Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Side 33

Heima er bezt - 01.06.1997, Side 33
Ingibjörg Sigurðardóttir. Fra 5 Séra Grímkell gengur þegar til móts við hana, hávaxinn og glæsilegur að vallarsýn, broshýr og ljúfmannlegur og enga sektarkennd er að sjá í svip hans. Hann réttir kennslukonunni höndina. - Komdu sæl, Glóey Mjöll, segir hann léttum rómi. - Sæll, séra Grímkell, svarar hún háttvís og yfirveguð hið ytra, en í innstu fylgsnum sálar kennir hún áður óþekktan skjálfta um leið og hún tekur í framrétta hönd hans og bros er ekki í huga hennar við þennan samfund. Ungi presturinn þrýstir hönd kennslukonunnar andartak og ætlar sýnilega að segjaeitthvað meira en í sömu andrá snarast Hróðmar kennari heim að skólanum og þar með er bundinn endir á tveggja manna tal. Hann heilsar séra Grímkeli með hressilegu handtaki og býður Glóeyju Mjöll samkennara sínum góðan dag. Svo hverfa þau þrjú inn í skólahúsið... * * * Vorpróf barnanna fara fram með hefðbundnum hætti. Þetta er í fyrsta skipti sem séra Grímkell situr á dóm- arastóli og dæmir verk annarra. Hann ávinnur sér strax vinsemd prófþola og nær góðri samvinnu við kennaralið skólans. En mitt í önn og erli starfsins dregst athygli hans að ungu kennslu- konunni og framgöngu hennar allri, líkt og segull að stáli. Það getur varla farið framhjá neinum hve hún nýtur í ríkum mæli hylli nemenda sinna. Mynd þessarar stúlku hefúr oflt leitað á huga hans eftir að hún þreytti göngu neðan úr Súlnavogi upp að Armótum á síðast liðnum vetri, til þess að ná fúndi sálusorgara. Ekki að ferðamát- inn sem slíkur gæti talist neitt óvenju- legur, heldur sá drifkraftur, sem þama lá að baki og skóp erindi hennar. Þessi heimsókn á skrifstofú hans, var algjör nýlunda í prestsstarfinu. Á meðan hann hlýddi á erindi stúlkunnar og þá frásögn, sem hún hafði fram að færa því ti grundvallar, fannst honum að hann sjá í henni þann lífsförunaut, sem hann dreymdi um. Að sjálfsögðu lá allt slíkt í þagnarskauti á þeirri stundu. Hann var eingöngu að gegna þjónustu við meistara sinn, hans eigið var ekki til umræðu. Þessa prófdaga hefur hann fengið að kynnast kennslu- konunni að störfúm og orðið vitni að samskiptum hennar og nemendanna. Þetta hvort tveggja hefur gefið ósk- hyggju hans og framtíðarsýn byr undir báða vængi. Hann telur líklegt að kennslukonan ætli sér að fara héðan frá Súlnavogi að skólasllitum loknum, þar sem heimili hennar mun vera í Reykjavík, hvort sem hún heldur kennarastöðunni eða lætur hana lausa. Hann er vanur að ganga hreint að verki, eins ætlar hann að gera nú. Hann ákveður að tjá Glóeyju Mjöll hug sinn áður en skólaslitin fara fram. Hún hefúr þá dálítinn umhugsunar- frest, sé hún ekki þegar reiðubúin að gefa honum svar... * * * Síðasti prófdagurinn er að kvöldi kominn. Börnin hverfa sporlétt á braut, hvert af öðm, út í vorið. Hróð- mar kennari og Ammundur skólastjóri halda einnig til sinna heima, hvíldinni fegnir. Glóey Mjöll er óvenju síðbúin. Hún á enn eftir að taka saman nokkur kennslugögn og rýma að fúllu kenn- araborð sitt frá liðnum vetri. Hún er með hugann allan við starfa sinn og Heima er bezt 233

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.