Heima er bezt - 01.04.1965, Side 5

Heima er bezt - 01.04.1965, Side 5
Oddur Ólafsson. öll þau störf sem til féllu, sótti sjó og vann að landstörf- um, og um skeið var hann á togara á æskuárum sínum, þegar áraskipaútgerðinni í Höfnum var tekið að hnigna. En forsjónin ætlaði honum annað hlutskipti en að verða skipstjóri eða stórbóndi. Hann varð stúdent 1929, og lauk læknaprófi við Háskóla íslands 1936. Á skóla- árum sínum veiktist Oddur af berklum og mun það hafa ráðið miklu um framtíðarstörf hans og stefnu. Líkt og baráttan við hafið knúði Odd afa hans, til að hefj- ast handa um björgun mannslífa úr sjávarháska var Oddi yngra bent á annað björgunarstarf, og lífið hafði komið honum í nána snertingu við þann háska, sem á ferðum var. Hann réðst í fylkingarbrjóst í baráttunni við berklaveikina, sem um þessar mundir var enn ein alvarlegasta sjúkdómsplága þjóðarinnar, og lagði blóm- ann úr æskulýð landsins að velli, ekki síður en sjórinn hrifsaði til sín hina vöskustu drengi. Að loknu háskólanámi gerðist Oddur aðstoðarlæknir á Vífilsstöðum um skeið en var jafnframt læknir Kópa- vogshælis. Á árunum 1942—43 var hann að framhalds- námi í Bandaríkjunum og kynnti sér þar einkum með- ferð berklasjúklinga og hinar nýjustu aðferðir í berkla- lækningum. Árið 1938 hófust berklasjúldingar handa Ragnheiður. Jóhannesdóttir. um samtök, til að berjast gegn berklaveiki og bæta úr brýnni þörf um aðbúnað þeirra sjúklinga, sem braut- skráðir voru af heilsuhælunum, en því var þá einna mest ábótavant. Oddur gerðist þegar virkur félagi sam- takanna, og hefur hann verið í stjórn Sambands ís- lenzkra berklasjúklinga síðan 1939. Samtökunum óx fljótt fiskur um hrygg, og hinn 1. febrúar 1945 var framkvæmdum svo langt komið, að heilsuhælið í Reykjalundi gat tekið til starfa, og var Oddur sjálfkjörinn yfirlæknir þess og einnig fram- kvæmdarstjóri í fyrstu. Með þeim atburðum má segja, að starfssaga hans hefjist fyrir alvöru, enda hefur hann gegnt yfirlæknisstöðu þar síðan, og verið einn mesti áhrifamaðurinn í allri stjórn stofnunarinnar og samtak- anna yfirleitt. Það er ekki ofsögum sagt af því, að Reykjalundur sé nú sú stofnun, hér á landi, sem mesta athygli vekur er- lendra gesta. Fer þar saman mikil og vegleg húsakynni, ágætar vinnustofur, reglusemi og snyrtibragur á öllum hlutum utan húss og innan, og síðast en ekki sízt hug- sjónin, sem stofnunin er reist yfir, að styðja sjúka til sjálfsbjargar, fá sjúklingunum verkefni, sem samrímzt geta veikum kröftum þeirra, og þjálfa þá síðan eftir Heima er bezt 121

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.