Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.11.1970, Blaðsíða 25
sögunni, Búnaðarbálk, Mánamál og ísland. Frá honum eru nokkrar skáldlegar hugmyndir, sem seinna komu víða fram, s. s. Fjallkonumyndin. Vísa innan úr einu kvæði úr Brúðkaupssiðabók hans er orðinn hálfgildings þjóðsöngur: ísland ögrum skorið. Loks lifa nokkrar lausavísur á alþýðuvörum, án þess að menn geri sér grein fyrir höfundi þeirra--“ (Úr formála við kvæði Eggerts, Bókaútg. Menning- arsj. 1953). Eggert Ólafsson var fæddur í Svefneyjum á Breiða- firði 1. desember 1726, og þar ólst hann upp með for- eldrum sínum, merkishjónunum Ólafi Gunnlaugssyni og Ragnheiði Sigurðardóttur. En þau voru af þrekmiklu og dugandi fólki komin. Fleiri börn áttu þau en Eggert, þjóðkunnugt merkis- og gáfufólk. Eggert var ungur settur til mennta, en engar sérstak- ar sögur fara af námi hans, en gera verður ráð fyrir, að það hafi sótzt vel. í háskólann í Kaupmannahöfn er hann kominn 1746. Þar drekkur hann í sig hina nýju stefnu, upplýsinguna, sem svo mjög hafði áhrif á allar hans hugsjónir og kemur fram í skáldskap hans. Við Hafnarháskóla leggur hann stund á mörg fræði, svo sem þá var siður. Einkum stóð hugur hans til náttúru- fræða, og 1749 gengur út á þrykk rit eftir hann á latínu um myndun íslands af jarðeldi, 148 bls. að stærð. Upp úr því sendir ríkisstjórnin hann til rannsóknarstarfa til íslands (1752—1757), ásamt öðrum ungum fullhuga, Bjarna Pálssyni, sem síðar varð landlæknir. Um þessa ferð ritaði Eggert frægt rit, Ferðabókina. — Ferðabókin hafði mikil áhrif um að leiðrétta hugmyndir erlendra manna um land og þjóð. Enn í dag er hún merkt heim- ildarrit um háttu og siðu landsfólksins í ýmsum byggð- arlögum á 18du öld. Eggert var veitt embætti vara-lögmanns (1767). Hugðist hann þá festa ráð sitt og kvæntist frændkonu sinni, Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Hann reisti sér bú að Hofstöðum á Snæfellsnesi, en þegar hin ungu hjón voru að flytja þangað búferlum fórst skip þeirra og þau drukknuðu í Breiðafirði 30. maí 1768. Um þann atburð hefur Matthías Jochumsson ort frægt kvæði, sem öllum skólabörnum er kunnugt. Eggert féll því ungur (42 ára) frá öllu því, sem hann hafði gert og ætlaði sér að gera, en þó einkum frá öll- um vonunum. Því það kom aðallega í hlut annarra manna að gera þær að veruleika, enda má segja, að þær hafi vaxið betur og blómlegar hjá öðrum, einkum Jónasi Hallgrímssyni og öðrum Fjölnismönnum. En Eggert Ólafsson mun halda áfram að lifa í eftirdæmi sínu og hvatningum. Hann verður því alltaf talinn einn mesti öndvegismað- ur íslenzkrar sögu. E. E. Fyrir nokkru leitaði ég á náðir lesenda með kvæði, sem ég nefndi „Dísa heitir draumlynd mær / í dalakofa bvr.“ Mér hafa nú borizt fjölmörg bréf með þessu ljóði, sem sýnilega hefur náð miklum vinsældum, og þá ekki sízt fyrir ágætan söng Hauks Morthens. Hér kemur ljóðið; höfundur kallar sig Náttfara: DÍSA (Manana) Dísa heitir draumlynd mær, í dalakofa býr. Hún unir sér í sveitinni við sínar ær og kýr, og þekkir ekki glaum og glys né götulífsins spé, og næstum eins og nunna er, þótt nítján ára sé. :,: Ó, Dísa, ó, Dísa, ó, Dísa í Dalakofanum Hún aldrei hefur heyrt um neitt, sem heitið getur Ijótt, og heyrist aldrei nefna neitt, sem nú er eftirsótt: Nælonsokka, silkiföt og síðra kjóla prjál, né varalit og vindlinga osf vínsins gUUnu skál. ' / / , Ö :,: O, Dísa, ó, Dísa, ó, Dísa í Dalakofanum :,: Mig dreymir um þig, Dísa mín, og Dalakofann þinn. Um sæluna í sveitinni ég syng við gítarinn, því ástin hefur hyldjúp sár í hjarta mínu rist, þótt margar hafi meyjarnar í mínum faðmi gist. :,: Ó, Dísa, ó, Dísa, ó, Dísa í Dalakofanum :,: Ég dáist að þér, Dísa mín, og dýrka þína mynd. Ég vil koma í kofann þinn, er kvöldsól roðar tind, og biðja þig um hjarta og hönd og helzt að giftast mér, og gleyma bæði sorg og sút í sænginni hjá þér. :,: Ó, Dísa, ó, Dísa, ó, Dísa í Dalakofanum :,: Heima er bezt 409

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.