Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 34
fylgist ekkert með brottför annarra af staðnum. Henni er þv'ókunnur sá veruleiki að hún og prófdómarinn eru orðin tvö eftir í skólahúsinu. Brátt hef- ur hún lokið verki sínu og býst til heimferðar. í sama mund er drepið að dyrum á kennarastofú hennar. Hún- lýkur upp. Séra Grímkell stendur fyrir framan dymar. - Fyrirgefðu ónæðið, Glóey Mjöll, segir hann háttprúður. - Má ég eiga við þig nokkur orð? Hún lítur á hann föstu augnaráði en svarar ekki að bragði. Skyldi hann vera kominn til að afsaka brigðmæli sín, flýgur í gegnum huga hennar og blóðið tekur að streyma örar í æðum. Hún sýnir prestinum að sjálfsögðu viðeigandi háttvísi og hlýðir á það, sem hann hefúr fram að færa. En reifi hann málaleitan hennar á skrifstofu hans á siðast liðnum vetri og taki að afsaka eigin vanefhdir, ætlar hún að mæta því af fúllri hreinskilni. - Já, séra Grímkell, svarar hún ró- lega hið ytra. - Gjörðu svo vel. Hún víkur til hliðar úr dymnum. Presturinn gengur inn í kennslustof- una. Glóey Mjöll vísar honum til sæt- is, sjálf tekur hún sér stöðu við kenn- araborðið. En séra Grímkell kýs einnig að standa á meðan hann ber upp erindi sitt, hann ætlar ekki að tefja kennslukonuna lengi eftir strangan vinnudag. Nokkur andartök ríkir raf- mögnuð þögn. Svo hefúr ungi prestur- inn mál sitt: - Ég er lítið gefinn fyrir langar for- múlur, segir hann festulega, - og kem því beint að efúinu. Að vísu eru kynni okkar ekki löng, Glóey Mjöll, en þau hafa gefið mér þá mynd af þér og manngildi þínu, sem ég met dýrasta. Viltu verða konan mín? - Konan þín!!? hefur hún upp eftir honum og undrun hennar er algjör. Hún hefði getað búist við öllu öðm en þessari spumingu í máli prestsins. Blóðið þýtur ffam í kinnarnar og glímuskjálfti blossar upp innra með henni. Nú skal presturinn fá það á hreint að hann hefúr glatað trausti hennar. - Við eigum ekki satnleið, séra Grímkell, svarar hún einbeittum rómi. - Ertu viss um að svo sé? spyr hann rólega. - Já, ég er fúllviss í þeim sökum. - Á sú fúllvissa þín rætur að rekja til heimsóknar þinnar á skrifstofu mína síðast liðinn vetur? - Já, svarar hún fastmælt. - Gott er að vita það. Fyrirgefðu dirfsku mína, segir séra Grímkell hæversklega. Ég met hreinskilni þína mikils. Vertu sæl, Glóey Mjöll. Ljúfmannlegt bros leikur um andlit hans um leið og hann gengur fram úr kennslustofúnni. Glóey Mjöll stendur agndofa og horfir á eftir biðli sínum. Sá tók sér ekki nærri hryggbrotið, sem hún gaf honum. Hvarf á braut með bros á vör. Ef til vill er hann þjálfaður í því að snúa bónleiður til búðar, hugsar hún með sigurglampa í augum. Henni finnst hún hafa jafnað reikningana og vel það. Hún heyrir prestinn ræsa heimilisjeppann á Ármótum, sem staðið hefúr daglangt í biffeiðastæði skólans og aka á brott. En séra Grím- kell mun lengi verða henni ráðgáta. Hún þrífúr kennaratösku sína, snarast út úr skólahúsinu og hraðar sér heim á leið. Hún hefúr í hyggju að nota kvöldið til þess að láta niður í ferða- töskur, sem mest af farangri sínum. Hún ætlar að fara héðan frá Súlnavogi strax næsta morgun. að loknum skóla- slitum, en þau eru boðuð eftir einn dag. Hún hefúr enn ekki komið því í verk sökum annríkis, að kaupa smá- gjafir, sem hana langar til að færa án- ustu ættingjum og vinum við heim- komuna. Hún ákveður að ljúka af- þeirri höndlun um leið og kaupfélagið verður opnað að morgni. Og vomóttin björt og hljóð stígur í háæti hins liðna dags... * * * Morgunsól í heiði hellir geislaflóði yfir Súlnavog. Glóey Mjöll heldur að heiman. För hennar er heitið í kaupfé- lagið. Enn eru fáir á ferli um götur þorpsins, ffiðsæl árdegiskyrrð situr í öndvegi. Glóey Mjöll nýtur þessarar morgungöngu, þeirrar næst síðustu hér um slóðir, á þessu vori. Vogurinn, spegilsléttur, blasir við augum hennar og langt í fjarska. úti á bláum hafflet- inum, eygir hún báta af ýmsum stærð- um, sem raða sér um fiskimiðin í morgundýrðinni. Þetta er óneitanlega heillandi sjóna, hugsar hún og gengur inn í kaupfélagið. Lísa bíður fýrir innan afgreiðslu- borðið, til þjónustu reiðubúin. Glóey Mjöll brosir til hennar um leið oghún kemur inn í búðina en afþakkar aðstoð hennar að svo stöddu. Hún ætlar að gefa sér góðan tíma til að skoða gjafa- vörurnar, sem eru í hillunum og velja og hafna. En hún er ekki fyrsti við- skiptavinurinn á þessu árdegi. Tvær húsffeyjur úr þorpinu eru í óða önn að gera innkaup í matvörudeildinni. Gló- ey Mjöll veit nokkur deili á þessum konum. Hún kenndi bömum þeirra beggja síðast liðinn vetur og þær sóttu báðar reglulega foreldrafúndi skólans. Agata í Sunnuhlíð og Petrína á Efpp- löndum, eins ogþær eru nefndar í dg- legu tali meðal þorpsbúa, em mágkon- ur. Petrína er gift bróður Agötu, en hann er organisti í Súlnavogskirkju. Agata hefúr um árabil stýrt kvenfélagi staðarins og einnig gengt formennsku í bamavemdamefhd Súlnavogs, ásamt fleira félagsmálastússi, sem hún gefúr sig að. En Petrína hefúr annast bama- uppeldi og unnið hljóðlát húsmóður- störf á eigin heimili. Konumar tvær hafa lokið innkaupum og koma næst- um jafúhliða að afgreiðsluborðinu, þar sem uppgjörið fer ffam, en Agata hef- ur forgang. Á meðan Lísa reinar saman verðið á vamingi hennar, snýr Agata sér að Petrínu og segir með kaldhæðni í rómi: - Ég hef ffétt að þið hjónin séuð búin að fá nýja leigjendur á effi hæð- ina og þá ekki af verri sortinni, Bóas Jensen og Sölvínu. - Já, þau em flutt á effi hæðina hjá okkur, svarar Petrína glaðbeittri röddu. - Ibúðin var laus. - Hvemig í ósköpunum gat ykkur komið ti lhugar að leigja svona fólki? Glettni færist í svip Petrínu. 234 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.