Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Síða 2

Heima er bezt - 01.03.1987, Síða 2
„Grimmur skyldi Góudagurinn fyrsti, annar og hinn þriðji, þá mun Góan góð verða“, svo hljóðar veðurspá forn. Ekki veit ég hvort hún hefir verið á nokkurn hátt trúverðugri en aðrar þær veðurspár, sem tengdust einstökum merkisdögum ársins, en þykir það næsta ótrúlegt. Nú hafa fyrstu þrír Góudagarnir verið óvenjulega mildir vetrardagar, og fjarri sé mér að halda, að þeir spái nokkru illu, enda segir spáin ekkert um það, að Góan geti ekki orðið góð, þótt fyrstu dagarnir séu blíðir í viðmóti, hún segir einungis að grimmir dagar verði launaðir með góðri tíð. Sennilega á spáin að rekja til hinnar sígildu vonar eða óskhyggju, að á skiptist skúrir og skin, bæði í náttúr- unni og sjálfum oss, og ætli það sé ekki nokkurn veginn nær sanni. En slepp- um Góunni að sinni. Nú nýlega hafa fjölmiðlarnir flutt oss veðurspá um framtíðina og hana glæsilega. Það er hvorki meira né minna, að brátt taki veðurfar að hlýna, sakir aukins koltvísýrings í andrúmsloftinu, svo að loftslag hér á landi komi til með að nálgast það, sem nú er á Skotlandi, og þessi breyting verði fullkomnuð á fyrri hluta næstu aldar. Ef þetta reynist rétt mega þeir, sem nú eru í bernsku eða æsku, koma til að njóta hins milda veðurfars áður en þeir eru allir, þá tekur að vora í mars, á Góunni, og vetur gengur ekki í garð fyrr en í skammdegi. Þessi spá, sem vonandi á við rök að styðjast er eins og ljósgeisli í öllu því fári hryðju- verka og hrakspáa um kjarnorkuvetur og eyðingu, sem sífellt dynur á oss í fréttum og almennum umræðum. Að vísu getum vér varla vænst þess, að slíkri loftslagsbreytingu fylgi ekki ein- hverjir gallar, og því síður, að mildað veðurfar skapi nýtt hugarfar. Það mun tæpast draga úr drottnunargirni, gróðafikn og ofstæki hugarfarsins. En þótt slíkar óvættir haldi áfram að hrjá Góudagar vesælt mannkyn, er oss, sem búum við hið nyrsta haf huggun, ef vér megum vænta þess, að hlýrri vindar leiki um oss, sumardagarnir verði fleiri, og hörkur og hafísar heyri einungis sög- unni til. Ef umrædd spá reynist rétt, hlýtur loftslagsbreytingin að hafa margvís- legar breytingar aðrar í för með sér. Hún mundi skapa nýtt umhverfi, af því leiða nýir lífshættir og lífsmögu- leikar. Vér hljótum að leita nýrra leiða, því síst af öllu megum vér vera svo bjartsýn að öll vandamál eða breytingar sem loftslaginu fylgja leys- ist af sjálfu sér. Vér verðum eftir sem áður að berjast fyrir lífi voru og til- veru. En eins og hygginn maður leitast við að búa sig undir, ef hann á örðug- leika í vændum hljótum vér einnig að taka mið af því að fyrr en varir megum vér vænta hlýrra loftslags. Ef svo fer sem spáð er liggur t.d. ljóst fyrir að gróðurskilyrði gjörbreytast og um leið gróðurfar landsins. Með slíkri hækkun hitans erum vér komin all- langt inn í hið tempraða loftslagsbelti allt suður í laufskógabeltið, og korn- rækt er hér árviss líkt og í nágranna- löndum vorum, og sama má segja um margan annan nytjagróður, sem vér getum nú ekki ræktað nema undir gleri við jarðyl. Og það þarf ekki að velkjast í vafa um, að gróður mundi aukast hvarvetna, bæði á ræktuðu landi og óræktuðu. Það þarf ekki auð- ugt ímyndunarafl til að sjá hver gjör- bylting hlyti að verða í öllum land- búnaði. Mjög verður oss nú tíðrætt um vanda landbúnaðarins, og ekki að raunalausu, slíkar ógöngur, sem hann er nú kominn í. Ekki ætla ég mér að blanda mér í þær umræður, en benda vil ég á, að mér þykir sem menn harmi um of, þótt afdalir og útnes leggist í eyði, því að mest er um vert, að góð- sveitir fái blómgast og aukist ef kostur er. En um leið að samskipti þéttbýlis- staðanna við sveitirnar aukist. Hvort- tveggja eru greinar af sama meiði, sem verða að þróast saman. En hver áhrif mundi loftslagsbreyt- ingin hafa á landbúnaðinn? Því er raunar auðsvarað. Öll ræktun yrði léttari og fjölbreyttari, og framleiðslu- kostnaður minnkaði. Eitt höfuðmein vort er hversu hinn hefðbundni land- búnaður vor er einhæfur. Lítum ein- ungis á fóðuröflunina. Við hlýrra loftslag yrði grasvöxturinn meiri, án aukins áburðar. Kornrækt yrði fastur þáttur í búskapnum, og bóndinn framleiddi sjálfur fóðurbæti sinn að verulegu leyti. Hvert bú yrði sjálfu sér nægara en nú er. Jörðin gefur meira af sér við hlýnandi loftslag, framleiðslan verður ódýrari og neyslan á landbún- aðarvörum meiri innanlands en áður, án miðstýringar og margslunginna ráðstafana. Eitt er það þó, sem ég hygg að mestri byltingu mundi valda, ef lofts- lag hlýnaði, svo sem spáð er. Skóg- ræktin, sem enn er á tilraunastigi að heita má, yrði örugg atvinnugrein. Miklu öruggari en þær greinar, sem vér nú stundum og jafnvel drjúgum traustari en bæði loðdýrarækt og fisk- eldi, sem miklar vonir eru nú bundnar við. Timbur og timburvörur verða um ókomin ár eitt nauðsynlegasta hráefni vor jarðarbúa. Skógurinn vex hægt og sígandi, þegar trén hafa á annað borð fest rætur ef loftslag, og jarðvegur hamlar ekki vexti þeirra. Það er nú um hálf öld síðan Hákon Bjarnason hóf baráttu fyrir því að rækta hér nvtja- skóg, og með hugkvæmni og kunnáttu Iét hann leita uppi þær trjátegundir, sem líklegastar voru til að vaxa hér. Nokkrar hafa þegar fundist og gefa góðar vonir, þannig að menn eru teknir að trúa því, að hér megi rækta skóg til arðs og nvtja, jafnvel þeir, sem 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.