Heima er bezt - 01.10.1965, Side 30

Heima er bezt - 01.10.1965, Side 30
FJÓRÐI HLUTI Snorri brosir: — Nei, og nú er ég kominn að kjarna málsins. Ég tel víst að hún systir mín óski þess innilega að fá að fara með, þekki ég hana rétt, og auðvitað er hún sjálfsögð, en svo kom mér til hugar, hvort bústýr- an þín myndi ekki geta fengið frí frá störfum, svo að ég mætti bjóða henni með okkur systkinunum í Þórs- mörk. — Hvað segir þú um það, pabbi minn? — Ég segi allt gott um það. Þó ljótt sé frá að segja, þá hefi ég aldrei boðið henni frídag síðan hún kom hingað, á slíkt var ekki minnst af hvorugu okkar, þeg- ar hún réði sig til mín, og hún hefir aldrei beðið um neitt frí, og ég heldur ekki hugsað útí að bjóða henni það. Mér finnst það alveg sjálfsagt að hún fari með ykkur systkinunum, langi hana til þess. Það verða eng- in vandræði með mig, ég fer bara í matsöluhús og fæ mér að borða, geti ég ekki sjálfur bjargað mér heima. — Ég þakka þér fyrir, pabbi minn. — Það er lítið að þakka, góði minn. En hvað hefir þú hugsað þér með faranæki? — Ég á eftir að útvega mér það, en ég hlýt að geta fengið leigðan bíl. — Þið getið farið í mínum bíl, hann er traustur í svona ferðalög. — En þú þarft að hafa hann sjálfur til eigin afnota, pabbi? — Ég hefi bara gott af því að fara gangandi ferða minna um eina helgi, ég lána ykkur bílinn. Klukkan í borðstofunni slær nú tíu, og kvöldkaffið er tilbúið á borðinu. Nanna gengur fram að dyrum setu- stofunnar og býður feðgunum að koma til kaffidrykkj- unnar. Þeir rísa þegar á fætur og ganga til borðstofunn- ar og setjast þar að fallcga framreiddu kaffiborðinu. Nanna og Erla koma einnig inn og setjast til borðs með þeim. Nanna býður þeim hæversk og húsmóðurlcg að gera svo vel, og síðan hefst kaffidrykkjan. Erla situr and- spænis bróður sínum, og hún tekur fvrst til orða og seg- ir við bróður sinn: — Ósköp finnst mér langt síðan að þú hefir verið hérna heima hjá okkur yfir helgi, Snorri minn. — Já, nú er það orðið nokkuð langt síðan. — Við megum til að láta þetta verða reglulega skemmtilega helgi, fyrst við fáum svona sjaldan að vera saman. — Já, hún á líka að verða það, ef allar vonir og óskir rætast. — Hvað eigum við að skemmta okkur helzt, fara á einhverja góða bíómynd, eða hvað? — Nei, Erla mín, ekki á bíómynd. En mig langar til að skoða um þessa helgi töframyndir íslenzku óbyggð- anna. — Ætlar þú þá að fara eitthvað langt útúr bænum? — Já, auðvitað verð ég að gera það. — Og hvert þá? — Til dæmis austur í Þórsmörk. — Ó, má ég fara þangað með þér, þar er svo dásam- legt. — Já, ég taldi þig nú sjálfsagðan ferðafélaga, færi ég þangað. — Erla lítur á Nönnu og síðan á bróður sinn, og segir svo dálítið leyndardómsfull: — En Snorri.... ég þarf að tala nokkuð við þig á eftir, sem enginn má heyra. — Jæja, vinan. Snorri ímyndar sér þegar, hvert leynd- armálið muni vera og brosir til systur sinnar. Hún ætlar áreiðanlega að biðja hann að bjóða Nönnu með þeim systkinunum í Þórsmerkurförina, en þess þarf enginn að biðja hann. Hann snýr sér þegar að Nönnu og segir formálalaust: — Nanna, má ég bjóða þér með okkur Erlu í einnar nætur útilegu austur í Þórsmörk núna yfir helgina? Nanna roðnar óþægilega mikið, og hönd hennar sem hrærir mcð teskeiðinni í kaffibollanum, verður nokkuð óstyrk, cn hún svarar samt rólcga: — Ég þakka þér fyrir. En ég þarf að gegna skyldum mínum hér heima og get því ekki þcgið þetta góða boð þitt. Alagnús lögmaður hcfir til þessa aðcins hlustað á tal unga fólksins, en nú finnur hann að röðin sé komin að sér að leggja orð í bclg. Hann lítur á Nönnu og segir glaðlcga: 378 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.