Heima er bezt - 01.12.1972, Síða 21
Á Þingvöllum voru oft fyrstu kynni hjónaefna.
Þrælarnir voru fljótir að átta sig á því, að víðáttan
og landshagirnir í þessu nýja landi, gaf þeim tækifæri
til að ná langþráðu frelsi. Hér gátu þeir strokið og haft
ofan af fyrir sér á stöðum, þar sem líkindi voru til, að
enginn finndi þá. Eins gátu þeir flokkað sig saman og
gerzt stigamenn í skógum og stundað ránsskap, þótt
áhættusamt væri. Landnámsmenn hafa því séð, að þeir
gátu reynzt hættulegir og höfðu reyndar fyrir sér dæm-
in. Hyggilegast var því að umgangast þessa herteknu
menn með meiri vinsemd en tíðkast hafði hingað til,
auka heldur á frjálsræði þeirra, jafnvel veita þeim alger-
an rétt frjálsborinna manna. Margir þrælanna voru hinir
nýtilegustu menn til allra verka og kunnu talsvert til
farsællar búsýslu. Nokkrir þeirra voru jafnvel kynbornir
menn, þótt örlögin hefðu leikið þá svona grátt.
Mcð réttu má því segja, að landið sjálft, víðáttan og
landkostir, hafi borið í sér frelsið, og hér var ekki unnt
að lifa nema í frelsi og með virðingu fyrir fólki.
Frelsið verður þó alltaf einhverjum annmörkum háð.
Erindi Gríms var því að fá menn til að bindast samtök-
um um að halda uppi einhvers konar reglum um frið-
samleg samskipti og koma upp stofnun (Alþingi), sem
fært væri að segja til um hverjar þessar reglur væru.
Þetta skildu bændurnir og tóku því erindi Gríms vel, og
til að sýna hug sinn gáfu þeir honum einhvers konar
gjafir, sem hann gaf svo aftur til hofanna.
Þetta sýnir hvað karlinn hefur verið vitur. Hér hefur
honum gengið tvennt til. I fyrsta lagi hefur hann verið
fjarska glaður yfir því að hafa komizt klakklaust úr
hinu erfiða ferðalagi og því viljað sýna guðum sínum
þakklæti. í öðru lagi hefur hann viljað sannfæra bænd-
ur um, að til ferðalagsins hafi honum ekki gengið fé-
girnd, heldur hafi hann lagt það á sig af friðarþrá og
friðarþörf og til að skapa hér öryggi.
Og bændurnir urðu sammála um að stofna til Alþing-
is. Því var valinn staður í Bláskógum, sem seinna fékk
svo nafnið Þingvelhr.
Margir ímynda sér, að Þingvellir hafi orðið fyrir
valinu, af því að staðurinn hafi þótt svo fallegur. Ólík-
legt er það. Þingvellir þykja þó fallegur staður og hafa
kannski verið enn fallegri á dögum Gríms geitskarar, en
um fegurð eru alltaf skiptar skoðanir. Staðurinn hefur
verið valinn af hagkvæmnisástæðum. Hann lá vel fyrir
samgöngum úr stærstu og fjölmennustu landnámshér-
uðunum, Borgarfirði og Suðurlandi. Lengra var að sækja
úr öðrum héruðum, menn þó sætt sig við staðinn, af
því að þeir hafa talið hagsmunum sínum bezt borgið
með því að bindast samtökum við fjölmennustu héröðin.
Fleira hefur þó komið til um val staðarins.
Landnáma segir, að staðurinn hafi verið lagður til
þinghaldsins af því að gnægð viðar hafi verið í Bláskóg-
um og á heiðum var stór og góður hrossahagi. Hvoru-
tveggja hefur verið nauðsynlegt þar sem miklu fjöl-
menni var ætlað að koma saman. Viður var nauðsyn-
legur til að elda við matinn og eins til að hita upp vistar-
verur þingmanna, búðirnar svonefndu. Eina og eina
spýtu hefur og mátt nota í þak yfir torf og grjótveggi
búðanna. Þingmenn komu allir á hestum, þá þurfti að
fóðra og stórt flæmi nauðsynlegt svo til örtraðar kæmi
ekki. Þá hefur aðstaðan ekki versnað við nálægð Þing-
vallavatns, en ætla má, að þangað hafi mátt sækja marg-
an girnilegan silunginn í pottinn.
Alþingi var einstök stofnun. Hún hefur aldrei verið
hugsuð sem tæki í valdabaráttu einhvers eins höfðingj-
ans, sem hug hefði á að ná hér yfirráðum. í þessari
stofnun var frá upphafi leitast við, að sem flestir hefðu
hönd í bagga með stjórnarfari. Sá sem þuldi upp lögin,
lögsögumaðurinn, var fremstur meðal jafningja, og aðrir
þingmenn fylgdust með því, að rétt væri farið að og
gerðu óspart athugasemdir ef svo var ekki.
Þingvellir urðu höfuðstaður landsins um margar aldir.
Þangað þ) rptust menn úr öllum landshornum seint í
júní eða snemma í júlí til að sinna alvarlegum málum
og til að sýna sig og sjá aðra. í þetta mátti samt ekki
eyða lengri tíma en hálfum mánuði. Hér hefur farið
fram lífleg verzlun og alls konar önnur mannleg sam-
skipti í alvöru og leik. Þinghaldið hefur sennilega stuðlað
meira en nokkuð annað að sambræðslu landsmanna í
eina heild, og ef til vill því að þakka, að svo að segja
Heima er bezt 421