Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Side 8

Heima er bezt - 01.03.1987, Side 8
þá var útvarpið í gangi og allt í einu bárust þær ógnvænlegu fréttir, að Þjóðverjar hefðu ráðist inn í Pólland. Heims- styrjöld var hafin í annað sinn. Af fleiri doktorum Ég var aðeins þennan eina vetur á Laugum. Um haustið 1940 hélt ég suður til Reykjavíkur og stundaði tónfræði- nám þar við Tónlistarskólann í tvo vetur hjá dr. Victor Urbancic. Að vísu var ég ekki nema í hálfu námi og vann hálfan daginn á verkstæði Jóns Halldórssonar við Skóla- vörðustíg, í Gamla kompaníinu eins og það var kallað. Það er stundum minnst á það, að íslendingar hafi notið stríðs- gróða og hann ekki alltaf reynst þeim hollur. Hitt er ljóst, að við nutum þess, að við upphaf síðari heimsstyrjaldar fluttust hingað erlendir listamenn, sem ekki varð þá lengur vært í heimalöndum sínum, en urðu að flýja ofsóknir og ofbeldi. Þeir urðu síðan ómetanlegir liðsmenn íslensks menningarlífs og opnuðu augu margra íslendinga fyrir heillandi heimi æðri lista, ekki síst tónlistar. Einn þessara Áskell og Sigurbjörg voru gefin saman i hjónaband á Laugum sumarið 1944. manna var dr. Victor Urbancic. Hann var einhver mesti öðlingur, sem ég hef kynnst. Og snillingur var hann á tón- listarsviðinu, bæði gáfaður og hámenntaður. Hann var lif- andi kennari, sem átti hægt með að vekja áhuga og gera flóknustu viðfangsefni ljós. Hann bókstaflega logaði af áhuga fyrir framgangi æðri tónlistar á íslandi, og hafði þá ekki síst áhuga fyrir að byggja upp íslenska tónlistarhefð. Hann stjórnaði þá Tónlistarfélagskórnum og þar var ég með þessa vetur. Auk þess minnist ég þess að hafa leikið á þríhorn eða þríhyrning (lítið ásláttarhljóðfæri með bjöllu- hljómi) í hljómsveit, sem dr. Urbancic stjórnaði. Það var að vísu harla auðvelt hljóðfæri, en var notað í verki eftir Offenbach, sem hljómsveitin lék. Það var mér dýrmæt reynsla, að komast þannig í snertingu við heim hljóm- sveitarinnar, sem er heillandi. Á þessum Reykjavíkurárum tók ég að mér að aðstoða Árnesingakvartettinn og setti undirspil við lögin, sem þeir félagar sungu. Fór ég oft með þær útsetningar í tima til dr. Urbancic og naut þá leið- beininga hans. Hann var svo frjálslyndur, að honum þótti þetta sjálfsagt, ekki síst fyrir það, að þetta kom að góðu gagni. Hann var enginn bókstafsmaður. Það er athyglis- vert, að dr. Urbancic og einnig þeir dr. Edelstein og dr. Róbert Abraham, sem allir voru útlendingar, virtust vera áhugasamari fyrir framgangi íslenskrar tónlistar, en ís- lendingar sjálfir. Heillaráð og hjúskapur Árið 1943 kom ég hingað til Akureyrar og var þá ráðinn söngkennari við Gagnfræðaskólann og söngstjóri Karla- kórs Akureyrar og var þann vetur einvörðungu við tónlist- arstörf. M.a. lék ég þá í danshljómsveit með Baldri Böðv- arssyni, sem var bróðir Bjarna, þess kunna danshljóm- sveitarstjóra. Við Baldur spiluðum á böllum í Skjaldborg, þar sem stúkurnar ráku þá skemmtistað. Annar lék á píanó, en hinn á harmoniku og varð þá jafnframt að nota annan fótinn til þess að slá taktinn á trommuna. Sumarið áður en ég kom til Akureyrar hafði ég rekið hótel á Laugum og þar starfaði þá hjá mér Sigurbjörg Hlöðversdóttir, komin austan frá Djúpavogi. Hafði hún verið námsmær við Húsmæðraskólann á Laugum þar sem Kristjana Pétursdóttir frá Gautlöndum réði þá ríkjum. Þetta var mitt mesta lán, að fundum okkar skyldi bera þarna saman og hún hefur umborið mig síðan. Við störf- uðum bæði við sumarhótelið sumarið 1944 og þann 11. júní á því ári, lýðveldisárinu, gaf séra Þorgrímur Sigurðsson á Grenjaðarstað okkur saman heima á Laugum. Að sjálf- sögðu þykir mér sérstaklega vænt um þann stað þar sem ævibraut mín var í raun og veru mörkuð og þá er óhætt að segja: mér til heilla. Um haustið fluttumst við Sigurbjörg svo í húsvarðaríbúðina í Gagnfræðaskólanum á Akureyri. Á Akureyri fæddust börnin okkar öll, sem eru sjö eins og fyrr segir og öll flogin úr hreiðrinu, hafa stofnað heimili, fjögur hér í bæ og þrjú í fjarlægð. í aldursröð eru þau: Jón Hlöðver skólastjóri Tónlistarskóla Akureyrar, sem hefur 80 Heimaerbezl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.