Heima er bezt - 01.01.1965, Side 8

Heima er bezt - 01.01.1965, Side 8
SR. GISLI BRYNJOLFSSON: Pórö ur Tómasson satnvöréur í Skógum egar þar að kemur, að tekið verður upp stjórn- málasamband milli mannheima annars vegar og heima álfa, huldufólks og annarra þjóðsagna- persóna hins vegar, — þá er ég ekki í neinum vafa um það hver verður okkar fyrsti ambassador í því vinsamlega ríki. Það verður enginn annar en Þórður Tómasson frá Vallnatúni, safnvörður í Skógum undir Eyjafjöllum. Enda þótt víða séu þéttar byggðir álfa og huldu- fólks á íslandi, hygg ég að hvergi sé þar skemmra milli bæja heldur en í hinni fögru Eyjafjallasveit. Þegar mað- ur er þar á ferð í heimi þjóðsagnanna, þá er gott, að Safnvörðurinn i riki sínu. hafa Þórð fyrir fylgdarmann, já raunar hygg ég, að þar eigi enginn að leggja land undir fót án þess að hafa tryggt sér föruneyti hans fyrirfram. Það var auðsótt mál að fá hann í ökuferð að morgni fagurs vordags í júníbyrjun sl. Ég hafði þegið hjá hon- um góða gisting um nóttina og við hófum dagsverkið með því að ganga um byggðasafnið. Að því loknu setj- umst við upp í fólksvagninn og ökum út með Fjöllum. Þau eru sérstaklega hýr á brá og tíguleg í lognkyrrð þessa vormorguns. Strax þegar komið er út yfir Skógá, snýr Þórður út af veginum og við ökum upp að Drangshlíðardal, eftir nýjum, upphleyptum vegi undir hömrunum, þar sem Skógá rann áður. Þegar hún var brúuð í fyrra, var henni veitt austur á sandinn, svo að unnt væri að gera þessa vegabót. — Við förum ekki alla leið heim að bæn- um, en staðnæmumst við stóra móbergskletta, sem standa dökkbrúnir upp úr grænni grundinni. Hér heita Grimmdarsteinar — ekki Grindarsteinar eins og sum- ir segja. — Hver saga er til slíks nafns, þar sem allt um- hverfið andar frá sér mildi og fegurð og friði? Fyrir löngu, löngu — það var á 13. öld — bjó bóndi einn í Skógum. Hann var auðugur að fé. Hann átti son, sem var á barnsaldri þegar þessi saga gerðist. Eitt sinn var hann að járna hest í því plássi, sem heitir Drangs- hlíðardalur. Hélt sonur hans fætinum. Þegar hann var að reka eina fjöðrina, segir hann við drenginn: „Hvar heldurðu hún komi út?“ „Einhvers staðar fyrir ofan hnéð,“ svaraði drengurinn. Við þetta varð bónda svo skapbrátt, að hann rak hamarinn í höfuð drengsins og varð það hans bani. — Upp af banablóði barnsins spratt netlustóð — og sjá: Enn í dag standa þessi nötrugrös í þéttum krans undir einum klettinum, sem bera nafnið Grimmdarsteinar. Þórður Tómasson hefur lokið sögu sinni. Þar sem við stöndum þarna á grænni grundinni, undir skjólsælum hlíðum Skóganúps þá er eins og leggi einhvem óhugn- að ógæfunnar frá þessari gömlu sögn inn í yl og birtu þessa blíða vormorguns. 4 Heitna er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.