Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 16
Vegna þess að ég hefi átt þess kost að spjalla við þig fór ég að fikta við það, að skrifa þér nokkrar línur, þó mér láti það ekki vel, eins og þú getur séð. Af því sem ég gat ekki vel fylgzt með þættinum, sem fluttur var í Sjónvarpinu um Málmey og Þórðarhöfða, datt mér í hug að spyrja einhvern sem fylgzt hefði vel með þættinum frá byrjun, hvort nokkuð hefði verið minnzt á Arnargatið, sem kallað er, í Þórðarhöfðanum. Ég heyrði talað um Skessusporin en ekki um Arnar- gatið. Ég gæti hugsað mér að nafnið á því sé eitthvað í sambandi við sögu þá, er ég ætla að segja þér. Ég heyrði sagt frá því, þegar ég var smástrákur, að Jón Jónatansson, sem þá bjó á Höfða á Höfðaströnd (ömmubróðir þinn í móðurætt), hann drukknaði fáum árum áður en ég fæddist, hefði skotið öm í þessu gati og hefði hún fallið inn í gatið en ekki niður í sjóinn, sem þó hefðu verið meiri líkur til, og hefi ég ekki heyrt að það hafi verið athugað, hvað mikið pláss er þar inni sem örninn féll niður, enda víst ekki gott að fást við það. — Fyrst ég er farinn að tala um Þórðarhöfða datt mér það í hug, að ég heyrði sagt frá að bátur frá Málm- ey (hvort sem var einn eða fleiri) sem ætluðu að róa til Drangeyjar, yrðu að taka stein úr fjörunni í Kögur- vík og fara með hann og láta hann í kjölfar sitt í Drang- eyjarfjöru. Ég heyrði að miklu leyti þáttinn um Drangey, en ég er farinn að heyra illa, svo að ég get ekki talað í síma en hefi góða sjón og hefir hún ekki mikið versnað að mér virðist síðastliðin ár. Það er eins og ég sagði, að ekki væri gott fyrir mig að treysta á heyrnina, það kemur fyrir að mér misheyr- ist, svo þetta er kannske tómt óþarfa rugl, en ég vona að þú fyrirgefir mér þó svo sé. — Þá var það þegar við, sem rerum til Drangeyjar, fluttum okkur fram, heilsuð- um með svofelldum orðum: Heil og sæl Drangey mín, kall minn og kelling mín og allir ykkar fylgjarar og vertu okkur happadrjúg í vor. En þegar flutt var frá Drangey í vertíðarlokin var hún kvödd með þessum orðum (og veifað til hennar með höfuðfötunum): Vertu sæl Drangey mín, kall minn og kelling mín og allir ykkar fylgjarar og þakka ykkur fyrir mig. Ég var oft búinn að fara með þessi kveðjuorð því ég var við Drangey í tæpar 40 vertíðir, þó sumar af þeim væru fremur stuttar vegna þess, að ekki var hægt að fara til Eyjar á venjulegum tíma 3—4 vikur af sumri. Yms óþæg- indi voru því til fyrirstöðu: hafís eða illviðri og hefur þá eflaust mörgum þótt vænt um þegar einhver björg fékkst frá Drangey því það höfðu margir fleiri en þeir sem stunduðu veiðina mikil not af því sem á land kom. Þá er bezt að hætta þessu rugli. Svo bið ég þig að bera konu þinni kæra kveðju frá mér og bið þig að fyrirgefa ritvillur og ljóta skrift og elliglöp. Líði þér alltaf sem bezt, þess óskar þinn gamli vinur og frændi, Stefán J. Sigurjónsson frá Skuggabjörgum. 400 Heima er bezt Prestur í píslarstól Framhald, af bls. 398. ------------------------------ því svo líkir voru þeir bræðurnir, að nákunnugir þekktu þá ekki í sundur. Árið 1880 gerðist það, að Skálholt var gert að annexíu frá Ólafsvöllum. Fór þar sem stundum vill verða, að höfuðbólið er lagt undir hjáleiguna. Hélzt sú skipan meðan prestur var búsettur á Ólafsvöllum. í Skálholtssókn var allt spaklátara kringum prestinn. Engar sagnir eru til þaðan um kærur á hann, eða sam- tök um að koma honum frá embætti. Ekki voru þó allir í þeim söfnuði einhuga fylgjendur séra Brynjólfs. Segja má, að þar skipti um fylgið að þeir, sem ekki létu hann ferma, voru hans mótgangsmenn, en hinir ekki. Fyrir kom að einstakir menn í þeirri sókn gerðu presti glett- ur, og er varla hægt að segja að þær hafi allar verið meinlausar. Frá Ólafsvöllum til Skálholts eru tæpir 20 km. Leiðin lá upp með Hvítá. Er þar góður reiðvegur og því víða hægt að spretta úr spori. Fara varð yfir Hvítá á ferju hjá Iðu, og var stundum að því mikil töf. Vestan undir Vörðufelli er þurrlendi árbakkans mjótt á köflum, og nokkuð sundurgrafið af keldum og vatnsrásum, sem vatn sitrar um niður í ána. En foræði mikil, dý, flóð og margs konar íhleypur eru frá ánni upp að fjallinu, svo víða er ófært hestum. Snemma á prestskaparárum séra Brynjólfs var girðing sett vestan Vörðufells á hreppamörkum Skeiða og Bisk- upstungna. Er girðingin nokkur hundruð metra löng, og nær frá Hvítá að snarbröttu fjallinu. Ekki var hlið látið á girðinguna við ána, þar sem leiðin Iá. í stað þess var það sett uppi undir fjallinu, en ófær kviksyndi eru meðfram girðingunni þangað uppeftir. Verður að rekja sig í ótal krókum og ekki nema fyrir nauðkunnuga að komast þar klakklaust yfir. Þetta var séra Brynjólfi ætlað að fara, en ekki er vitað hvort hugmyndin með þessu var sú að valda honum aðeins töfum á ferðalaginu eða hitt, að honum hafi verið ætluð sömu örlög og Vestur-Skaftfellingar reyndu að búa Þangbrandi biskupi forðum. Þetta varð til þess, að prestur fór stundum austan- megin Vörðufells, á leið sinni til Skálholts, en það var bæði lengri og verri vegur. Til minningar um þessar einkennilegu glettur við séra Brynjólf, hefur nú hlið þetta verið endurbyggt á sama stað, úr varanlegu efni. Steinsteyptir stólpar og mynd- arleg grind úr járni. Ber það þögult vitni um þær fjöl- breyttu aðferðir, sem reyndar voru til þess að torvelda presti skyldustörfin. Framhald.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.