Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.01.1965, Qupperneq 20
Opna úr Úraníu. leiksfúsri og myndþyrstri alþýðu manna urn aldamót- in síðustu, þegar menn þekktu ekkert til skreytinga í bókum og þráðu einhverja tilbreytingu í gráum hvers- dagleikanum. Fræðibækurnar Lýsing íslands, Grænland að jornu og nýju og Þættir úr Islendingasögu voru all- ar með mörgum myndum, sem ásamt ágætu efni gerði bækur þessar vinsælar. Ekki má heldur gleyma barna- bókunum, Stafrófskveri síra Jónasar Jónassonar og Nýj- asta barnagullinu, sem báðar fluttu fjölda mvnda og áreiðanlega léttu mörgu barninu að komast upp yfir örðugasta hjalla lestrarnámsins. Því miður kunnu íslendingar ekki að meta stórhug og rausn Odds Björnssonar, sem skyldi. Hann varð að hætta við útgáfu Bókasafns alþýðu fyrr en varði, og þótt hann 1901 kæmi til íslands með fullkomnustu prentsmiðju landsins í þann tíma, hurfu myndir að mestu úr útgáfubókum hans eftir það. Komu þar fram erfiðleikarnir á gerð myndamóta, þar sem allt þurfti til útlanda að sækja. Lagðist þessi merkilega tilraun því niður. Og raunalegt er til þess að vita, að Oddur Björns- son skyldi síðar verða að grípa til hins gamla Hólaráðs, að skreyta nýjar bækur með gömlum myndum þeim óskyldum. Og í rauninni liðu áratugir frá tilraun Odds Björnssonar, þar til hugmynd hans um myndskreyttar bækur verður veruleiki. í þessu sambandi má geta þess, að Bókmenntafélagið gaf á fyrstu tugum aldarinnar út Lýsingu íslands hina stóru eftir Þorvald Thoroddsen, með tiltölulega fáum myndum og íslendinga sögu Boga Th. Melsted mynda- lausa með öllu. Og síðar gaf Fræðafélagið út rit þessara sömu höfunda, Ferðabók Thoroddsens og Handbók í Islendinga sögu Boga algerlega án mynda. Voru þó all- ar þessar bækur prentaðar í Kaupmannahöfn og til þeirra vandað í hvívetna. Hinsvegar voru grasafræði- ritin Flóra íslands eftir Stefán Stefánsson og Bygging og líf plantna eftir Helga Jónsson ríkulega myndprýdd- ar, og var meginþorri myndanna í Flóru gerður fyrir þá bók. Hér vil ég geta þess, að Oddur Björnsson mun fyrst- ur íslenzkra bókagerðarmanna hafa prýtt bækur sínar með litprentuðum kápum. Lengstum voru kápur ís- lenzkra bóka mjög fábreyttar, oft voru þær einungis úr gráum eða mórauðum pappír án þess nokkuð væri á þær prentað. Oftar mun þó titill bókarinnar hafa verið prentaður á hina sviplitlu kápu. Einstöku bækur voru þó með dökkum skrautramma utan um titilinn, svo voru t. d. íslendinga sögur í útgáfu Sigurðar Kristjáns- sonar, og einnig átti gamla Akureyrarprentsmiðjan skrautramma, sem prentaður er á nokkrum bókum frá henni. Oddur gerði hvorttveggja að prenta titla með litum og hafa utan um þá litaða ramma, voru margar kápur frá prentsmiðju hans í þremur litum. Einna mest mun hann hafa borið í kápu á Þjóðsagnaútgáfu sinni. Varð hann í þessu sem mörgu öðru á undan samtíð sinni. Aður var þess getið að Sigurður Guðmundsson mál- ari teiknaði fáeinar myndir í prentaðar bækur. Munu þær vera einu prentmyndirnar, sem gerðar eru af ís- lenzkum listamanni alla 19. öldina. En árið 1903 var nýstárleg bók prentuð í Reykjavík, voru það Islands- vísur, Ijóð eftir Guðmund iVIagnússon. Kvæðunum fylgdu teikningar, flestar eftir Þórarin B. Þorláksson, listmálara en fáeinar gerðar af höfundi sjálfum. Ein mynd eftir Þórarin hafði birzt í Uraníu, en ókunnugt er mér, hvort hann hefir annars fengizt við að mynd- skreyta bækur. Það var og nýstárlegt við þessa útgáfu, að bókin var tölusett og einungis seld áskrifendum við háu verði eða 10 krónur, sem þá mun hafa nálgazt 4—5 daga vinnulaun verkamanns. Myndirnar í Islands- vísum voru margar vel gerðar og bókin öll prýði í ís- lenzkri bókagerð. Höfundur var sjálfur prentari, drátt- hagur vel og smekkvís. Vann hann að prentun bókar- innar, en hún var prentuð í Gutenberg, sem þá var ný og hin fullkomnasta prentsmiðja landsins. Guðmundur Magnússon, teiknaði myndir á kápur ýmissa skáld- sagna sinna t. d. Heiðarbýlisins og e. t. v. fleiri, og að honum látnum voru nokkrar pennateikningar hans prentaðar í Ferðasögum 1930. Næsta myndskreytta Ijóðabókin eftir Íslandsvísur Þyrnar. — Titilblað af stafrófskveri Jónasar frá Hrafnagili. 16 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.