Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 31
Umsjón: Ingvar Björnsson
ÁSKBIFANDI
FJOBDUNGSINS
Verðlaunaáskrifandi:
Unnur BreiðQörð Oladóttir
Engihjalla 17, Kópavogi
Annar ársí jórðungur 1997
Landshluti: Vesturland
Unnur ogjjölskylda. Fremri röð frá
vinstri: Bjarni, Steingerður, Daníel,
Unnur, Kristrún og Arnfinnur. Aftari
röð frá vinstri: Kristín, Björgvin, Óli
Jóhann og Baldur.
1 ar sem að
áskrifandi
fjórðungs-
ins er að þessu sinni
búsettur að Engihjalla
17 í Kópavogi, brá ég
undir mig betri fætin-
um og heimsótti hana.
Auðvitað hafði ég
áður haft símasam-
band og við ákveðið
komutíma minn. Ég
bað hana að segja mér sem mest af
sínum högum og fer frásögn hennar
hér á eftir.
„Ég heiti fullu nafni Unnur Breið-
fjörð Óladóttir, er fædd að Bakka í
Geiradalshreppi, A-Barðastrandar-
sýslu, hinn 22. september 1936.
Foreldrar mínir voru Jóhanna Hall-
freðsdóttir úr Geiradal, fædd 27. apríl
1910, og Óli Kristinn Hallsson,
fæddur 17. október 1910, ættaður af
Skarðsströnd við Breiðafjörð.
Hallur afi minn var lengi póstur á
Skarðsströndinni. Foreldrar mínir
bjuggu að Litlu-Brekku í Geiradal og
þar ólst ég upp og fer ekki þaðan fyrr
en árið 1958, er ég flyt suður til
Reykjavíkur.
Hinn 2. ágúst 1958, giftist ég Daníel
Arnfinnssyni frá Hlíð í Þorskafirði,
A-Barðastrandarsýslu, verkamanni í
Reykjavík, fæddum 10. maí 1933.
SKUt/WSSON
BRACJ SiaJtJONSSON
GÖNGUR
,OG
RETTIR
mia SKDKJÓNSSON
C minstcLíjoNssoN
g~\ JrL. m.- —''w “-—
Verðlaun
Göngur og réttir.
binda ritsafn
Foreldrar hans voru Kristín Daní-
elsdóttir frá Hvallátrum á Breiðafirði
og Arnfinnur Þórðarson úr Gufudals-
hreppi, A-Barðastrandarsýslu.
Foreldrar okkar hjóna eru báðir
látnir.
Börn okkar eru:
Baldur, fæddur 25. júní 1959,
starfar hjá íslandsbanka á Blönduósi,
Óli Jóhann, fæddur 7. október 1960,
gullsmiður í Kópavogi, Björgvin,
fæddur 11. janúar 1963, kjötiðnaðar-
maður hjá S.S. á Hvolsvelli, Kristín,
fædd 16. janúar 1964, starfar á
saumastofu í Reykjavík, Arnfinnur,
fæddur 24. febrúar 1969, starfar hjá
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis,
Bjarni, fæddur 3. september 1970,
starfar hjá S.S. á Hvolsvelli, Kristrún,
fædd 22. september 1971, húsmóðir í
Reykjavík, Steingerður Þóra, fædd
15. október 1972, starfar hjá íslands-
flugi.
Barnabörn okkar hjóna eru nú ell-
efú talsins.
Störfum mínum má skipta í þrennt,
það er hefðbundin sveitastörf fram til
ársins 1958, heimavinnandi húsmóðir
með allt að ellefu manns í heimili.
Ellefta heimilismanneskjan var móðir
mín, er hjá okkur dvaldi frá því að
hún kom til Reykjavíkur og þar til
hún andaðist.
Þar sem ég er einbirni leiðir það að
Heima er bezt 231