Heima er bezt - 01.12.1972, Page 2

Heima er bezt - 01.12.1972, Page 2
Ég veit þú segir satt. Við höldum jól. Við sjáum eins og vant er nú um tíma, hvað ból og hól og hjól og skjól og sól er himnesk sending þeim, sem eiga að ríma. Þessar ljóðlínur Þorsteins Erlingssonar hafa furðuoft hvarflað í huga mér seinustu vikurnar við að horfa í fjarlægð á undirbúning jólanna, bæði úti í Kaupmannahöfn og hér heima. Skáldið lætur jólin vera hér eins konar hvöt til rímaranna um að finna sem flest samrímandi orð, án þess að efni eða baksvið ljóðsins snerti á nokkurn hátt innihald eða gildi jólahátíðarinnar sjálfrar. Innantóm orð og annað ekki. Og jólaviðbúnaðurinn hjá oss flestum er af sama toga spunninn, íburður, auglýsingar, kaupæði, sem gengur oft firnum næst. Þegar svo hátíðin sjálf gengur í garð, verður það með ofneyzlu matar og drykkjar hjá hverjum þeim, sem það getur. Fjarri sé það mér að lasta það, þótt menn geri sér dagamun, geri eitthvað til hátíðabrigða, þegar við á, slíkt er krydd lífs- ins, sem vér raunar notum alltof lítið. Vér lifum alltof mikið í hinum gráa hversdagsleika, sem margir smá- munir gætu varpað lit og ljósi á, ef vér vildum. Eða þá á öðru leitinu lifa menn um of við hvers konar stundar- gleði, svo að grípa verður til æsilegri ráða, þegar um einhver hátíðabrigði er að ræða. En hvernig sem það er, vér höfum lagt oss til þær lífsvenjur að hætta að gleðjast af smáu, og sjást þess skýrust merki í öllu jólahaldi voru. Því að það er Iangt bil frá að gera sér dagamun og til alls þess tilstands, rétt eins og á einu jólakerti og hinum glæsilegu jólagjöfum nútímans. Jólin eru fagnaðarhátíð, mun einhver segja, hví skyld- um vér þá ekki vera glöð umfram aðra daga? Vissulega er þetta rétt, en er það fögnuður jólanna, sem fram kemur í jólahaldi voru? Er þar ekki á ferðinni einhver gervifagnaður, sem raunverulega dylur fyrir oss hina sönnu jólagleði. Oss er ljóst, að jól kristinna manna eru haldin í minn- ingu um fæðingu frelsarans, sem flutti mannkyninu boð- skap friðar og kærleika. Friður á jörðu var söngur engl- anna á Betlehemsvöllum, segir jólaguðsspjallið oss. Og löngu áður en kristni kom til norrænna þjóða, héldu for- feður vorir jólagleði til að fagna hækkandi sól, sigri ljóssins yfir myrkrinu, vitnisburði þess, að í hönd færi vöxtur og gróandi. Jólin eru þannig, hvernig sem vér lítum á málið, hátíð ljóss, friðar og fagnaðar. Friður á jörðu er boðskapur jólanna. Hvernig hefir oss gengið að tileinka oss hann á tveim þúsundum ára. Hvarvetna um heim logar ófriðarbál, svívirðileg hermd- arverk eru unnin nær daglega víðsvegar í heimi, og undir niðri ólgar í glóðum haturs og hefndarþorsta. Þó vantar ekki friðarhjalið, og oft gæti oss virzt, að þeir, sem hæst tala í þeim efnum vilji minnst gera til raunverulegra um- bóta. Á friðarráðstefnum fer oft lengri tími til að ræða sætaskipan á fundunum og röð mála á dagskrá en til málefnanna sjálfra, sem að lokum eru jafnóleyst og í upphafi. Meðal vorrar fámennu þjóðar logar í flokkadráttum og ófriði milli stétta og einstaklinga, og þótt vér veg- umst ekki með vopnum, fljúga margar sárbeittar örvar í annarra garð. Það fer naumast hjá því, að oss hvarfli í huga, að bar- áttueðli, sérhyggja og eigingirni séu svo ríkir þættir í eðli mannsins, að hann geti ekki haldið friði. Stríð við náungann sé honum jafnmeðfætt og andardrátturinn. Vér skulum þó vona, að svo sé ekki, og boðskapurinn frá Betlehem eigi eftir að rætast, svo að mannkynið megi að lokum fagna friði og njóta velþóknunar Guðs. Jólin eru hátíð ljóssins jafnt í andlegum og veraldleg- um skilningi. Vér lýsum híbýli vor svo vel sem unnt er, bæði utan og innan. Ekkert af táknrænum störfum jóla- hátíðarinnar þykir mér jafnfagurt. Jólaljósin ljóma skyndilega í skammdegismyrkrinu. Enn er mér í barnsminni fögnuðurinn yfir því, þegar ljós var kveikt í hverjum krók og kima. Gamlir moldar- veggirnir fengu allt í einu bjartan svip, og skotin, sem Grýla og aðrar óvættir gátu leynzt í, voru allt í einu björt og hættulaus. Ég efast ekki um, að svo mikið barn er í oss flestum, þótt árin færist yfir, að vér fögn- um jólaljósunum af alhug. Ef til vill eru þau hið eina í öllu jólahaldinu, sem færir oss verulega nær hugsjón jólanna sjálfra, en hví geta þessi ljós ekki lifað í oss allt árið? Er ekki hlýja og ljós eitt það, sem oss skortir mest almennt. Sambúð okkar manna er yfirleitt án hlýju, þótt vel fari á ytra borðinu. Vér ölum með oss of mikið af sérhyggju, tortryggni og öfund, jafnvel til góðkunn- ingja vorra. Vér getum ekki varizt því að gera saman- burð á hag þeirra og vorum, og finnst þá oft sem þeim vegni svolítið betur, húsið þeirra sé stærra, bíllinn vand- aðri, þeir skemmti sér meira o. s. frv. Broddur öfundar- innar særir oss, hvert sinn, sem vér hugsum til þessa. Vér 402 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.