Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Page 9

Heima er bezt - 01.06.1997, Page 9
„ Heillaðist af glœsileik hennar. “ - Með eiginkonunni Halldísi Bergþórsdúttur. voru þannig að Flensborg hafði ekki réttindi til að út- skrifa nemendur beint upp í menntaskóla. Við settumst því beint að prófborðinu þegar norður kom. Þetta var nokkur þrekraun því prófin voru ekki þau sömu þó um sama námsefni væri að ræða. Þá voru öll prófin í Flensborg skrifleg en fyrir norðan voru þau flest munnleg nema stærðfræðin og stílar í ís- lensku, dönsku og ensku“. Gódur hópur skólafélaga „Það var skemmtilegt að koma norður í Menntaskólann á Akureyri. Eg settist í stærðfræðideild og naut kennslu margra af- burða kennara. Steindór Steindórsson frá Hlöðum kenndi okkur nátt- úrufræði, líffræði og lífeðlisfræði, Þórarinn Björnsson frá Víkingavatni kenndi dönsku, dr. Kristinn Guðmundsson sem síðar varð utanríkisráðherra og sendiherra í Moskvu kenndi þýsku. Brynleifur Tobíasson kenndi sögu, Sigurður L. Pálsson kenndi ensku og Trausti Einarsson sem síðar varð pró- fessor við Háskóla íslands kenndi okkur stærðfræði. Skólameistari var Sigurður Guðmundsson. Hann var mjög litríkur persónuleiki, hafði góðan aga og menn virtu hann í alla staði. Sigurður kenndi bókmenntasögu og var ágætur kennari. Eg tók nokkurn þátt í félagslífinu í skólanum, en þó ekki mikinn. Félagsmál átm eftir að verða mér hugleikn- ari seinna meir. Með mér útskrifuðust ýmsir sem seinna áttu eftir að verða áberandi í þjóðlífinu. Meðal annarra Steingrímur St. Sigurðsson listmálari, Bragi Friðriksson lögfræðingur, Tómas A. Jónsson læknir, Jón Þorsteinsson læknir, Geir Kristjánsson rithöfundur, Friðrik Þorvaldsson kennari á Akureyri, séra Arngrímur Jónsson og Úlfur Ragnarsson læknir o.fl. Við skólafélagamir frá menntaskólaárunum höfúm haldið þeim hætti að hittast á fimm ára fresti og förum norður á tugaafmælum. Til gamans má geta þess að þegar ég lauk stúdentsprófi vorið 1943 hafði enginn Grindvíkingur lokið slíku prófi ífá árinu 1889 þegar Bjami Sæmundsson ömmubróðir minn tók stúdentspróf. Ogleymanlegferð í Ofeigsfjörð Tvö sumur á skólaárum vann Tómas í Djúpuvík á Ströndum Fyrra sumarið, 1944, var eitt mesta síldveiðisumar sem komið hefur en það seinna kom á land aðeins brot af því sem veiddist árið áður og var það síðasta sumar sem síld var brœdd í verksmiðjunni í Djúpuvík. „Þarna átti ég tvö ógleymanleg sumur. Djúpavík hf. rak þarna verslun og verslunarstjórinn var Helgi Jónsson sem kvæntur var góðri frænku minni. Seinna sumarið var Sigmundur Ragnar, sonur Helga, í Djúpuvík. Hann hafði komið með hesta með sér svo við nutum þess að ferðast um nágrennið. Einn af góðvinum Helga og sem ég hafði komist í kynni við var héraðshöfðinginn Pétur Guðmundsson í Ófeigsfirði, landsfrægur maður. Hafði oft verið í fram- boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn á móti Hermanni Jónassyni á Ströndum en ekki haflt erindi sem erfiði fflekar en aðrir sem meira voru taldir eiga undir sér, sem inn á milli þreyttu kappi við Hermann. Pétur var sérstæður maður, kvikur í hreyfingum, ein- staklega hress í bragði, fjörmaður, orðheppinn og hrókur alls fagnaðar. Nú var það að hann býður okkur Sigmundi í heimsókn á miðju sumri sem við þáðum með þökkum og var ákveð- ið að fara þangað ríðandi. Hlíðin norðan Reykjafjarðar er afar brött en gatan mjó og viðsjárverð. Ekkert mátti út af bera. í hlíðinni stóð bærinn Naustavík á örlitlum hjalla, gegnt Djúpuvík. Var all bratt upp að bænum. Grastoppar voru á stöku stað við lækjarsytrur þegar nálgaðist bæinn, en til marks um bratt- ann og erfiða búskaparhætti einyrkjabóndans þá var hann við slátt í hliðinni liggjandi á hnjánum og það litla sem Heima er bezt 209

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.