Heima er bezt - 01.10.1965, Side 6

Heima er bezt - 01.10.1965, Side 6
Droplaug Eiðsdóttir. Sturla Eiðsson. Hrafn Eiðsson. þar til barnafræðslan fluttist að heimavistarbarnaskólan- um á Laugalandi á Þelamörk. Þau hjónin eignuðust þrjú börn. Guðmund, sem tók við búi af föður sínum, Steingerði frú á Akureyri og Hrafn verkamann þar. Konu sína missti hann eftir 20 ára sambúð og hefir síðan búið með ráðskonu, lengst með Líneyju Guðmundsdóttum Ólafssonar, eða yfir 20 ár og átt með henni 2 börn: Sturla nú bóndi á Þúfnavöllum ógiftur og Droplaugu á fermingaraldri. Árið 1914 var Eiður kosinn í hreppsnefnd Skriðu- hrepps og oddviti hennar til 1922. Vann þá á þeim árum og síðan mikið að félagsmálum í hreppnum, var formað- ur búnaðarfélags hreppsins og stofnandi fóðurbyrgða- félags þar. Kosinn var hann sýslunefndarmaður fyrir Skriðuhrepp 1933 eða 1934, og hreppstjóri skipaður um svipað leyti, en hafði annast störf hreppstjóra um allmörg undanfarin ár í veikindum föður síns. Sýslunefnd hefir falið honum ýms veigamikil störf, sem henni bar að ráðstafa, var kos- inn í yfirkjörstjórn sýslunnar og átti sæti þar til þess, er hin nýja kjördæmaskipan var lögfest, og í fasteigna- matsnefnd fyrir sýsluna við yfirstandandi fasteignamat. Sýnir þetta meðal annars það traust, sem hann hefir not- ið innan ramma sýslunefndar. 1950 var hann kjörinn í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga og átti þar sæti um 10 ára skeið, en baðst þá undan end- Framhald á bls. 362. 354 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.