Heima er bezt - 01.04.1965, Side 4

Heima er bezt - 01.04.1965, Side 4
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM: Oddur 01 afsson, yfidæknir, Reykjal unai Vestan á Reykjanessskaganum liggur lítið byggðarlag, Hafnirnar. Hrjóstrugt er um- hverfið, úfin hraun og sandar, gróið land lít- ið annað en túnblettir umhverfis bæina, en við skerjótta hraunströndina gnýr úthafsbrimið án af- láts.En skammt er þaðan á auðug fiskimið,og meðan sjór var sóttur á áraskipum, voru þar lendingar bjarglegar. Oft barst þar góður fengur á fjörur af rekavið og öðr- um verðmætum, og ekki var ýkjalangt að sækja til Geirfuglaskerja eða Eldeyjar til fuglafangs eða eggja. En lífsbaráttan var hörð, en gaf hinsvegar oft mikið í aðra hönd, þeim sem manndóm höfðu til þess að bera sig eftir björginni. Þarna suður í Höfnunum þroskað- ist hraust fólk og framsækið. Á sl. öld var þar margt stórbænda, sem höfðu mikil mannaforráð og sóttu sjó af kappi. Velmegun þeirra hvíldi á því, að aldrei væri slakað á klónni, en þó sótt á með allri forsjá. Oft var þó teflt í tvísýnu í daglegri önn í fangbrögðunum við Ægi, en við það þroskuðust hæfileikar athygli og dirfsku í sameiningu. Ein af ættum þeirra Hafnamanna sat í Kotvogi mann fram af manni. Voru þeir harðfeng- ir sjósóknarar og höfðingjar í lund, rausnarmenn í út- látum, þegar svo bar undir og létu lítt hlut sinn, ef á þá var leitað. En tímarnir breytast. Nú eru Hafnirn- ar ekki lengur landfrægt athafnapláss. Tækni nýrrar aldar hefur farið framhjá þeim, og hin gamla reisn byggðarlagsins er horfin. Og margt af fólkinu er flutt burtu, en sagnimar lifa um þá gömlu kjarnakarla, er þar bjuggu, og margt afkomenda þeirra heldur í horf- inu um reisn og framkvæmdir. Verður hér sagt frá ein- um slíkum Hafnamanni, sem að vísu hefur ekki getið sér orðstír fyrir sjómennsku og aflabrögð, en hefur eins og forfeður hans sýnt, að honum eru mannaforráð lag- in, og hefur skapað stofnun til almenningsheilla með þeim stórhug og reisn, sem fátíð er hér á landi. Og í fangbrögðum við einn mesta bölvald þjóðarinnar hef- ur hann reynzt ekki síður giftudrjúgur, en forfeður hans við holskeflurnar undan Suðurnesjum. Maður þessi er: Oddur Ólafsson, yfiriæknir í Reykjalundi. Oddur Ólafsson er fæddur á Kalmanstjörn í Höfn- um 26. apríl 1909. Faðir hans var Ólafur Ketilsson út- vegsbóndi þar. Faðir hans var Ketill Ketilsson, útvegs- bóndi í Kotvogi, höfðu forfeður hans búið um langan aldur þar í Höfnunum og mikið orð farið af. Móðir Odds var Steinunn dóttir Odds prests Gíslasonar, sem var þjóðkunnur maður á sinni tíð, fyrir brautryðjenda- starf í slysavörnum á sjó. Einnig var hann forgangsmað- ur um ýmsar nýjungar í útvegsmálum, einkum þó fram- leiðslu meðalalýsis, sem hann hlaut verðlaun fyrir. Kona síra Odds var Anna dóttir Vilhjálms Hákonar- sonar í Kirkjuvogi, eins af höfðingjum Hafnamanna. Ekki var Oddur prestur fjáraflamaður að sama skapi sem hann var dugmikill og hugsjónamaður, en hann vann ótrúleg afrek á sínum tíma á sviði slysavarna, og munu þau mannslíf ótalin, sem borgið varð fyrir at- beina hans og ráð. Síðar fluttist hann til Ameríku, stundaði hann þar lækningar við góðan orðstír og var þó sjálfmenntaður í þeim efnum. En því hef ég rakið þetta um forfeður Odds læknis, að í skaphöfn hans og störfum má greinilega finna, hvernig saman renna straumar ætta hans, harðfengi, dugnaður og hagsýni þeirra Hafnamanna, en hugsjónabarátta og félagshyggja ásamt lækningaáhuga síra Odds. En þótt hann hafi margt sótt til Odds afa síns og nafna, á ég erfitt með að hugsa mér hann hempuklæddan, en hitt mundi sanni nær, að hann hefði kunnað vel við sig við stjórn á stóru áraskipi og reynzt ekki ættleri sem stórbóndi í Höfn- unum, ef tímarnir hefðu verið þeir sömu. En þegar Oddur Ólafsson óx upp voru tímarnir breyttir. Hann ólst upp með foreldrum sínum á Kal- manstjörn, þar var þá eins og löngum fyrr mannmargt menningar- og rausnarheimili. Fékkst Oddur þar við 120 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.