Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Side 7

Heima er bezt - 01.03.1987, Side 7
ur til þess voru þær, að deilur höfðu staðið um skólann. Voru nemendur ekki nema sjö veturinn áður en Jón tók þar við skólastjórn. Hann gegndi skólastjórn á Reykjum í þrjú ár og rétti við hag og álit stofnunarinnar. Voru nemendur um 60, er hann fór, og skólinn fullskipaður, þegar hann fluttist aftur heim í Yztafell og sneri sér aftur að búskapn- um. Ég skil það ekki enn, hvað kom Jóni í Yztafelli til þess að ráða mig að skólanum, er hann hóf þar störf haustið 1934. Var ég skipaður þar söngkennari og ráðsmaður heimavistar, sem jafnan var þá kallaður bryti. Menntun fyrir þessa söngkennslu hefi ég þegar nefnt hér að framan og mundi hún varla teljast mikil á mælikvarða okkar tíma, og hvað hitt starfið snerti var ég að heita mátti reynslulaus með öllu. Ég hafði tekið þátt í bústangi heima á Mýri og m.a. unnið við heimaslátrun og önnur hauststörf til undir- búnings vetrinum á stóru sveitaheimili. En nú þurfti ég að sjá um innkaup fyrir skóla, sem að vísu var ekki fjölmennur í fyrstu, og einnig varð ég að annast allt bókhald. Skúli Guðmundsson alþingismaður, sem þetta sama haust hafði tekið við framkvæmdastjórn Kaupfélags Vestur-Húnvetn- inga, setti mig vel og rækilega inn í bókhaldið og var mér hinn ágætasti kennari og ráðunautur. Þarna var ég í fimm vetur í góðu yfirlæti, fyrstu þrjú árin með Jóni í Yztafelli og síðan tvo vetur með Guðmundi Gíslasyni, sem tók við Reykjaskóla. Á öðru ári var byggt við skólann. Af útfararsöng og átthagaböndum I tvö ár var ég formaður nemendasambands Reykjaskóla, sem starfaði af miklum krafti. Já, þetta var skemmtilegur tími. Áhugi fyrir söng varð strax mikill í Reykjaskóla og óx, þegar nemendum fjölgaði. Brátt var þar kominn karlakór með 20 til 30 strákum og síðar breyttist hann í blandaðan kór, þegar stúlkunum fjölgaði. Og þetta sönglíf vakti áhuga fólks í næstu sveitum við skólann. Kom það m.a. fyrir að skólakórinn söng við jarðarfarir. Prestur á Prestbakka í Hrútafirði var þá séra Jón Guðnason sá vandvirki fræði- maður og öðlingur. Hann var jafnframt kennari við Reykjaskóla og naut þar mikillar hylli og virðingar og einnig kona hans, frú Guðlaug Bjartmarsdóttir. Séra Jón var Hrútfirðingur að uppruna, frá Óspaksstöðum. Þegar ég kom vestur var þar bóndi, Ingþór Björnsson afi séra Ing- þórs Indriðasonar í Vesturheimi, og minnist ég þess sér- staklega, að þegar hann lést, að þá æfði ég skólakórinn og spilaði við þá útför. Og oftar spilaði ég á orgelið við jarð- arfarir á Stað. Þar minnist ég þess að hafa heyrt allan sálminn „Allt eins og blómstrið eina“ sunginn við jarðar- för, öll þrettán versin. Var þá byrjað á sálminum undir lok athafnarinnar í kirkjunni og síðan hélt söfnuðurinn áfram að syngja á göngunni á eftir kistunni út í kirkjugarðinn og þá leiddi Gísli bóndi á Stað sönginn. Við gröfina var síðan lokið við sálminn. Ég hugsa stundum um það, hvað það voru mikil við- brigði fyrir mig að flytjast vestur í Húnavatnssýslu. Ég býst við að ungt fólk muni ekki skilja það nú. En á þeim tímum var það eins og að fara til útlanda. Tengslin heima í hér- uðunum voru þá svo rík, að þegar sýslungar hittust í fjar- lægum byggðum, þá þótti þeim sem þeir væru bundnir sterkum böndum. Ári eftir að ég kom að Reykjum, þá fluttust að Borðeyri Pétur Sigfússon frá Halldórsstöðum í Reykjadal og kona hans Birna Bjarnadóttir. Komu þau frá Húsavík þar sem Pétur hafði um árabil starfað við kaup- félagið, en hann hafði nú tekið að sér forstöðu Kaupfélags Hrútfirðinga. Þar sem þau voru Þingeyingar, þá varð strax innilegt samband á milli okkar rétt eins og við værum nákomnir ættingjarí Átti ég oft leið til þeirra ágætu hjóna og varð góður vinur Bjarna sonar þeirra, sem nú er bóndi á Posshóli í Ljósavatnshreppi. Svo sterk voru þessi sýsl- ungatengsl i þá daga. Doktor í alþýðuskóla Sumarið 1939 barst mér tilboð um að taka við sömu störf- um við Laugaskóla og ég hafði gegnt fyrir vestan. Páll H. bróðir minn hafði þá annast söngkennslu á Laugum, en var að hugsa um að breyta til og flytjast annað. En þó ekki yrði af því, þá hafði hann öðrum kennslustörfum að sinna, svo ég afréð að taka þessu ágæta boði. Þá var skólastjóri á Laugum, Leifur Ásgeirsson síðar prófessor, bróðir Magnúsar skálds og þýðanda. Hann og kona hans, Hrefna Kolbeinsdóttir, tóku mér af mikilli vinsemd. Leifur var skólastjóri á Laugum í 10 ár. Kom hann þangað haustið 1933 og hafði þá fyrr á því sama ári lokið doktorsprófi í stærðfræði við háskólann í Göttingen í Þýskalandi. Hin mikla menntun háði honum ekkert þau ár, sem hann stýrði alþýðuskóla í sveit, og þaðan fór hann beina leið inn í Háskóla íslands þar sem hann naut mikils álits og var leiðandi í sínum fræðum, sem mörgum þykja ekki árenni- leg. Mér þótti dýrmætt að kynnast þessum ágætu skóla- stjórahjónum og alltaf notið þess að hitta þau síðan. Enn er mér í minni ferðin vestan úr Húnaþingi austur um sýslur að Laugum. Sérstaklega þó áning í Varmahlíð. Þetta var bjartur dagur og Skagafjörður skein svo sannar- lega við sólu. En meðan við drukkum kaffi á hótelinu þar, Heima er bezt 7 9

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.