkans Fúk-
sens gamla. Og hann rausnast til að gefa
mér gamlan yfirfrakka.
288. Feginn og talsvert lireykinn fer ég
á burt frá einkabýli karlsins, en rétt í
því ég er að fara út um garðshliðið, kem-
ur karlinn hlaupandi á eftir mér og kall-
ar hástöfum: Bíddu, bíddu, drengur. Ég
Jrarf að segja þér nokkuð!