Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 23
Þér sudda-drunga daufir andar, sem dragizt gegnum myrkra loft! Þér jökul-byggða vofur vandar, sem veikar þjóðir kveljið oft! Hvað lengi Garðarshólma þið hyggizt að trylla fárátt lið? Hvað sem meinvœtta mœltu þóftar, mér varð gengið í tjaldareit; ég fór að hugsa enn sem oftar, um bjargrœðið í vorri sveit; heimila störf ég hölda sá og hvörsdagslífið bœjum á. Vætn er að kunna vel að búa, vel að fara með herrans gjöf, hatis verkum sér í hag að snúa, honum þakka fyrir utan töf, enn sér og öðrum gera gott, gleðjast og forsmá heimsins spott. lsinn þykir á Isalandi óblíðu merki skaparans; það er ei satt! hann sviptir grandi sifellt og geymir blessan hans; hlunnindi margt og ferskan fisk fáum vér þaðan á vorn disk. UPPHAFSERINDI MÁNAMÁLA EGGERTS Viljið þér mér ei til trúa sem talað hefi‘ ég um búskap lands; Salómon kóngur kunni1 að búa; komum, bræður! að ráðum hans; vilja guðs, oss og vorri þjóð vinnum á meðan hrærist blóð. Ur Búnaðarbálki. Ingólfr kvað: Hvat er þat reykjar, er ek rjúka sék við sund vestr á Víkr hjarli? Þorsteinn kvað: Þar hefir niflúngr norðrlanda fyrir sex árum fjölgjört tóptir. Vel má kalla þetta útúrdúr, en vel viðeigandi þegar minnt er á öndvegismann íslenzkrar sögu. Endurreisn og fegrun tungunnar var þó það, sem Eggert Ólafssyni var hugstæðast. Og þá er komið að merkilegum og jafnframt furðulegum þætti í athöfn hans, þætti, sem sýnir vel hvað hann var mikill þjóð- ernissinni. Hann taldi „sæmilegra að líkjast heldur í fornan skáldskap, þegar vanda skal.“ Málvöndun hans varð stundum að svo ofsalegri fyrnsku (forn- eskja), að vel hæfir að tala urn hreina öfga, jafnvel þótt hann gerði sér ljóst, að „túngnanna orðfæri eptir fornmönnum þykir nú stirt og óviðkunnanlegt.“ Ég skal til fróðleiks birta hér erindi úr einu kvæða hans, en um það farast mági hans, séra Birni Hall- dórssyni í Sauðlauksdal svo orð í eftirmælum um Eggert: „1749 gekk út á prent latínskur bæklingur Eggerts, hvar hann sýnir og sannar: Að eyin ísland hafi löng- um tíma áður en hún byggðist þotið upp af jarð- eldi; á sama ári var og prentað kvæði hans fornyrt, með latínskri version, viðvíkjandi þriggja daga hátíð, sem þá var haldin guði til þakkinda fyrir 300 ára ríkisstjórn Oldenborgara í Danaveldi; kallaði hann kvæðið: Það uppvaknaða ísland“, en það hefst svo: Lesendur geta rétt ímyndað sér, að svona fyrnska var ekki vænleg til málhreinsunar og fegrunar tungu, enda farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim, sem njóta skyldu. Eggert mun síðar hafa gert sér þetta Ijóst, því hann dró mjög úr henni í kveðskap sínum, jafnvel gagnrýndi hana. Freistandi væri að ímynda sér, að Eggert hafi fund- ið upp á þessu til að vekja athygli á málstaðnum, en það er held ég ekki hægt, því þeir hugsuðu ekki þannig í þá daga. En við vitum af sögunni, að þegar mikil hugsjón verður til, sem knýr menn áfram, verður ýmislegt óljóst í fyrstunni og eins og í þoku. Samtímamönnum hefur áreiðanlega fundizt eftirfar- andi vísa hans vænlegri til skilnings, enda á vörum þjóðarinnar enn í dag: Undir bláum sólar sali, Sauðlauks uppí lygnum dali, fólkið hafði’ af hana gali hvörsdags skemmtun bænum á, fagurt galaði fuglinn sá; og af fleiri fugla hjali frygð um sumarstundir; listamaðurinn lengi þarvið undi. Aptæig Haufut þat it hafa, HuitfauLþot Jocli cauLþom, Moþr Jaurþ or Marsuæþi Mal es HauGua brealom. Eggert ritaði mikið um hugðarefni sín, bæði á ís- lenzku og latínu. Auk þess var hann málkunnugur fjölda manna, vegna ferða sinna um landið. Skáld- skapurinn, vísan, var þó það form, sem hann notaði Heima er bezt 407

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.