Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 21
HVAÐ UNGUR NEMUR ÞÁTTUR ÆSKUNNAR • RITSTJÓRI EIRÍKUR EIRÍKSSON MINNISVERÐIR MENN EGGERT ÓLAFSSON LÖGMAÐUR ísland ögrum skorið, eg vil nefna þig, sem á brjóstum borið og blessað hefir mig, fyrir skikkun skaþarans. Vertu, blessað, blessi þig blessað nafnið hans. Við skulum hafa það í huga, að á dögum Eggerts Ólafssonar (18. öld) er Island hluti af einveldi Dana- konungs. Á þessum áruni kemur fram ný stefna í þjóð- félagsmálum, upplýsingin, sem fer eins og logi yfir akur í öllum höfuðlöndum menningarinnar; stefna, sem vissulega gaf fyrirheit um betra mannlíf, en þó af kóngs- ins náð. I löndum Danakonungs átti hann að vera hin vitra forsjá þegna sinna. íslendingar nutu á margan hátt góðs af þessari nýju stefnu, svo sem sjá má af sögu Skúla Magnússonar landfógeta. Meðal menntaðra ls- lendinga komu fram þær raddir, að svo vegnaði okkur bezt, að við leggðum niður forna tungu og tækjum upp þá dönsku, snöpuðum eftir erlendu glysi og háttsemi. Það væri aðeins til trafala á framfarabraut að vera sífellt að vitna í fornsögur, sem engum kæmi að gagni, hvað þá að tala þessa fornu tungu. Athugun á tungunni gæti verið skemmtilegt viðfangsefni vísindamönnum til grúsks, öllum almenningi væri fyrir beztu að leggja hana fyrir róða og gerast í einu og öllu órjúfandi hluti hinnar dönsku ríkisheildar. Einstaka mikilhæfir menn, eins og járnkarlinn Skúli Magnússon, væru ágætir, þeir gætu bara engum framfaramálum komið fram, nema kóngur leyfði, sem og líka var satt. Kóngurinn, sam- einingartákn ríkisheildarinnar, var hið mikla vald, sem öll efnaleg framför hvíldi á. Það verður að segjast eins og er, að þeir menn, sem svona hugsuðu, voru ekki síður snortnir framfarahug upplýsingarinnar en Eggert Ólafsson og hans fylgis- menn, en vildu stefna á annan hátt að marki. Milli em- bættismannanna og bóndasonarins var því djúpstæður ágreiningur. Bóndasonurinn Eggert Ólafsson hélt því fram, að raunhæfar framfarir væru aðeins fólgnar í því að manna þjóðina sjálfa, vekja hana af þeim doða, sem hún var fallin í. Gagnlegt væri það hverjum einstaklingi að nema háleit fræði, eins og hann sjálfur hafði reyndar gert, ekki bara til þess að vera færari um að krækja í feitt embætti sjálfum sér til frama, heldur manndómur- inn mesti að nota þekkinguna til að auka víðsýnina og víðsýnin skapa betra mannlíf á íslandi. Kraftinn og kjarkinn til slíkrar framsóknar vildi hann sækja til for- tíðarinnar, til þess tíma, er þjóðin lifði frjáls og óbuguð í landi sínu, heilshugar í öllu starfi. Og ekki var hann Heima er bezt 405

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.