Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1972, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.12.1972, Qupperneq 12
var það meint, að ekki skipti lengur máli um hann. Margir þeirra, er þá töluðu þannig, eru nú vitanlega stignir yfir sama þröskuldinn sem hann, en ég efa, að hinir, sem enn eru eftir, mundu nú dirfast að endurtaka orð sín. Og er nokkurt það kvæði í Hvömmum, sem við nú vildum út þaðan fyrir þessa sök? Því trúi ég ekki. En úr því að ég minntist á Einar, skal ég bæta því við, að líklega er Árni Eylands í sumum kvæðum sínum skyldastur honum af öllum okkar skáldum, en þó aldrei torskilinn, eins og Einar er svo oft. Skáldjöfur þessi hafði ástríðufulla ást á ættjörðinni. Og enginn sá, er les ljóðabækur Árna Eylands, getur rekið sjálfan sig úr vitni um það, að honum er í þessu á sama hátt farið. En nú skulum við snöggvast líta á nokkur kvæði Árna, og þá fyrst einhver þeirra, er beinlínis snúast um ættjörðina og þjóðina, með þeim verkefnum, sem knýja á til þess að efla menningu hennar og velfarnað. Mörg slík kvæði yrkir hann þegar á námsárum sínum í Noregi. Þau sýna ljóst hve átthagaböndin eru sterk og hve brenn- andi löngun hann hefir þegar á æskuskeiði haft til þess að verða að liði. Eðlilega eru það æskustöðvarnar, sem alla tíð hafa togað hann fastast til sín, og þráfaldlega hlýtur hann að hafa tekið undir með Símoni: „Ó, hve fagurt er að sjá ofan í Skagafjörðinn,“ þegar hann kom úr fjarlægð og sá heimabyggðina breiðast út fyrir aug- um sér. Enn er langt til heimferðar frá Noregi er hann kveður þannig á Þorláksmessu: Vötn og haga vefur mjöll, vindar naga börðin, hugann draga Huldu-fjöll heim í Skagafjörðinn. í kvæði, sem hann yrkir ári síðar, kemst hann þannig að orði: Nú vil ég heim þegar vorar og vellirnir grænka á ný, og lömbin í högum sér leika og lóurnar kveða við ský. Nú vil ég heim þegar vorar, ég veit, að mín bíða þar örendar æskuvonir og andskotans þúfurnar. Vitanlega skildi hann það rétt, að margar mundu æskuvonirnar dæmdar til dauða. Aldrei hefir nokkur ungur hugsjónamaður lifað það, að sjá nema lítinn hluta vona sinna fá uppfyllingu. En þarna er það þegar ljóst, hvað fyrir honum vakti: að rækta landið. Varla hefir hann, þegar hann kvað þetta, órað fyrir því, hve geysimiklu honum átti að auðnast að fá ágengt í þessu efni, þó að margar hafi framkvæmdirnar orðið ófull- komnari en æskilegast hefði verið, sökum þess, að hann stjórnaði þeim ekki, heldur aðrir. Um það bil hálfum fjórða áratugi síðar, þá þaul- reyndur maður og búinn að sjá mörgu öðruvísi fram farið en skyldi, er tröllatrú hans á íslenzku gróðrarmold- inni þó enn óbuguð, og á öndverðu vori kveður hann svo: Nú bíður mold í mjallarhjúpi, hún man hin liðnu vor, hún bíður þess, að daggir drjúpi og dauðans græði spor. Hún bíður þess, að sólin signi sumarblóm við lambhúsvegg, hún bíður þess, að bráðum rigni og brekkugróður rísi á legg. Hún bíður þess ég fari á fætur og fari að brýna reku og gref. Hún að sér aldrei hæða lætur, hún vekur mig, ef fast ég sef. En vinni ég henni verkaglaður, mér veitist bæði ró og trú, þá verð ég betri og meiri maður, moldarþengill og lífsins hjú. Með ótal tilbreytingum heldur þetta skáld linnulaust uppi lofsöng sínum um moldina (sem of lítið er af í okkar hrjóstruga hraunlandi), en vitanlega aðeins fyrir það, að hún fæðir af sér gróðurinn. En það er einmitt hann, sem Árni vill verja lífi sínu og starfskröftum til að kalla fram úr djúpi hennar. Það má því nærri geta, að ekki muni hann sparari á lofsönginn um sjálfan gróðurinn, sem honum er alla tíð ljóst, að ekki fæst nema fyrir erfiði og dygga þjónustu. Sem dæmi um þetta skulum við taka eitt kvæði heilt, sökum þess, að það er svo stutt: Nú er vor um vegu alla, vor á ferð um norðurheim, til mín sunna og sumar kalla að syngja og vinna höndum tveim. Ég er ungur, æskuglaður, ætla að rækta land, er kól, ég er vorsins verkamaður, vinna skal með lífi og sól. Mitt er landið, mín er önnin mörg að hefja Grettistök, láta björk, er bruddi tönnin, breiða lim um húsaþök. Hér skal neyta vits og vilja, verkaþreks og trúarbrags, til að móta, til að skilja tíðasöng hins nýja dags. En ekki er honum nóg að yrkja um gróður almennt án nokkurrar skilgreiningar. Hann verður líka að yrkja um tegundirnar. Sem dæmi þar um má nefna gullfallegt kvæði um svo yfirlætislausa jurt sem mehnn, er halda mun áfram að gegna ómetanlegu hlutverki í viðhaldi og endurnýjun gróðurríkis landsins. Það kvæði hefst þannig: Undragrasið okkar fósturjarðar aldrei gleymist barni Skagafjarðar, melurinn við braut í svörtum sandi, sönnun guðs um ást á þessu landi. 412 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.