Heima er bezt - 01.11.1970, Page 35
148. Stúlkan rak upp nístandi vein og hneig niður
grátandi. Margir stríðsmenn þustu að, og brátt varð
hin mesta ringulreið í herbúðunum. — 149. Hjartar-
bani var færður fram fyrir höfðingjana, sem lýstu víg-
sök á hendur honum. „Þessa skaltu gjalda, aumi
bleiknefji," urraði Rivenoak. Stríðsmenn vorir skulu
hefna Pardusins grimmilega. — 150. „Heimski bleik-
nefji,“ hrópaði Wah-ta-Wah reiðilega. „Veiztu ekki,
að vinir okkar eru þarna fyrir handan? Harry varð
þögull, er hann sá svipinn á Sjingaguk. — 151. Þau
tóku nú sjónauka og fylgdust með stúlkunum í bátn-
um, og Wah-ta-Wah, sem nú í fyrsta sinni horfði í
sjónauka, athugaði vatnið nákvæmlega. Allt í einu
hrópaði hún: „Þarna, — þarna — Mingóar í húsi!“