Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 13
Tómas og Halldís á umdæmisþingi Lions á Akranesi
1960 en þá var Tómas kjörinn umdæmisstjóri Lionshreyf-
ingarinnar á Islandi.
heima gæti ég haft meiri áhrif og ég hafði ekki áhuga á
að skipta.“
Ólafur Thors, maður þjóðarinnar
Ólafur Thors er án efa einn merkasti þingmaður þessa
kjördœmis.
„Já, ég kynntist Olafi nokkuð því hann og faðir minn
voru kunnugir. Hann var séstaklega skemmtilegur maður
og heillaði alla hvar sem hann kom. Góður ræðumaður og
svaraði vel fyrir sig.
Lengst af því tímabili sem hann var eini þingmaður
Gullbringusýslu var hann jafnframt formaður flokksins,
ráðherra og forsætisráðherra. Það gefur því auga leið að
hann hefur haft minni tíma til að sinna sínu kjördæmi. Og
þó ég viti að hann hafi sinnt því vel og hefði kannski að-
stæður til að koma góðum málum áleiðis fyrir það er ég
viss um að hann leit miklu frekar á sig sem mann þjóðar-
innar, landsins alls og ég hugsa að hann hafi fyrst og
fremst skapað sér nafn í hugum Islendinga sem slíkur.“
Skólamál í brennidepli
Um skeið hvarfTómas tir bœjarstjórn en kom síðan aftur
árið 1970 ogþá sem oddamaður Sjálfstæðisflokksins..
Það eru þá um margt breyttir tímar og ný viðfangsefni
sem krefjast úrlausnar.
„Þá eru skólamálin enn í brennidepli. Fjölbrautaskóli
Suðurnesja er þá byggður og íþróttahús reist. Fjölbrauta-
skólinn var eiginlega byggður sem viðbygging við Iðn-
skólann sem áður var kominn. Iðnskólinn var síðan lagð-
ur niður og Fjölbrautaskóli stofnaður í staðinn. Það var
ákveðið að hér yrði frekar fjölbrautaskóli heldur en
menntaskóli og ég er sannfærður um að það var rétt skref.
Það er örugglega hagræðing í því að vera með bóknám
og verknám undir sömu stjórn.
Einnig var byggður íþróttaleikvangur og haldið áfram
gatnagerð. Nú er þetta gert samhliða, hús byggð og götur
malbikaðar“.
Sameining, forsenda betri þjónustu
Langmikilvægasta atriðið fyrir sveitafélögin hér tel ég
þó vera samvinnu á sem flestum sviðum. Ég hef alltaf
verið eindreginn talsmaður sameiningar sveitafélaganna,
að fækka þeim og stækka.
Við Stóru-Laxá í Hreppum.
Frá vinstri: Margrét Jakobsdóttir, Halldís og Tómas.
Ég er því ánægður með þá sameiningu sem orðin er, þó
ekki að öllu leyti fyrr en öll sveitafélögin hafa verið sam-
einuð í eitt, Grindavík, Vatnsleysustrandahreppur, Gerða-
hreppur og Miðneshreppur ásamt Reykjanesbæ orðin að
einu sveitarfélagi.
Öflugri rekstrareining ásamt hagkvæmari stjórnun
sparar mikla peninga og veitir betri þjónustu. Það kreijast
allir meiri og betri þjónustu og því meiri sem slagkraftur-
inn er, þeim mun auðveldara er að mæta auknum kröfum
um þjónustu.
Framhald á bls. 23 7
Heima er bezt 213