Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Page 10

Heima er bezt - 01.06.1997, Page 10
Járngeröarstaðir í dag. Lengst til vinstri er Vesturbœr þar sem Tómas er uppalinn. Tjörnin heitir Dalur og hún tengist sjónum á þann veg að í henni gœtir sjávarfalla. Tjörnin var leiksvæði barnanna jafnt á sumri sem vetri. í baksýn er fjallið Þorbjörn. hann gat losað af grasi setti hann jafnóðum í poka sem var bundinn við stein svo hann ylti ekki niður hlíðina. Heyið þurrkaði hann síðan á þessum litla bala í kringum bæinn. En gest- risnina og hjartahlýjuna skorti ekki og var okkur boðið upp á kaffi og góðgjörðir. Upp frá Naustavík er skarð í fjallar- anann sem skilur að Reykjafjörð og Trékyllisvík. Ferðin þangað gekk vel og var greiðfærari og fannst mér sveitin upp af Trékyllisvíkinni ein- staklega falleg. Ekki voru þó margir bæir í byggð. Undirlendið umkringt stórbrotnum og hrikalegum fjöllum, hamraveggir og stórfenglegar klettamyndanir efra en brattar skriður neðra. í Árnesi sat þá prestur séra Yngvi Þór Árnason kvæntur læknisdóttur frá Keflavík, Jóhönnu Helgadóttur. Þorgeir Gestsson læknir frá hæli í Gnúpveijahreppi, var einnig í Árnesi um þessar mundir. Þá þekkti ég báða úr skóla. Við heimsóttum prestshjón- in og sátum hjá þeim alllengi í góðu yfirlæti. Úr víkinni héldum við um Eyrarháls til íngólfsfjarðar. Þar var síldar- stöð allt frá 1915. Þar bjó Guðjón hreppstjóri Árnes- hrepps. Þaðan héldum við í síðasta áfangann. Þegar kom- ið er í botn Ingólfsfjarðar lokast algjörlega sýn til hafs og er fjörðurinn eins og stöðuvatn á að líta. Munaðarnes með Kálfatindi loka fyrir fjarðarmunnann séð frá fjarðar- botni. Gatan upp úr Ingólfsfirði að norðanverðu er mjög brött, víða mikið niðurgrafin og þröng og meira aflíðandi niður af hálsinum Ófeigsfjarðarmegin. Fagurt útsýni var af háhálsinum yfir Ófeigsfjörð út til Selskers og til Drangaskarða en þar eru ægifagrar kletta- myndanir, einkennilega skörðóttur rani fram úr fjallgarð- inum norðan Ófeigsfjarðar og Eyvindarfjarðar. Ófeigsfjörður er örstuttur en allmikið undirlendi á Strandavísu. Þar fellur Húsá til sjávar. Við ána stendur samnefndur bær afar vel í sveit settur. Okkur var tekið opnum örmum af Pétri og konu hans Ingibjörgu Ketilsdóttur. Það var tekið á móti okkur eins og höfðingjar væru á ferð enda var Ófeigsfjarðarheimilið annálað fyrr og síðar fyrir rausn og gestrisni. Þar var löngum stórbýli og geysi- mikil hlunnindajörð. Selveiðar, æðarvarp, reki og há- karlaveiðar voru stundaðar áður fyrr en hákarlaskipið Ófeigur sem smíðað var árið 1875 er þaðan, nú varðveitt á byggðasafni. Pétur fór með okkur um landareignina og sýndi okkur m.a. hvernig útbúnaði hann hafði komið upp til að vinna rekaviðinn, fletta hann og saga en til þess hafði hann virkjað bæjarána (Húsá). Mjög hugvitsamlega gert. Margan annan fornan búnað sáum við til búskapar og nýtingar margvíslegra hlunninda. Eftir að hafa gist tvær nætur í Ófeigsfirði fylgdi Pétur okkur upp úr firðinum og þegar við sáum ofan í Reykja- Qörð kvaddi hann og við þökkuðum honum af alúð. Þessi ferð er mér mjög minnisstæð, ekki fyrir mann- raunir eða stórviðburði heldur vegna þess hve ljúf hún var. Veðrið lék við okkur, landslagið fagurt og stórbrotið en landið torvelt yfirferðar á hestum. En frábært viðmót fólksins sem á leið okkar var og dvölin í Ófeigsfirði og gestrisni hjónanna var hápunkturinn. I Ófeigsfirði blasti við augum menjar um forna frægð staðarins og mikil umsvif. Enn báru húsakynni og gest- risni vott um höfðingsskap þó farið væri að halla undan fæti. Þá var Ófeigsfjörður nyrsti bær í byggð á Ströndum. Byggð á Norður-Ströndum hafði smám saman ljarað út og árið 1965 fór Ófeigsfjörður í eyði.“ Áhugi á náttúruvísindum „Þegar ég innritaðist í Háskólann valdi ég lögfræðina. Það voru ekki neinar sérstakar ástæður til þess. Þetta var á stríðsárunum, flest lönd lokuð og ekkert hægt að kom- ast. En ég hefði örugglega valið mér námsgrein tengda náttúruvísindum, líffræði eða lífeðlisfræði hefði ég átt 210 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.