Heima er bezt - 01.12.1964, Blaðsíða 32
ÞATTUR ÆSKUNNAR
HVAÐ UNGUR NEMUR
RITSTJORI
NAMSTJ.
STEFAN JONSSON
JAMES HASTINGS:
BETLEHEM — borg Davíés
Lúk. 2, 4.
Engan stað Biblíunnar kannast þú betur við en Betle-
hem. Hún er sjálfsagt fyrsta borgin, sem þú lærðir um
í landafræði, því að hún var staðurinn, þar sem Kristur
fæddist. Þó þér þyki nú langt síðan það skeði, þá á
Betlehem sér miklu-miklu lengri sögu. í þúsundir ára
hefir þorp verið á þessum stað, t. d. á dögum Jakobs,
en þá hét það ekki Betlehem heldur Efrath.
Þær eru fjórar sögumar um Betlehem í Biblíunni.
1. Fyrst er sagan um það, hvernig dauða Rakelar,
konu Jakobs, bar að höndum rétt fyrir utan Betlehem.
Þú manst, hve harmi lostinn Jakob varð, og að hann
reisti súlu á gröf hennar. Enn er til staður í námunda
við Betlehem sem nefndur er „Gröf Rakelar“. Súlan er
horfin en í hennar stað komin grafhvelfing, er Serkir
hafa gert. í fyrra stríðinu, þegar hinar sigursælu her-
sveitir hershöfðingjans Allenby tóku Jerúsalem og nær-
liggjandi héruð, þá vom herdeildir sendar til þess að
gæta Betlehem og grafar Rakelar.
2. Önnur sagan er sagan um Rut. Þú manst að Rut
vildi ekki yfirgefa tengdamóður sína Noomi; og hvern-
ig hún tíndi saman axhelmur á ökrum Betlehems; að
hún giftist Bóasi, góðhjarta bóndanum, sem átti akrana,
er Rut tíndi öxin á. Þú manst líka hvernig hún, Bóas og
Noomi bjuggu öll hamingjusöm saman í Betlehem, og
að Rut ól bam, er hún nefndi Obeð. Þetta barn óx úr
grasi og eignaðist son að nafni Ísaí.
3. Og þá erum við leiddir að þriðju sögunni, því Ísaí
fæddust 8 synir og þeirra yngstur var Davíð, smalinn,
sem varð konungur Israels.
Davíð var, eins og þeir eru Betlehemsbúar yfirleitt,
mjög harðgjör unglingur. Fólk, sem hefir vit á, stað-
hæfir, að það sé eitthvað efni í drykkjarvatni íbúanna
j Betlehem, sem geri þá svo íturvaxna og hugrakka.
E. t. v. er það þessvegna, sem svo margir þeirra eru fjár-
hirðar. Það eru aðeins hugrakkir menn, sem færir eru
um að taka að sér fjárvörzlu í Gyðingalandi, því oft
verða þeir að hætta lífi sínu til varnar búsmala sínum.
Harðgerðasti foringi Davíðs, Jóab, var sveitungi hans.
Það var í þetta tæra kalda vatn uppsprettunnar í Betle-
hem, sem löngun Davíðs varð svo sterk, þegar hann var
fangi Sáls konungs. Þú manst án efa eftir hugnæmu
sögunni af því, er þrír félagar Davíðs komust að þess-
ari löngun hans, og hvernig þeir hættu lífi sínu við að
færa honum vatnið til þess að slökkva þorstann. En eins
og þú manst, þá tók Davíð við drykkjarkrukkunni úr
höndum þeirra, en hellti vatninu sem fórn til Guðs, þar
eð hann áleit, að það væri of dýrmætt til drykkjar.
4. Og svo komum við að síðustu og um leið fegurstu
sögunni um Betlehem. Hún er í Nýja testamentinu.
Hana þekkir þú svo vel, að engin þörf er að endur-
segja hana hér. Fjárhirðarnir og englamir, gistihúsið, og
barnið sem var Kristur Frelsarinn — þú hefir þekkt og
unnað þessu öllu síðan þú varst smábarn. Það er ekld
aðeins að þetta sé bezta sagan um Betlehem, heldur er
það og bezta og fegursta saga heimsins.
Langar þig ekki til að fara og sjá staðinn þar sem
allir þessir atburðir hafa skeð, borgina þar sem Kristur
fæddist? Við skulum vona að svo verði. Hver veit?
Langar þig til þess að vita hvernig borgin lítur út í dag?