Heima er bezt - 01.04.1965, Page 6
því sem þrótturinn eykst og færnin verður meiri. Má
sjá greinileg merki þessa á yfirbragði vistmanna þar
sem fagna henni einhuga og lofa staðinn og dvölina þar.
En yfir öllu þessu svífur andi yfirlæknisins. Það væru
vitanlega ýkjur að segja að hann hefði einn verið þar
að verki. Margt ágætra starfsmanna hefur lagt þar
hönd á plóginn og unnið ágæt störf hver á sínu sviði.
En hitt er hvorki ofsagt né nokkrum gert rangt til,
þótt staðhæft sé, að enginn einn maður á þar jafn mik-
inn þátt, né hefur lagt jafnmikið af mörkum og Odd-
ur Olafsson. Annars vegar er þar læknisstarf hans, og
þótt hann sé að vísu meðal færustu manna í sinni grein,
mun honum þó ekki síður koma þar að góðu haldi
hinn meðfæddi persónuleiki, sem beinlínis gefuy sjúld-
ingunum nýjan þrótt og bjartsýni á tilveruna. A hinn
bóginn er svo sívökul hugkvæmni hans um vöxt og
viðgang stofnunarinnar, og óhvikull kjarkur að leggja
út á nýjar brautir og hefja framkvæmdir jafnt með
kappi og forsjá.
Eins og kunnugt er þá er berklaveikin nú á svo
hröðu undanhaldi hér á landi, að kalla má að sigur sé
unninn á henni. Starfsemi Reykjalundar á drjúgan þátt
í því hversu tekizt hefur. Þegar sýnt þótti, að hæhð
rúmaði fleiri en berklasjúklinga eina, gerðist Oddur
ásamt samstarfsmönnum sínum í S.I.B.S. forgangsmað-
Ketill Oddsson. Ólafur H. Oddsson.
ur þess, að láta heimilið ná til fleiri öryrkja og fólks,
sem þurfti þjálfunar við til að ná vinnuorku. Hefur
hann síðan verið einn af forystumönnum í Oryrkjasam-
bandi íslands og unnið því geysi mikið starf. Mörg
fleiri járn hefur hann haft í eldi, sem ég kann ekki að
rekja. Allan sinn langa starfsferil hefur hann lagt mikið
kapp á að fylgjast sem bezt með nýjungum í starfs-
grein sinni, og því farið oftsinnis erlendis, bæði til að
sækja ráðstefnur berklalækna og berklavarnarfélaga, svo
og beinar námsferðir. Hefur hann á slíkum ráðstefnum
haft margt að segja frá skipulagi og árangri Reykja-
lundar, og mun það ekki oft, sem íslendingar hafa haft
jafnmiklu að miðla á alþjóðlegum vettvangi, en hér
hefur verið unnið brautryðjendastarf á margvíslegan
hátt, sem vakið hefur athygli.
Oddur kvæntist 1938 Ragnheiði, dóttur síra Jóhann-
esar Lynge Jóhannessonar hins ágæta fræðimanns. Hef-
ur hún staðið örugg við hlið manns síns í störfum hans
og í sameiningu hafa þau skapað hið fegursta heimili,
sem ógleymanlegt verður gestum og gangandi fyrir
hlýju og risnu húsbændanna. Þau hjón eiga sex börn,
sem öll eru hin mannvænlegustu og sett hafa verið til
mennta jafnskjótt og aldur leyfði. Eru þau þessi: Vífill,
verkfræðingur, Ketill, flugvirki, Þengill, nú við lækna-
nám í Ameríku, Ólafur Hergill og Steinunn í Mennta-
skólanum á Akureyri og Jóhannes Vandill, sem enn er
heima.
Oddur Ólafsson er þéttur á velli og þéttur í lund,
stundum er hann nokkuð hvass á brúnina, en glettnis-
glampar leynast þó í augnakrókunum. Hann er ráð-
ríkur nokkuð, enda í blóð borin sú reynsla kynslóð-
hanna, að illa fer á því, að margir séu formenn á sama
skipi, og fáa hygg ég fastari fyrir til varnar eða sóknar
þeim málum, sem hann er sannfærður um að séu rétt.
Hann er vinfastur og flestum mönnum glaðari á góðri
stund. En ríkast í fari hans hygg ég þó félagskenndina
og góðviljann, sem orðið hefur driffjöðrin í hinu
mikla og gifturíka starfi hans.
122 Heima er bezt