Heima er bezt - 01.01.1965, Page 13

Heima er bezt - 01.01.1965, Page 13
S. B. OLSON: LANDNAMSÞÆTTIR FRIÐRIK A. FRIÐRIKSSON ÞÝDDI (Framhald) Fólk þetta var úttaugað eftir ferðalag, sem aldrei ætlaði að enda, kunni ekki orð í ensku og var þvínær peningalaust — átti ekkert nema lítilfjörlegar pjönkur sínar. Það var mjög nauðuglega statt. Hvergi var næt- urgistingu að fá, né heldur máltíð, því að hvorki fyrir- fannst gistihús né matsöluhús, — ekkert nema verzlan- irnar, sem seldu matvörur, en ekki mat. Með einhverju móti — hvernig verður aldrei upplýst — hafði fólki þessu verið gert skiljanlegt, að í Millwood byggi íslenzk fjölskylda, og var því svo leiðbeint heim til okkar. Foreldrar mínir tóku þeim afar vingjarnlega. Móður minni var það sönn nautn, — það veit ég með vissu — að bæta úr brýnustu þörfum þeirra. Og okkur var það öllum ánægja, að fá heim til okkar þessa ferðalanga og samlanda frá okkar eigin kæra íslandi. Þá knýtti það og áhugatengsl milli okkar og þeirra, að til stóð, að þau gerðust landnemar í sömu byggð og við. Eftir miklar og alvarlegar bollaleggingar um, hversu leysa skyldi bráðast aðkallandi vandræði nýkomnu fjölskyldunnar, var það samþykkt af báðum aðilum, að hún skyldi deila við okkur hinu ófullkomna skýli okkar þann stutta tíma, sem eftir var, unz við værum öll á förum út í hina fyrirhuguðu nýlendu. Loks rann svo sá dagur upp, seint í október, að sú ferð var farin, um 50 km leið í norðvestur frá Mill- wood. Skýjað var og kalt þennan dag og dálítið frost kom- ið í jörðu, nóg til þess, að kerran hossaðist með braki og brestum á ósléttum veginum. Hvílíkt eymdar ferða- lag! Þegar við höfðum ldöngrazt upp dalbrekkuna og vorum komin upp á jafnsléttu, fengum við á móti okk- ur strekkingsvind, sem jók mjög á vanlíðan okkar. Þar var líka æði óhugnanlegt umhorfs — allt kolsvart eftir sléttueld, sem lagt hafði landið í auðn nokkrum vikum áður. Um hádegið áðum við hjá nýbýlingi nokkrum og tókst að láta okkur hlýna og sefa hungrið. Eftir stund- arhvíld vorum við aftur orðin vel hress og héldum af stað, snerum bökum í vindinn og bröltum áfram. Það dimmdi snemma og ákvörðunarstaðnum náðum við ekki fyrr en seint um kvöldið í kolamyrkri. Á liðnu sumri hafði faðir minn fengið svo sem tveggja vikna leyfi frá vinnunni og varið þeim tíma til að undirbúa húsaskjól handa okkur úti á búréttarjörð- inni. Með tilhjálp annars nýbýlings hafði hann fellt þar tré, höggvið þau til og komið upp bjálkaveggjunum. Þeir voru 8 feta háir, en ummál skýlisins 16 x 20 fet. Þakið og gólfið urðu að bíða betri tíma. Einnig hafði honum tekizt að heyja handa kúnum. En síðsumars, meðan við sátum enn um kyrrt í Millwood, fengum við þær fréttir, að sléttueldur hefði rótsviðið allmikið landsvæði þar úti, þ. á. m. hluta af okkar landi, og að fyrirhugað heimili okkar hefði brunnið til kaldra kola. Hafði þá faðir minn fengið leyfi til að nota til bráðabirgða smákofa, sem framtíð- arnágranni okkar, Jón Magnússon, hafði reist, einnig þá um sumarið. Hann var hlaðinn úr sortupílsbjálkum, leirkíttaður, og torfþak á; ummálið 14x14 fet, hæðin um 7 fet. Á honum var einn smágluggi, og í einu horn- inu var eldstó úr pottjárni. Þetta var sá aðbúnaður — og hann all-óyndislegur — sem við höfðum að að hverfa þessa vindgnauðandi og niðdimmu nótt. Svo að þarna vorum við þá komin — tvær fjölskyld- ur, níu manneskjur, samankúldaðar í þessu kofakríli, þreyttar, kaldar, hungraðar. Enginn var stóllinn, ekk- ert borð, ekkert rúmstæði, ekkert til að verma okkur, nema litla fjögra-loka eldstóin. Hvað um það — brátt skíðlogaði eldurinn í stónni, og við það lifnaði yfir okkur öllum undursamlega. Breið fjöl, sem negld var á vegginn í borðs stað, kassar til að sitja á, og svo góð heit máltíð — allt varð það til þess, að draga úr ískyggileik kringumstæðnanna. Þegar leggjast skyldi til svefns, voru kassarnir látnir út og rúmfatnaðurinn breiddur á moldargólfið. Og þarna sváfum við svefni örþrevttra manna eftir hina löngu dagleið í nístandi köldum næðingnum. Morguninn eftir voru allir snemma á fótum, ferskir og hressir, og fullir forvitni um útlit og umhverfi hins nýja verustaðar. Þetta var indæll sólskinsmorgunn og orðið miklu hlýrra í veðri. Eftir morgunmat öxluðu þeir faðir minn og Helgi haka og skóflur og lögðu leið sína yfir á búréttarjörð okkar, þangað sem heimili okkar átti að rísa, tæpan kílómeter frá kofa Jóns. Stofnað var félagsbú og ákveðið að fjölskyldurnar Heima er bezt 9

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.