Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 15
Tvö sen Bæ í Skagafirði 4. ágúst 70. Hr. Sigurður O. Björnsson. Góði vinur. Þakka bréf þitt. Ég held til haga bréfum, sem mér finnst að eitthvað sé í spunnið. Mér dettur í hug að lofa þér að sjá eitt, er ég fékk nýlega frá gömlum bónda, sem er nú 96 ára gamall, vitanlega ómenntaður, en skýr og skemmt- inn. Fram undir þennan tíma hefir hann verið beinn í baki og léttur á fæti — gengið á milli bæja. Hér í hreppi höfum við 5, sem komin eru yfir nírætt, þó Stefán sé þeirra elztur. 2 karlar af þessu fólki slá með orfum sínum og hirða sínar kindur. Allt þetta fólk hefir unnið hörðum höndum frá barnæsku og oft ekki átt sjö dagana sæla. Má þar nefna Stefaníu, móður Andrésar Björnssonar o. fl. merkra barna. — Sigríði bróðurdóttur Indriða Einarssonar og Einar Jóhannsson fyrrv. bóndi í Mýrakoti, 92 ára, sem heyjar handa kindum sínum og hirðir þær á vetrum. Bréfið frá Stefáni sendi ég þér til gamans, en vil ekki glata því úr safni mínu. Nokkur bréf á ég frá gömlum, góðum vini, Kolbeini Kr. frá Skriðulandi, hann er sérstök manngerð og ritfær með ágætum. Orðlengi þetta ekki frekar. Beztu kveðjur. Björn Jónsson. Eins og bréf Björns í Bæ ber með sér, sendi hann mér bréf Stefáns Sigurjónssonar, að gamni. Og mér finnst sjálfsagt að lofa einnig lesendum Heima er bezt að sjá hvað þessi 96 ára gamli bóndi stílar bréf sitt vel og hvað hann skrifar vel og skrifar rétt. Stefán Sigurjónsson er nú látinn. En hér kemur bréfið: Gili, 11. júní 1970. Kæri vinur! Ég þakka þér mjög vel fyrir allt gamalt og gott. /cícÆrf V-#rf * Heima er bezt 399

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.