Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 11
Askell og Sigurbjörg horfa saman af sjónarhœð yfir lanclið. Af söngferðum til Siglufjarðar og . . . — Starfsemi kirkjukóranna efldist mjög, þegar Kirkju- kórasamband Eyjafjarðarprófastsdæmis var stofnað árið 1950. Þáverandi söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, Sigurður Birkis, átti mestan þátt í stofnun þess. Var ég formaður sambandsins um alllangt skeið. Það er mér minnisstætt, að á fyrstu árum þess var efnt til söngmóts á Siglufirði. Leigðum við þá strandferðaskipið Esju fyrir 25 þúsund krónur og auglýstum ferðir með henni milli Akureyrar og Siglufjarðar. En þátttaka varð ótrúlega mikil. Að sjálfsögðu voru kirkjukórarnir margir og þeim fylgdi fjöldi fólks. Við' lögðum af stað að morgunlagi í blæjalogni og hita og það veður hélst alla leiðina. Sigling út Eyjafjörð á slíkum degi verður öllum ógleymanleg. Það var hátíðlegt, þegar lagt var að bryggju á Siglufirði. Lúðrasveit staðarins lék og bæjar- stjórinn, Jón Kjartansson, flutti ræðu og bauð okkur vel- komin, en kirkjukór Siglufjarðarkirkju söng. Þá svöruðu gestirnir með söng og þakkarorðum. Þetta var vel heppnuð og skemmtileg ferð í alla staði og það sem meira var, út- gerðin borgaði sig, því ágóði af ferðinni var 10 til 12 þúsund krónur og gekk sú upphæð til starfsemi sambandsins. . . . til Svíþjóðar — Áður en við ljúkum þessu spjalli, verðum við að staldra við aðra ferð, sem þú tókst þátt í, en þá á ég við söngferð Kantötukórs Akureyrar árið 1951. Að vísu hefur verið greint lítillega frá þessari för i þætti, sem Jónas Thordarson ritaði um Björgvin Guðmundsson í Heima er bezt í nóv- ember s.l. — — Jú, það hefur nú verið greint frá þeirri ferð víðar og m.a. all ítarlega í bókinni um Jóa Konn og söngvini hans. En tildrög ferðarinnar voru þau, að Kantötukórnum á Akureyri var boðið að taka þátt í samnorrænni sönghátíð, sem haldin var í Stokkhólmi dagana 12.-17. júní. Sem kunnugt er, þá stofnaði Björgvin Guðmundsson tónskáld þennan kór, sem lengi setti svip á tónlistarlífið hér á Akur- eyri. Og eins og vænta mátti hafði kórinn aðallega flutt hin miklu tónverk Björgvins. Og nú var ákveðið að flytja Strengleika, óratoriu við ljóð Guðmundar Guðmundsson- ar, undir stjórn tónskáldsins. í minn hlut kom að æfa og stjórna flutningi á íslenskum sönglögum. Var þá gert ráð fyrir að kórarnir, sem þarna kæmu fram, reyndu með sér í söngkeppni. Lögin, sem Kantötukórinn flutti í keppninni, voru: „Forðum tíð einn brjótur brands“, í raddsetningu Róberts A. Ottósonar, „Keisari nokkur mætur mann“, í raddsetningu Sigfúsar Einarssonar og „Meyjarmissir“, sem Karl O. Runólfsson raddsetti. Þessi keppni fór fram í Konserthúsinu við Kóngsgötu í Stokkhólmi, í sal, sem rúmaði 2000 manns og var þéttskipaður. Þetta var einhver mesta lífsreynsla, sem ég hefi komist í um dagana. Og satt að segja bjóst ég alls ekki við því, að við myndum komast á blað. Eftir sönginn sat dómnefnd lengi á rökstólum, en í henni sátu fulltrúar frá öllum Norðurlöndum. Fyrir íslands hönd sat Haraldur Sigurðsson píanóleikari í nefndinni. Ég / Slokkhólmi 1951. Áskell tekur við verðlaunum eftirsöngvakeppni norrœnna kóra. man, að meðan dómnefndin var að störfum, sýndi flokkur æskufólks úr Dölunum þjóðdansa á blómum prýddu svið- inu. Og svo komu úrslitin. IOGT kórinn í Stokkhólmi hlaut fyrstu verðlaun og Kantötukór Akureyrar önnur verðlaun. Þetta var ógleymanleg stund og fögnuður okkar íslendinga var mikill. Ég hefði viljað rifja upp þessa ógleymanlegu för um Danmörku, Svíþjóð og Noreg, en þá held ég að við þyrftum meira rými, en tímarit getur veitt. Mér dylst ekki, þegar ég lít yfir farinn veg, að ég á ótal margt að þakka. Ánægjustundirnar, sem flestar eru bundnar við tónlist, eru eins og ljómandi perlur á festi. Ég er þakklátur fyrir samstarf við gott fólk, sem gaman hefði verið að telja hér upp. En helst ber mér að þakka það lán, að hafa eignast góðan lífsförunaut og að okkur skyldi auðnast að sjá hóp barna vaxa og dafna. Heima er bezt 83

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.