Heima er bezt - 01.12.1972, Qupperneq 34
útvörður íslands, og það starf, sem hann hefir unnið íslenzkri
menningu og þjóðemi á þeim vettvangi, með fádæmum mikið og
gott, og verður seint að fullu metið. Þessi bók er í raun réttri
einn þáttur í starfi hans að skapa tengsl milli íslands og um-
heimsins.
Halldór Laxness: Guðsgjafaþula. Rvík 1972.
Heigafell.
Ný skáldsaga frá Laxness er alltaf viðburður, ekki sízt þessi nýja
saga, þar sem hann bregður að nokkru á nýjan stíl og form, eða
eins og hann sjálfur segir, að hún sé „blendingur af ýmiskonar
ritsmíðum, svo sem æviminningum, heimsádeilu, blaðagreinum,
kveðskap, sagnfræði, smásögum og sagnafróðleik . . . . en allt
diktur að efni og formi.“ Má vera að svo sé, að allt sé þetta diktur,
en hvað um það, efnið, þótt sundurleitt sé, er haglega saman ofið
í skemmtilega bók. Baksvið sögunnar er síldarævintýri íslendinga
allt frá hruninu mikla 1920 og meðan síldin sást við landið. Er
þama furðulega glögg mynd af þessum atburðum, sannari en
margar aðrar þjóðlífsmyndir hins ágæta höfundar, og skrifuð af
meiri samúð með persónum en honum er títt. En þótt vér skynjum
þarna síldarævintýrið mikla, með öllum þess kynjum, þá eru samt
persónulýsingar sögunnar meira virði. Þar ber íslandsbersa hæst;
hann verður vissulega ein af hinum miklu persónum íslenzkra
bókmennta, en margir munu þekkja fyrirmyndina, sem og fleira,
er fyrir kemur í sögunni. Sem sagt höf. hefir skráð hér skemmti-
lega og hugþekka bók, sem vissulega mun auka hróður hans og
vinsældir.
Olafur Briem: íslendingasögur og nútíminn. Rvík 1972.
Almenna bókafélagið.
Bók þessi er leiðarvísan handa nútímamanninum til að skilja og
njóta íslendingasagna. Hún er auðskilin, ljós og lipur í framsetn-
ingu, og gerð af óvenjumiklum skilningi á menningarverðmætum
sagnanna, en laus við allt það yfirlæti frásagnar, sem oft einkennir
skrif þeirra, sem við bókmenntaskýringu fást. Allir, sem læsir eru,
geta nokkuð af henni lært. Þeim, sem kunnugir eru sögunum, gef
ur hún ný sjónarmið og umhugsunarefni, jafnframt því, sern
hún hlýtur að skerpa ást þeirra og virðingu fyrir þessum dýi-
gripum menningar vorrar. En hinum, sem ekki þekkja til forn-
ritanna og ef til vill óttast það, að sögurnar séu eitthvert tormelt
torf, opnar hún nýja heima, og leiðir þá frá hverjum staðnum til
annars, fegurri og girnilegri til fróðleiks. Hefir höfundur með
bók þessari unnið þarft verk og gott. Ég hefi nokkra ástæðu til
að ætla, að sögur vorar séu minna lesnar en skyldi af ungu fólki,
einmitt af því, að það treystir sér ekki til þess að njóta þeirra,
en lítur á það, sem þar er óaðgengilegt. En Ólafur Briem hefir
fengið þeim hnoða í hendur, sem vísar þeim rétta leið, án þess
hann nokkru sinni reyni að troða einhverjum sérskoðunum inn á
Ráðning á verðlaunakrossgátu
HEB
J 0 • ■ £ • A
/3 L 'H 5 H N 2) / • v
L £ R. K u t) u ■ sæ
F Q N / & 5 EY L.
/< U F U N &■ PR. • 5 / T R f)
N H S /< UR • 5 æ L U 3
■D U L U R • V O R H RHT
R ! T / R S / F o R ue
Ö R R /V H ú F fí /< O L L. H
s N H U Ð • R / S L f) R
O F r 3 & • Q'O N s • • R
u • /9 P R V QT N • 5 /< o
■ L 7 7 l t> O RT ■ s /< 'F)
V £ 5 • R H LL ■ s R H P R
s u i< i< • R P u ~Ð r H Sr f) R_
• /r>H R F) • um ■ R / N N
5 E & L. u m Ý F) N & P)
H / 3 /n 1 R U S L • NÆ R
L H R O ■ RP Fr /? ■ 5 !
Það fer ekki á milli mála, að áskrifendur Heima er bezt
hafa margir hverjir ánægju af að glíma við krossgát-
urnar hans „Ranka“ vinar okkar, enda berst alltaf mikið
af réttum ráðningum til blaðsins. Ráðningin á síðustu
verðlaunakrossgátunni er svona:
VORNÓTT
í skyggðum fleti skuggi stóð,
skammt frá nýjum degi,
þegar sunna, sæl og rjóð,
sökk — í norður vegi.
Eins og að undanförnu eru veitt þrenn verðlaun fyrir
rétta ráðningu, þ. e. bækur eftir eigin vali úr Bókaskrá
HEB 1972, að verðmæti allt að kr. 1000.00 (HEB-verð)
handa hverjum verðlaunahafa.
Nöfn eftirtalinna þátttakenda, sem sendu rétta ráðn-
ingu, voru dregin út:
1. Guðmundur Þórarinsson,
Vogum, Kelduhverfi, N.-Þing.
2. Sólveig Sigurjónsdóttir,
Sunnuhvoli, Stöðvarfirði, S.-Múl.
3. Inga Gísladóttir,
Kársnesbraut 74, Kópavogi.
Við óskum verðlaunahöfum til hamingju og biðjum
þá að velja sér nú bækur úr Bókaskránni fyrir allt að
kr. 1000.00 hvern.
434 Heima er bezt