Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.10.1965, Blaðsíða 10
kunnugur leiðum þá dugar þér að fara einn í venjuleg- um ferðabúnaði, með atbeina nestisbita og gönguþols, ef bjartviðri er, en sé veður volegt, eða þig brestur e.t.v. líkamsburði, nema hvort tveggja sé, þá kveður þú með þér mann til brautargengis, helzt öruggan og gætinn, því að telja má víst, að þú viljir ná rekkjuhvíld að kvöldi vestan við fjöllin. Hins vegar vil ég þó treysta hug þinn með því, að tiltölulega mjög sjaldan hefur mönnum hlekkzt á, sem farið hafa um fjallvegi þessa og má það nærri merkilegt heita, þar sem hér er um að ræða mikl- ar harðviðra- og hrikaleiðir. Ég hef þá beint athygli þinni að hinum atkvæðamestu og sumpart þekktustu örnefnum og kennimerkjum, sem eru innan landareignar Atlastaða. Eg hef vakið varygð- armál þeim til athugunar, sem þessar línur sjá og eru þannig gerðir, að þeir kasta ekki góðum ráðum á bak aftur og þurfa e. t. v. að fara framangreinda vegi. Við snúum okkur hér næst að því, sem nær okkur er, því að enn stöndum við á bæjarhlaði Atlastaða, og virðum nú fyrir okkur túnið. III. Bærinn að Atlastöðum stendur mjög hátt á allstórri hólaþyrpingu. Á þessari hæð standa og flest penings- húsin, eigi allfjarri bænum. Niður frá hlaðvarpanum liggur snarbrött brekka, Bæjarbrekkan. Það þótti áður fyrr vel fær skíðamaður, er renndi sér ofan hana staf- laus og stóð með léttu móti. Sunnan við brekkuna er alldjúpt lautardrag; það er kallaður Leyningur. Sunnan Leynings er hóll og þar standa fjárhús, Kvíhúsin. Sunn- an við þau eru nokkrar samfelldar þaksléttur, Kvíhús- sléttur, og niður frá húsunum snarbrött brekka, Kvíhús- brekka. Sunnan og ofan við bæinn er lítils háttar hæð, sem kölluð er Dagslátta. Sunnanvert á henni standa fjárhús, Ærhúsin. Ofan við Dagsláttu tekur við mýrarsund lítið, kallað Mýrin og ofan við hana liggur hinn svonefndi Uppvöllur, samstæður túnfláki, nokkrar dagsláttur að stærð. Syðst á Uppvellinum er Vallarskriða og utanvert við hana, neðantil, er Hesthúsgerði. Þar stóð hesthús fram á síðustu ár. Ofan við Hesthúsgerði heitir Gamli bærinn, því að þar stóð Atlastaðabær áður fyrr. Fyrir nærfellt þrjátíu árum var jafnað yfir hinar fomu bæjar- rústir, svo að menjar eftir þær sjást nú ekki lengur. Eigi er mér kunnugt um hvenær, eða hver færði bæinn þang- að, sem nú stendur hann og orsök þess þekki ég ekki með vissu, þó að telja megi líklegt, að frá hinum nýja bæ hafi þótt betra útsýni, einnig léttari heimreið og að- flutningar. Utan við Gamla bæ og Hesthúsgerði fellur Iækur, Bæjarlækurinn. í honum, skammt ofan við bæinn, var vatn tekið í heimilisþarfir. Utan við læk þennan og beint út undan Hesthúsgerði er hólmynduð hæð og þar stend- ur fjárhús, sem nefnt er Ytragerði. Nokkru utar og neð- ar er önnur hólmyndun yzt og efst í túnjaðrinum; þar heitir Skúlagerði. Þekki ég ekki sögu þess og ekki deildi á manni þeim, sem gerðið er við kennt. Utan við gerði þetta er djúpt, grasigróið gil, Skúlagil. Lækur fellur úr fjalli ofan eftir gilinu og nefnist Skúlalækur. Utan og ofan við bæinn er fjós fyrir nautgripi, og utar á hóln- um stóðu til skamms tíma tvö fjárhús, Lambhúsin, og enn eitt fjárhús var þar utar og neðar. Allbrött brekka liggur út frá tóftum hinna fornu Lambhúsa, sú brekka er kölluð Lambhúsbrekka. Utan við hana liggur tún- fláki, sem áður var þýfður rnjög og heitir Lambhaga- völlur. Eru þá taldir helztu túnhlutar á Atlastöðum. Túnið var talið vera lítið, innan við 20 vallardagsláttur að stærð og gaf af sér í meðalári um 200 hesta af töðu. Það er víða allbrattlent (sbr. brekku-nöfnin öll), en víða all- grasgefið, sé áburður nægur. IV. Engjar Atlastaða liggja svo að segja öllum megin út frá túninu. Neðan við Bæjarbrekkuna er dálítil laut, Bæjarlaut. Utan við hana er holt eitt, en þá tekur við krappþýfður mór, sunnan við Skúlalæk; það er Skúla- mór. Neðan við þennan mó og Bæjarlaut er dálítið bakkabarð. Þar framan við er grjóteyri, sem Svarfaðar- dalsá fellur um. Suður frá Bæjarlaut liggja engjasköfur, heydrjúgar harðslægjur, þær ná suður fyrir neðan Kví- húsbrekku (sbr. túnlýsingu). Suður frá bænurn er all- stór mýri og syðst í henni hæð ein, skammt utan við Skallárgil. Á hæð þessari hefur lengi staðið stekkur Atlastaðastekkur. Lengra suður með Skallárgili er all- stór, bogamyndaður hvammur; það er Stekkjarmýrin. Sunnan við stekkinn er Stekkjarlækur, þá Stekkjarholt, og upp af Stekkjarmýri er hjallmynduð hólaþyrping. Þar eru víða gömul stekkjabrot og heitir þar A stekkj- um. Ofan við Stekkjarlæk og utan og ofan við Stekki er mýrlent og mjög hallandi engjasund; það nefnist Veitur. Þá er Syðstihjalli, þá Skriðugil, þá Miðhjalli hinn syðri og Miðhjalli hinn ytri og yzt liggur Skúlahjalli. Allt það, sem hér er talið var slægjuland og má því kall- ast engi, en fremur þótti það seinunnið, sökum grjóts, bratta og keldna, og heimflutningur var erfiður. Ofanvert við Uppvöll (sjá hér að framan), neðst í Ytra-Miðhjalla, er breiður hóll, Hesthúshóll. Utan við hann er engjaspilda, takmörkuð af Skúlalæk að utan, en túninu að neðan; þessi spilda heitir Krókur. Yzt í hon- um og alveg út við Skúlalæk er Iítið gerði, er heitir Litlibær. Ævafornar, vallgrónar húsarústir sjást á gerði þessu, og telja má víst, að þar hafi menn búið, en langt mun síðan. Utan Skúlalækjar og neðan við Skúlahjalla er engjapartur, sem heitir Skúlamýri. Neðan mýrar þessarar eru hólar, þaktir möl og grjóti að mestu leyti, og eru í daglegu tali nefndir Hólar, eins konar hóla- þyrping, er liggur milli bæjanna, Atlastaða og Þorsteins- 358 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.