Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 11

Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 11
Fjölskyldan í garðinum að Langholti 14. F.v.: Jórunn, Bergþóra, Tómas, Tómas yngri, Flalldís, Asgerður og Halla. kost á því sem hugurinn stóð til. Náttúrafræði og allt sem tilheyrði nátt- úruvísindum voru mínar uppáhaldsnáms- greinar. Það var bara svo dýrt að fara í nám t.d. til Bandaríkjanna að það var ekki á valdi venjulegs fólks í þá daga. Lögfræðin er þó mjög gott nám sem opnar manni margar leiðir og nýtist alltaf. Að loknu lögífæðináminu fór ég til Akureyrar þar sem ég rak lögfræðistofu Jónasar Rafnar sem þá sat á þingi. Þá tók ég líka að mér ritstjórn á blaðinu íslend- ingi sem þá var vikublað. Á Akureyri náði ég mér í hdl. gráðu í málflutningi. Eg kom síðan hingað suður árið 1951 og vann hjá bæjarfógetanum í Keflavík í átta ár. Þá rak ég lögfræðistofu og fast- eignasölu hérna í Keflavík á árunum 1951-54 og 1961-1974. Eg starfaði samhliða hjá Aðalstöðinni í Keflavík. Var með bókhald og sá um ljár- reiður fyrirtækisins. Þetta var stórfyrirtæki í þá daga og er reyndar enn. Þarna var bifreiðastöð, smurstöð, dekkjaverkstæði, bif- reiðavarahlutaverslun og veitingarekstur á þessum árum.“ Heillaðist af glœsileik hennar „Kona mín er Halldís Bergþórsdóttir. Hún er Mýramaður í aðra ættina en Dalamaður i hina. Foreldrar hennar voru Bergþór Bergþórsson bóndi á Ölvaldsstöðum í Borgar- hreppi og síðar hótelhaldari í Borgarnesi og Ásgerður J. Þorvarðardóttir Skjaldberg.Eitt árið sem ég var í lögfræð- inni þá höfðu stúdentar Breiðfirðingabúð á leigu. Þar var dansað nánast hvert einasta laugardagskvöld og hafðar nokkrar tekjur af dansleikjahaldinu. Eg sá konuna mína fyrst á dansleik í Breiðfirðingabúð veturinn 1947 og heillaðist af glæsileik hennar og höfum við verið saman síðan. Börnin era fjögur. Elst er Jórunn f. 21. maí 1954. M.A. í frönsku og ensku, nú kennari við Fjölbrautaskólann í Keflavík, Halla f. 27. júlí 1955 skrifstofumaður og hús- freyja í Garðinum, Bergþóra f. 22. mars 1964 skrifstofu- og leiðsögumaður búsett í Kópavogi. Yngstur er Tómas f. 5. ágúst 1966 og býr hann hér í Keflavík. Kona mín átti dóttur áður sem heitir Ásgerður fædd 26. ágúst 1945, verslunarmaður og húsfreyja í Keflavík. Barnabörnin okkar eru 8 og 1 barnabarnabarn.“ Sparisjóðirnir hornsteinar menningar „Árið 1974 var ég ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðins í Keflavík og tók við starfinu af Jóni Pétri Guðmundssyni sem verið hafði sparisjóðsstjóri. Ég hafði þá starfað lengi fyrir sparisjóðinn áður m.a. við lögfræðistörf og þekkti því innviði bankans vel. Það var þó reyndar fyrir tilviljun að ég gerðist sparisjóðsstjóri. Við vorum ráðnir þarna tveir saman, ég og Páll Jónsson. Hann er Keflvíkingur og starfaði áður hjá íslenskum Aðalverktökum. Ég var tuttugu ár sparisjóðsstjóri. Þetta var mjög gott starf og sparisjóðurinn óx og dafnaði á þessum áram. Starfið byggist mikið á samskiptum við fólk. Og þó oft þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir og ekki væri alltaf hægt að uppfylla óskir allra sem komu, þá var þetta, þegar á heildina er litið, virkilega ánægjulegt og gefandi starf. Sparisjóðurinn er merk stofnun í þessu byggðalagi. Stofnaður 7. nóvember 1907 og verður því 90 ára á þessu ári. Lengst af var hann eina bankastofnunin á svæðinu og ég held mér sé óhætt að segja það að sparisjóðurinn hafi að mörgu leyti annast þann menningar- og félagsmálaþátt sem sveitafélögin inntu af hendi. Sparisjóðurinn styrkti nánast alla menningarviðleitni, íþróttir, tómstundastarf og marga aðra þætti sem stuðluðu að fjölbreyttara og betra mannlífi. í flestum þessara þátta var leitað til sparisjóðs- ins. Þetta á ekki bara við um sparisjóðinn hérna, þetta á við um sparisjóðina út um allt land. Þeir hafa verið og eru eins konar hornsteinar menningar, íþrótta, tómstunda og æskulýðsstarfs í viðkomandi byggðarlögum.“ 7 bæjarstjórn Keflavíkur Arið 1954 tók Tómas sæti í bœjarstjórn Keflavíkur Jyrir Sjálfstœðisflokkinn, þá rétt þrítugur. Blundaði alltaf með honum pólitískur áhugi? Heima er bezt 211

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.