Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 25
með lakara móti síðan veðráttan fór dálítið að skána og skipaferðum að fjölga. Mér finnst annars, að eftir því sem framfarirnar vaxa, þá íjölgi líka sjúk- dómunum. Mikið er það allt öðruvísi en var í mínu ungdæmi. Ég man þá eiginlega ekki eftir nema þrenns kon- ar sjúkdómstegundum: Það var takið gamla, innvortis slæmska og útvortis ótukt. Við takinu tóku gömlu menn- irnir blóð, við flestri innvortis slæmsku höfðu menn heilagsanda plástur og við útvortis ótukt voru það húsráð og hitt og þetta. Menn lifðu þá þangað til þeir dóu, eins og gerist núna, svo munurinn er ekki allur. En þetta er nú allt búið að vera, kunningi! Það þarf lærðari mann en mig til að nefna suma þessa nýju sjúkdóma. í vetur var kránkfelt í börnum; nú aftur síðan kom fram á, bryddir meira á ótukt í fullorðnum. Faraldur- inn, sem nú kvað ganga mest hér syðra, er nefndur ráðgjafasótt. Það heitir svo ég kann að nefna það, lagsm! Já. Satt er það, sem gömlu menn- irnir sögðu, að mörg eru manna meinin. Þetta kvað vera umgangs- og ótuktarveiki, með kláðaværingi og þreyjuleysi í öllum kroppnum, hátt og lágt, að utan og innan. Þeir eru að káka við þessa slæmsku, að sagt er, bæði Guðmundur á Stóru-Borg og Guðmundur á Krossi. Og ekkert gagnar. Já! Þú munt hafa heyrt að Guðmundur makahittaði Krossinum þarna áður en bóndinn á Gullbera- stöðum komst upp á hornið. En Guð- mundur hinn býr ennþá í efri bænum á Stóru-Borg, hvað lengi sem það nú verður. Þeir eru að þessu brutli. Eins og þú manst var hún Sigríður mín alltaf nærfærin við svona fólk, og hún ráð- leggur „bramann“ og „pípuna“ skil- málalaust. Aftur var í morgun altalað við alla vatnspósta, að þessi nýi blóðkoppari bæjarins, ég kann að nefna það, full- yrti að sjúkdómur þessi stæði í sam- bandi við fýsn holdsins, lyst augn- anna og stærilátt líferni, og að kopp- arnir væru eina meðalið, sem við ætti. Enn halda sumir, að þessar um- leitanir séu undirbúningur undir ein- hvern hundadagafaraldur og muni sú raunin á verða, þegar þessu slær út, að það reynist einhvem veginn litir hundar, sem engum geri skaða, sé því óhætt að láta slag standa. En út úr þessu tilstandi kvað nú vera spáð nýrri flokkaskiptingu og nýju stórrifrildi um endilangt landið. Gunna mín sagði í gærkveldi, að í Laugunum hefðu þær fróðustu sagt að orsökin að þessu væru einhverjar „bakteríur." Það em skoplegar skepnur, lagsm, svo lítil smákvik- indi, miklu minni en minnstu lýs. Þær höfðu nú stungið upp á, stúlkna- tetrin, að láta þennan norðlenska Lúsa-Hrólf, taka þetta í karphúsið. Svona skal það vera í öllum sköpuð- um hlutum, sinn vill hvað. En þessi djánkans óværð kvað skríða af ein- um á annan og er talað, að fjölda- margir séu núna orðnir kvikir af þessum délans bitvargi. Jú! Tölum nú fátt um flest! En það veit ég, að væri þessi óværð í Norð- lendingafjórðungi, þá mundi amt- maðurinn þar láta baða heila korpus- ið. En Sunnlendingar hafa aldrei orðið samtaka í kláðamálum. Má því búast við að allt verði látið dankast. Þú sérð að ég spjalla við þig eins og í gamla daga. Brýt ég nú blaðið þennan ganginn, með óskum bestu. Þinn gamli kunningi, Hallur Hallsson. P.S. Þú færð annað seðil seinna. Þinn sami H.H. Fjallkonan 13.janúar 1905. Samþegnar vorir á Grænlandi. Vér höfum ekki að jafnaði hugsað sérlega mikið um samþegna vora á Grænlandi. En umhugsanir um þá hafa ofurlítið glæðst við það, að Danir hugsa til að sýna oss í félagi við þá á næsta sumri. Fyrir því gerir Fjallkonan sér von um að lesendur hennar hafi gaman af að fá ofurlítið meira af þeim fróðleik er hr. Mylius-Erichsen hefir aflað sér og miðlað löndum sínum í dönskum blöðum. Fjallkonan sagði síðast frá fjórum morðum er framin voru af Skrælingj- um við Yorkhöfða, sögu, er endaði á því að töframaður át hjörtun úr mæðginum, er hann hafði unnið á. Þessi töframaður var lengi í þjón- ustu M.E. og ekki verður annað séð, en að þeim hafi komið vel saman. Heiðingjar við Yorkhöfða eru í raun og veru alls ekkert grimmir í lund, segir M.E. Þeir drepa menn ekki af rángirni, fjárgræðgi eða þess konar auvirðulegum hvötum, eins og oft kemur fyrir í menningarlöndun- um. Konan framdi morðin af afbrýði einni. Og það, sem töframaðurinn gerði, var í hans augum réttlátt end- urgjald og heilög skylda. Töframaðurinn var ekki heldur nein mannæta þó að hann æti hjörtun. Honum hefir fráleitt þótt það viðfeldin máltíð. Hann gerði það eingöngu fyrir þá sök að eftir sann- færing hans og trúarbrögðum var það óhjákvæmilegt til þess að þeir sem eftir lifðu skyldu fá að vera í friði. Skrælingjar þessir trúa á hulið vald, sem þeir hugsa sér ekki í neinni líkamlegri mynd. Þetta hulda vald kveður á um hvað þeir megi aðhafast og hvað þeir eigi að láta ógjört. Þeir trúa því að framtakssamir og hraustir menn, þeir er reynst hafa hugprúðir veiðimenn á sjó og landi, fái að laun- um betra veiðiland eftir andlátið. Og þeir, sem eitthvað hafa móðgað þetta hulda vald, drekkja sér í sjónum. Kannist þeir ekki sjálfir við brot sitt kveða aðrir upp drekkingardóm yfir þeim og fúllnægja honum. Þessi hegning tíðkast mest með Skrælingjum, og hún stendur í sam- bandi við þann mikla beig, sem þeir hafa af vatni. Þeir þvo sér aldrei. Vatn er í augum þeirra hættulegt og voðalegt. Og sennilega er það fyrir þessa andstyggð á vatninu að sú trú Heima er bezt 225

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.