Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 5
Brceðurnir Áskell og Jón Jónssynir veða urriða í Fiská við ísólfs- vatn um 1920. ótrúlegt, að hann eigi auðvelt með að sitja lengi, fremur en þeir vængjuðu vorboðar, sem við æðarbændur metum mikils og verja varp gegn illfygli hverskonar og öðrum vargi. Áskell er tónlistarmaður og mun halda áfram að lifa og hrærast í þeirri voraldarveröld, sem tónlistin opnar þeim, sem unna henni af alhug. Gleymdi að endurtaka Þegar við höfum lofað veðurblíðuna, sem ríkir við Eyja- fjörð þessa Góudaga, þá vík ég talinu að uppvexti Áskels. — Það var alltaf margt fólk heima á Mýri á uppvaxtar- árum mínum. Við vorum nú níu systkinin og auk okkar og foreldra okkar dvaldist þar löngum fleira fólk til lengri eða skemmri tíma. Mikið var sungið á því heimili. Mamma hafði góða söngrödd og pabbi, sem snemma hafði fengið sér orgel, spilaði og stjórnaði söng. Hann var lengi organisti í Lundarbrekkukirkju og hefur að líkindum tekið þar við af frænda sínum, Sigurgeir Jónssyni frá Stóruvöllum, sem síðar var organisti á Akureyri og leiðandi maður í tónlist- arlífinu þar. Ég byrjaði snemma að læra á orgel hjá föður mínum og var á milli fermingar og tvítugs, þegar ég fór að aðstoða hann dálítið við kirkjusönginn. Hann leyfði mér að leika þar á orgelið, þegar honum fannst ég hafa náð tökum á því. En ég gleymi því seint, þegar mér brást bogalistin fyrst. Kórinn átti að syngja „Lofið vorn Drottinn, hinn líknsama föður á hæðum.“ Ég gætti þess ekki, að endurtaka þessar laglínur, eins og á að gera, heldur hélt ótrauður áfram og . ogfagnaði góðum gesti. . Þetta kom mér allt í huga, þegar ég gekk upp Grófargilið, sem Akureyringar kenna nú fremur við kaupfélagið, hélt fram hjá Barnaskóla Islands (Akureyrar), Gagnfræðaskól- anum og sveigði síðan upp hjá Andapollinum neðan sundlaugar þar sem álftir kvökuðu í blíðunni daginn eftir föstuinngang, reyndar á bolludaginn. Áfangastaður minn var við Þingvallastræti nokkru ofan við Iðnskólann, sem nú er kominn í bland við Verkmenntaskólann. Þarna efra í húsi númer 34 við Þingvallastræti býr Áskell Jónsson söngstjóri frá Mýri með konu sinni Sigurbjörgu Hlöðvers- dóttur frá Djúpavogi. En hópur barna þeirra, sjö eru þau talsins, er uppkominn og horfinn úr foreldrahúsum, svo orðið er rúmt um þau. Hins vegar létu þau þess getið, þegar við vorum sest inn í stofu, að í rauðabíti þessa dags hefði hús þeirra fyllst af fólki og ekki allt verið hátt í loftinu. Voru þar komin þau börn þeirra hjóna, sem búa á Akureyri, og fjölskyldur þeirra, til þess að drekka morgunkaffi með afa og ömmu og salla á sig rjómabollum í tilefni dagsins. Þetta er föst venja í Þingvallastræti og víst er um það, að heim- sóknir eru tíðar þar á bæ og hafa jafnan verið, enda í samræmi við það, sem tíðkaðist á bernskuheimilum þeirra Áskels og Sigurbjargar. Má geta þess, að þótt Mýri í Bárð- ardal virðist afskekkt jörð, var þar löngum gestkvæmt og er svo enn. Þaðan var lagt upp í lengstu fjallgöngur á haustin og á vorin var jafnan tekið á móti fjölmörgum upprekstr- armönnum neðan úr dal og lengra að. Þá var lagt þaðan á Sprengisand, og ósjaldan komu þangað hópar langferða- manna óvænt af sandinum, langþreyttir og sumir illa til reika, og fengu jafnan hina bestu aðhlynningu og beina. Er mér fullkunnugt um það, að gestrisni á Mýri hefur löngum verið rómuð. Áskell Jónsson á samkvæmt kirkjubókum Ljósvatns- þinga að vera orðinn 75 ára, fæddur á Mýri þann 5. apríl árið 1911. Þótt hann sé nú hvítur fyrir hærum, þá hefur andlegt fjör hans ekki dofnað, svo mér er ómögulegt að skipa honum í sveit öldunga. En lögbundnar starfsaldurs- reglur hafa hins vegar svipt hann embættum og krefjast þess, að hann setjist nú í helgan stein. Þykir mér næsta Gamli bærinn á Mýri í Bárðardal um 1940. Heimaer bezt 77

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.