Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 10
Sverrir Pálsson og Jóhann Konráðsson stilla saman raddir sinar við
undirleik Áskels.
saman, einnig á sviði tónlistar. Hann er söngmaður góður
og um langt skeið sungu þeir saman, hann og Jóhann
heitinn Konráðsson. Var ég fyrst undirleikari með þeim á
fjölmennum æskulýðssamkomum, sem núverandi biskup,
séra Pétur Sigurgeirsson, stóð fyrir fyrst eftir að hann hóf
prestsferil sinn á Akureyri. Þeir félagar sungu ýmist dúetta
eða einsöngslög og þetta leiddi síðar til söngferðalaga með
þeim. Og þá kom blessaður landbúnaðarjeppinn oft í góðar
þarfir fyrir lista- og menningarlíf sveitanna.
Ég kenndi söng við Gagnfræðaskóla Akureyrar til ársins
1974. Ég hafði einnig tekið að mér að kenna stærðfræði og
hefi stundum haldið því fram af hæfilegri alvöru, að það
hafi ég haft upp úr bókhaldinu á Reykjum forðum daga.
En þótt ég þreyttist með árunum, ekki síst er kom fram á
hinn órólega sjöunda áratug, þá lauk þessum langa kenn-
araferli á skemmtilegum vetri. Ég var þá yfirkennari og
kenndi ekki annað en söng. Framan af hafði ég lítinn
bókakost við söngkennsluna. En til þess að bæta úr því, þá
settum við Páll bróðir minn saman dálítið kver með nótum
árið 1954: Söngbók skólanna, með lögum, kvæðum og
söngfræðiágripi. Fengum við Hilmar Magnússon á Akur-
eyri til þess að teikna nóturnar og hann sá einnig um
prentun bókarinnar, sem kom út í talsvert stóru upplagi.
Helgi Elíasson fræðumálastjóri studdi þessa hugmynd, en
fjárstyrk fengum við engan. Hins vegar fór bókin víða og
seldist fljótlega upp. —
Hugljúfasta starfið
— Við höfum nú staldrað nokkuð við skólastarf þitt og þá
er eftir þátturinn, sem átti að vera aðalefni þessa viðtals. En
nú er mér ljóst, að við verðum að stikla hér á stóru í frásögn
af söngstjórn þinni á Akureyri. —
— Eins og ég gat um áður, þá tók ég að mér stjórn
Karlakórs Akureyrar haustið 1943. Lengst hafði nafni
minn, Áskell Snorrason tónskáld, stjórnað kórnum, en ég
tók við honum af Sveini Bjarman, sem hafði þá um
skamma hríð annast söngstjórn. Karlakórnum stjórnaði ég
síðan allt til ársins 1966 eða því nær í aldarfjórðung. Og því
fylgdi svo sem meira starf, því árið 1961 var ég kjörinn
formaður Heklu, sambands norðlenskra karlakóra. Þrem
árum síðar var minnst 30 ára afmælis sambandsins og af
því tilefni gáfum við út hljómplötu. Þetta varð óneitanlega
talsvert starf til viðbótar öllu hinu. En á fyrstu árum mínum
með Karlakór Akureyrar lék ég undir með Smárakvartett-
inum um nokkurt skeið, áður en Jakob Tryggvason tók það
að sér og einnig leysti ég Jakob af í eitt ár frá Lúðrasveit
Akureyrar. Annars er þetta orðin upptalningin ein, en frá
ýmsu væri hægt að segja sem gerðist á þessum árum. Rétt er
að geta þess, að þótt ég hefði ánægju af því að stjórna
Karlakór Akureyrar, þá hefi ég eigi að síður alltaf haft
meiri áhuga fyrir blönduðum kórum. Árið 1945 tók ég við
organistastarfi í Lögmannshlíð af Jakob Tryggvasyni og
hef nú stjórnað kirkjukórnum þar í rúm fjörutíu ár. Auk
þess sem kórinn hefur flutt marga tónleika á heimaslóðum,
hefur hann víða farið um landið með söng sinn og um
fjölda ára notið hinna ágætu sólista, Helgu Alfreðsdóttur
og Eiríks Stefánssonar. í tilefni af 40 ára afmæli kórsins
1985 gaf hann út hljómplötu. Af starfinu með kórnum,
einsöngvurum og hljómlistarfólki hefi ég jafnan haft
ómælda ánægju. Það er hugljúfasta starfið, sem ég hefi
unnið, og samt sem áður er ég vel sáttur við að hætta með
kórinn nú við vígslu fyrsta áfanga Glerárkirkju. Það er eins
og punktur yfir i-ið að ljúka starfinu á þeim hátíðisdegi.
Helga A Ifreðsdóttir og Eirikur Stefánsson bíða þess að Áskell gefi
þeitn tóninn.
82 Heima er bezt