Heima er bezt - 01.12.1972, Síða 4

Heima er bezt - 01.12.1972, Síða 4
WMNsNsNsNsNsA'SNNNNSNSNS^Nli Séra PÉTUR SIGURGEIRSSON vígslubiskup: /rx<j)/r\ A Áli\ Ev Pann 10. des. í ár, annan sunnudag í jólaföstu, gerðist sá merkisatburður, að fram fór endur- vígsla gömlu Svalbarðskirkjunnar í Suður-Þing- eyjarsýslu, sem reist hefur verið á kirkjulóð fyrstu kirkjunnar á Akureyri. Þar sem sú kirkja hafði verið rifin eftir að hún var afhelguð 1940, með tilkomu hinnar nýju Akureyrarkirkju, hefur sú lóð verið auð og beðið eftir því, að eitthvað væri gert fyrir hana til þess að minna á helgi staðarins og sögu. Stjórn Minjasafnsins, formaður hennar er Jónas Krist- jánsson fyrrv. mjólkursamlagsstjóri, fékk áhuga á því að fá í gamla byggðakjarna innbæjarins kirkju, sem gæti verið sýnishorn af guðshúsum fyrri tíma, og hóf að kynna sér um hvaða kirkjur væri að ræða. Þá stóð svo á, að gamla Svalbarðskirkjan var enn uppi- standandi. Hafði sóknarnefnd Svalbarðssóknar gefið Æskulýðssambandi kirkjunnar í Hólastifti bygginguna og var ætlunin að flytja hana austur til sumarbúðanna við Vestmannsvatn. Þegar til átti að taka, var sú ráða- gerð talin ógerleg vegna flutningserfiðleika. Stjórn Minjasafnsins fór þess á leit við sambandið að fá þessa gömlu kirkju í umræddu skyni og varð sambandið við þeirri bón. Kirkjuhúsið var svo flutt til Akureyrar árið 1970 undir umsjón safnvarðarins, Þórðar Friðbjarnar- sonar. Hann sá einnig um nauðsynlega viðgerð á kirkj- unni til þess að hún yrði aftur nothæf. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, og þáverandi þjóðminjavörður, dr. Kristján Eldjárn, hafa báðir farið mjög lofsamlegum orðum um menningar- sögulegt gildi hússins. Er biskup var á vísitazíuferð um Suður-Þingeyjarprófastsdæmi fyrir 10 árum bað hann hlutaðeigandi að sjá til þess, að þessu merka húsi yrði þyrmt. - „Þá þótti mér vel skipazt um örlög þessarar fornu kirkju, þegar ráðið var, að hún yrði flutt til Akur- eyrar og gerð upp á vegum Minjasafnsins þar,“ segir biskup í bréfi til Minjasafnsins. Hin gamla Svalbarðskirkja var byggð árið 1846 af hinum kunna kirkjusmið Þorsteini Daníelssyni á Skipa- lóni, og var afhelguð 1957, þegar nýja Svalbarðskirkjan var vígð. Með þeirri viðgerð, sem hún hefur nú hlotið er hún mjög stæðilegt hús og sómir sér vel með sínu hóg- væra yfirbragði í hvamminum hjá Kirkjuhvoli. Verður það að teljast góð lausn á meðferð gömlu kirkjulóðarinnar, að fá þangað guðshús. Úr því að svo tókst til, að Akureyrarkirkjan þar var rifin, hæfir staðn- um ekki annar minnisvarði betur en annað musteri drottni til dýrðar, þangað, sem menn geta áfram sótt til lofsöngs og bænagjörðar eins og áður. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, fól mér á hendur það ánægjulega verk að vígja Minja- safnskirkjuna. Til aðstoðar við þá athöfn voru prófastur Eyjafjarðarprófastsdæmis, séra Stefán Snævarr á Dalvík, /SNSfSNsNsNsNsN\NsNWsNSN/NS/MNS^^ 404 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.